Morgunblaðið - 22.03.2021, Page 25
var formaður Félags sjálfstæðis-
manna á Kjalarnesi til langs tíma,
eða frá um 2005 og þangað til í
fyrra. „Ég er núna í Hinu íslenska
byssuvinafélagi. Ég hef m.a. gaman
af að veiða hreindýr og sótti um að
fá að veiða núna þrátt fyrir hnéð.
Ef ég verð dreginn út þá verður
starfi stéttarfélaga og stjórnmálum.
Hann var formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Álftfirðinga í Súða-
vík í þrjú ár, eða til 1995, var for-
maður Trausta – félags sendibíl-
stjóra einnig í þrjú ár, eða þar til
hann skipti yfir í leigubílinn, sat í
stjórn íbúasamtaka Kjalarness og
H
afsteinn Númason er
fæddur 22. mars
1951 í Reykjavík en
ólst upp hjá kjörfor-
eldrum sínum á Pat-
reksfirði. „Ég var ættleiddur strax í
fæðingu, en þegar ég var orðinn
fullorðinn þá hitti ég mína réttu
foreldra og kynntist þeim og það
var ágætt.
Þegar ég ólst upp þá var leikvöll-
urinn á Patreksfirði fjaran, göt-
urnar, fjallið og niðri á höfn. Það
var alltaf verið að reyna að banna
manni að fara út á höfn en hún var
spennandi. Ég man líka þegar ég
var lítill að þá var ég með félaga
mínum á vorin að sitja yfir fé. Svo
fór ég seinna í sveit, var tíma og
tíma hjá frændfólki á Haukabergi
og Brekkuvöllum á Barðaströnd.“
Hafsteinn gekk í Grunnskóla Pat-
reksfjarðar og byrjaði snemma að
vinna á sumrin, m.a. í steypuvinnu
frá 12 ára aldri og svo í frystihús-
inu eftir fermingu. Eftir grunnskóla
fór hann til sjós. „Ég var m.a. sex
sumur frá 1969 í Norðursjónum á
síldveiðum sem stóðu fram á haust
og og svo fram eftir jól. Fyrst var
landað í Þýskalandi og svo í Dan-
mörku. Maður kom þá bara rétt
heim á haustin þegar tekið var smá
frí. Svo þegar ég bjó í Hveragerði
var ég hjá Hafskipi á flutninga-
skipum. Þegar ég flyt á Súðavík var
ég fyrst á Haffara og síðan á Bess-
anum.“ Hafsteinn stundaði sjó-
mennskuna til 16. janúar 1995 þeg-
ar snjóflóðin féllu á Súðavík. Þá
breyttist líf hans þegar þau Linda
misstu þrjú börn sín í flóðinu. Þau
fluttu til Reykjavíkur eftir það.
Vorið 1995 tók Hafsteinn meira-
próf og starfaði við akstur, fyrst
sem flutningabílstjóri og síðar sem
leigubílstjóri eftir það. „Hnéð á mér
varð ónýtt svo ég hætti að keyra
sendibíl og fór á leigubíl, það er
minni burður þar. Ég þykist vera
að vinna ennþá, ég er alltaf á
Reykjavíkurflugvelli eða eins mikið
og ég nenni. Þetta er orðið meira
hobbí til að brjóta upp daginn, það
væri algjör vitleysa að hanga heima
allan daginn og gera ekki neitt.“
Hafsteinn hefur verið virkur í
maður að bíta á jaxlinn og göslast
áfram.“
Hafsteinn háði harða baráttu við
Bakkus og fór í meðferð í janúar
1985 og hefur verið það lánsamur
að vera laus við Bakkus síðan. „Það
var draumastarf alkans að vera í
siglingum hjá Hafskip því þá gat
maður nálgast nóg af ódýru brenni-
víni. Það endaði með því að ég fór
yfir um og fór tvisvar í meðferð.“
Þrátt fyrir öll áföllin leitaði Haf-
steinn aldrei aftur í flöskuna, en ár-
ið 2001 lenti hann í alvarlegu bíl-
slysi þar sem honum var ekki
hugað líf og árið 2006 missti hann
dóttur sína úr krabbameini. „Ég er
svolítið stoltur af því að hafa farið
edrú í gegnum öll þessi áföll. Það
hefur hjálpað mér að hafa átt góða
félaga, bæði í byssuvinafélaginu og
hjá vinnufélögum sem maður hefur
getað leitað stuðnings til, og þegar
áföllin urðu í Súðavík þá stóð öll
þjóðin með mér. Það hjálpar.“
Fjölskylda
Fyrri kona Hafsteins var Salvör
Jóhannesdóttir leikskólakennari, f.
30.10. 1957. Þau bjuggu í Hvera-
gerði 1980-1984. Þau slitu samvistir.
Seinni kona Hafsteins var Berglind
María Kristjánsdóttir húsmóðir, f.
12.2. 1963. Þau bjuggu í Súðavík
1986-1995. Eftir snjóflóðið 1995
fluttu þau í Mosfellsbæ og þaðan á
Kjalarnes. Þau slitu samvistir 2014.
Börn Hafsteins og Salvarar eru
1) Jóhanna Helga Hafsteinsdóttir, f.
21.11. 1976, d. 1.5. 2006, sambýlis-
maður hennar var Gustav Péturs-
Hafsteinn Númason leigubílstjóri – 70 ára
Með yngstu dætrunum Íris Hrefna, Hafsteinn og Birta Hlín.
Algjör vitleysa að hanga heima
Veiðimaðurinn Hafsteinn staddur uppi á Fljótsdalsheiði.
Á Patró Hafsteinn að leika sér með
bát úti í garði heima í Aðalstræti.
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2021
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Samræður við maka og nána vini
eru einstaklega tvísýnar í dag. Gerðu ferl-
inu jafn hátt undir höfði og útkomunni og
gefðu skapandi viðleitni háa einkunn.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú ferð fremst í flokki og ert alveg í
sjónlínunni. Reyndu að leysa verkefnin
heima fyrir og vertu þolinmóður við fjöl-
skylduna.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er erfitt að verða óvart vitni
að hlutum milli annarra. Taktu því með ró
því þá gengur allt betur.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þegar hæfileikar þínir blómstra
muntu hljóta viðurkenningu víða. Mundu
að vini sína á maður að rækta. Ef þú hugsar
um ókunnuga sem vini þína ertu á réttri
leið.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þú þarft að vinna í því að ná tökum á
tilfinningum þínum. Samræður við fjöl-
skylduna eru árangursríkar og leiða til
góðrar niðurstöðu.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Margir taka fjölskyldum okkar sem
sjálfgefnum hlut. Skipuleggðu næstu vikur
vel og mundu að rækta geðheilsuna.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú ert hetja í augum ástvinar. Þig
langar til að kaupa eitthvað sem þú hefur
haft auga á lengi. Láttu það eftir þér.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þú þarft ekki að hlaupa til þótt
fólkið í kringum þig sé með einhver láta-
læti. Samspil við aðra, vini eða félaga, leiðir
til umtalsverðs árangurs.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Vonandi getur þú glaðst á
þessum degi og litið framtíðina björtum
augum. Allt sem þú gerir til að lífga upp á
heimilið kemur sér vel.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Ástin er það síðasta sem þú
veltir fyrir þér þessa dagana. Næstu vikur
verða annasamar og mörg verkefni munu
lenda á borðinu hjá þér.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Þú kemur í veg fyrir rifrildi sem
á rót að rekja til misskilnings um verka-
skiptingu. Gamlir vinir skjóta upp kollinum
og færa þér óvæntar fréttir.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Þótt þér þyki eitthvað gott er ekki
þar með sagt að nágranni þinn sé sama
sinnis. Láttu það eftir þér að vera svolítið
frumlegur við lausn á erfiðu vandamáli.
Reykjavík Lóa Karen Kristjánsdóttir
fæddist 6. júlí 2020 kl. 3.32 í Björkinni
í Reykjavík. Hún vó 4.170 g og var 51
cm löng. Foreldrar hennar eru Sóla
Þorsteinsdóttir og Kristján Skúli
Skúlason.
Nýr borgari
50 ára Halldóra er
Reykvíkingur en býr á
Álftanesi. Hana vantar
sveinsprófið til að klára
bifvélavirkjunina en er
með skrifstofutækni-
próf. Halldóra er fé-
hirðir hjá Landsbank-
anum og gjaldkeri keiludeildar ÍR.
Maki: Eyþór Guðnason, f. 1965, umsjón-
armaður fasteigna hjá HÍ.
Börn: Ívar Örn Ingólfsson, f. 1987, Haf-
steinn Örn Eyþórsson, f. 1987 og Birgitta
Ýr Eyþórsdóttir, f. 1996. Barnabarn er
Snædís Líf Hafsteinsdóttir, f. 2016.
Foreldrar: Helga Jónsdóttir, f. 1947, hús-
móðir, búsett í Reykjavík, og Ingvar J.
Óskarsson, f. 1953, bifvélavirkjameistari,
búsettur í Kópavogi.
Halldóra Íris
Ingvarsdóttir
30 ára Sóla ólst upp í
Genf og París þar til
hún var 11 ára, síðan í
Reykjavík og býr þar.
Hún er með BA-gráðu
í bókmenntafræði og
MA-gráðu í
menningarfræði við
HÍ. Sóla er framleiðslustjóri hjá Storytel.
Maki: Kristján Skúli Skúlason, f. 1988,
tekjustjóri hjá Arcanum Fjallaleið-
sögumönnum.
Börn: Tryggvi Veturliði, f. 2018, og Lóa
Karen, f. 2020.
Foreldrar: Ásta Karen Rafnsdóttir, f.
1965, aðstoðarskólastjóri í Breiðholts-
skóla, og Þorsteinn Þorgeirsson, f. 1955,
hagfræðingur. Þau eru búsett í Reykja-
vík.
Ásta Sólhildur
Þorsteinsdóttir
Til hamingju með daginn