Morgunblaðið - 22.03.2021, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 22.03.2021, Qupperneq 26
son, f. 7.7. 1979. Þeirra dóttir er Katrín Valgerður Gustavsdóttir, f. 17.4. 2003. 2) Valgerður Björg Haf- steinsdóttir, f. 29.9. 1980, hjúkr- unarfræðinemi, eiginmaður hennar er Ólafur Brynjar Bjarkason, f. 28.12. 1977. Börn þeirra eru Matt- hildur Agla Ólafsdóttir, f. 20.8. 2005, Nói Hrafn Ólafsson, f. 25.9. 2007, Sölvi Steinn Ólafsson, f. 11.10. 2012, og Baldur Orri Ólafsson, f. 12.9. 2014. Börn Hafsteins og Berglindar eru 3) Hrefna Björg, f. 10.8. 1987, d. 16.1. 1995, 4) Kristján Númi Haf- steinsson, f. 7.10. 1990, d. 16.1. 1995; 5) Aðalsteinn Hrafn Haf- steinsson, f. 29.9. 1992, d. 16.1. 1995; 6) Íris Hrefna Hafsteins- dóttir, f. 13.12. 1996, húðflúrari; 7) Birta Hlín Hafsteinsdóttir, f. 25.6. 1998, nemi. Systir Hafsteins samfeðra er Sig- rún Aðalsteinsdóttir, f. 26.4. 1961, húsmóðir, búsett í Danmörku. Systkini Hafsteins sammæðra eru: Sigurður Lárusson, f. 10.4. 1944, kaupmaður, búsettur í Reykjanes- bæ; Hafdís Eiríksdóttir, f. 19.11. 1952, d. 15.5. 1953; Guðrún Hafdís Eiríksdóttir, f. 7.6. 1957, framhalds- skólakennari, búsett í Reykjavík; Guðlaugur Eiríksson, f. 16.4. 1959, bifreiðarstjóri, búsettur í Garðabæ; Ásta Ellen Eiríksdóttir, f. 14.9. 1963, stuðningsfulltrúi, búsett í Danmörku. Foreldrar Hafsteins voru: Aðal- heiður Halldórsdóttir, f. 20.5. 1927, d. 17.9. 2005, starfsstúlka, búsett í Reykjavík, og Aðalsteinn Kjart- ansson, f. 11.5. 1925, d. 27.1. 1991, sjómaður í Reykjavík. Kjörforeldrar Hafsteins voru hjónin Valgerður Haraldsdóttir, f. 23.8. 1909, d. 6.11. 2002, húsmóðir, og Númi Björgvin Einarsson, f. 1.11. 1915, d. 3.3. 1990, verkamaður og sjómaður. Þau voru búsett á Patreksfirði. Hafsteinn Númason Guðrún Þórðardóttir húsfreyja á Ísafirði Óli Hannesson sjómaður á Ísafirði Ólína Óladóttir húsfreyja á Ísafirði Kjartan Bjarnason verkamaður á Ísafirði Aðalsteinn Kjartansson sjómaður í Reykjavík Ingveldur Stefánsdóttir húskona í Saurbæ og víðar Bjarni Guðmundsson húsmaður í Saurbæ á Vatnsnesi og víðar Valgerður Hannesdóttir húsfreyja í Götu, síðar í Reykjavík Stefán Þórðarson bóndi í Götu í Oddasókn, Rang., bjó síðar í Reykjavík Sigríður Stefánsdóttir verkakona í Reykjavík Halldór Oddsson verkamaður í Reykjavík Sigríður Halldórsdóttir húsfreyja í Gröf Oddur Gunnarsson bóndi í Gröf í Lundarreykjadal Úr frændgarði Hafsteins Númasonar Aðalheiður Halldórsdóttir starfsstúlka í Reykjavík DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2021 Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is Við erum sérhæfð í gluggatjöldum alnabaer.is SCREEN RÚLLUGARDÍNUR MAGNÚS VAR VALINN HEITASTI PIPARSVEINNINN Í FYRIRTÆKINU. „LÁTTU GOGGA EKKI HRÆÐA ÞIG. HANN SITUR INNI FYRIR SKJALAFALS.“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að finna fjögurra blaða smára. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann AF RÍKRI ÁSTÆÐU! ERTU TIL Í AÐ REIMA SKÓNA MÍNA LÍKA? ÞÚ SEGIR ALLTAF ÞAÐ SAMA SEGÐU EITTHVAÐ, GRETTIR Kristján Bjartmarsson skrifaðimér bréf, sem ég er þakklátur fyrir og hljóðar svo: „Ég er dyggur lesandi Vísnahornsins og mér datt í hug að senda þér eina vísu, sem ég heyrði föður minn, sr. Bjartmar Kristjánsson á Mælifelli, fara með einhvern tíma í mínu ungdæmi. Vís- an er svona, eins og ég man hana: Þessi tíð er kvöl og kross, kaldir vindar stinga. Nú er vont að vera hross á vegum Skagfirðinga. Síðasta vísuorðið má skilja bæði beint og óbeint, því að á þessum ár- um var algengt að sjá hross á veg- um úti í Skagafirði. Ég hélt að pabbi hefði samið vísuna, enda var hann ágætur hagyrðingur, þótt hann flíkaði því ekki mikið. En ég er ekki viss. Veit einhver betur? Svo læt ég fylgja frumsamda limru, sem kemur ofangreindu máli ekkert við: Þegar hann Stjáni frá Strönd Steingerðar bað um hönd, varð karl hennar faðir klumsa og kerlingin mamma’ ’hennar hvumsa. En hvorugt fékk reist við rönd.“ Sigurlín Hermannsdóttir skrifaði á Boðnarmjöð á fimmtudag: „Helstu tíðindi af Suðurnesjum eru tíðindaleysi“: Er gosspáin orðin að gjalli þótt gliðnunin áfram þar malli? Nú skjálftar sjást fáir og flestallir smáir það er rólegt hjá Fagradalsfjalli. Gunnar J. Straumland svarar: Hræringar eru nú allvíða en eldgosið lengur þó skal bíða því ljóst virðist mér að líklegast er vesalings kvikan með valkvíða. Og Sigurlín Hermannsdóttir: Hlýst af því stórkostleg streita er streymir um goskvikan heita hvar farvegs er leitað því fær enginn neitað því eitthvað þarf eldgos að heita. Anton Helgi Jónsson yrkir við mynd af Sigurði Inga Jóhannssyni í þingsal og undir stendur: „Ráð- herra leggur til að flugvallarreglur ráðherra trompi skipulagsáætlanir sveitarfélaga“: Þótt hvatt sé til kosningadáða og kíkt sé á lífsskoðun tjáða þarf fólk samt að skilja þann forsjónarvilja að framsóknarmennirnir ráða. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Helstu tíðindin eru tíðindaleysi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.