Morgunblaðið - 22.03.2021, Qupperneq 27
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2021
_ Þórir Hergeirsson fer með lið sitt,
norska kvennalandsliðið í handknatt-
leik, á Ólympíuleikana í Tókýó í sumar
eftir harða baráttu í undankeppninni.
Norska liðið vann fimm marka sigur á
Rúmeníu á laugardaginn, 29:24, og
þurfti Rúmenía því sex marka sigur
gegn Svartfjallalandi í gær til að kom-
ast áfram á kostnað Norðmanna. Það
tókst ekki, Rúmenar unnu þriggja
marka sigur og ólympíusætið því í
höfn hjá Þóri og stöllum.
_ Guðlaugur Victor Pálsson, lands-
liðsmaður Íslands í knattspyrnu og
leikmaður Darmstadt í þýsku B-
deildinni, fór mikinn fyrir þýska félagið
á laugardaginn þegar liðið heimsótti
Eintracht Braunschweig í þýsku B-
deildinni. Guðlaugur Victor kom sínu
liði yfir strax á 13. mínútu með fallegu
marki áður en hann fékk dæmda á sig
vítaspyrnu fyrir að handleika knöttinn
innan teigs á 17. mínútu. Nick Proscg-
witz skoraði úr spyrnunni og lokatölur
því 1:1 en Guðlaugur Victor lék allan
leikinn fyrir Darmstadt sem er í ellefta
sæti þýsku B-deildarinnar með 32
stig.
_ Sverrir Ingi Ingason lagði upp
fyrsta mark PAOK þegar liðið tók á
móti AEK Aþenu í úrslitariðli grísku úr-
valsdeildarinnar í knattspyrnu í gær.
Leiknum lauk með 3:1-sigri PAOK en
Andrija Zivkovic skoraði fyrsta mark
leiksins eftir sendingu frá Sverri.
Sverrir Ingi lék allan leikinn í hjarta
varnarinnar hjá PAOK en liðið er í
þriðja sæti úrslitariðilsins með 50
stig, tveimur stigum meira en AEK
Aþena.
_ Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar
Ingi Magnússon komu báðir við sögu
er Magdeburg vann 29:24-sigur á
Füchse Berlín í þýsku efstu deildinni í
handknattleik í gær. Með sigrinum fór
Magdeburg upp að hlið toppliðs Flens-
burg sem á þó leiki til góða. Ómar Ingi
skoraði fjögur mörk og lagði upp önn-
ur tvö í leiknum en Gísli skoraði tvö og
lagði upp eitt. Gísli fór hins vegar
meiddur af velli í síðari hálfleik eftir að
hafa lent illa á vinstri handleggnum og
er óttast að meiðslin séu alvarleg. Þá
vann Lemgo nauman 25:24-sigur á
Ludwigshafen þar sem Bjarki Már El-
ísson skoraði sex mörk fyrir Lemgo og
Eitt
ogannað
Lengjubikar karla
8-liða úrslit:
Valur – KR ................................................ 3:3
_ Valur áfram eftir vítakeppni, 5:4.
Stjarnan – Fylkir...................................... 4:2
Breiðablik – KA........................................ 2:1
Lengjubikar kvenna
Breiðablik – Tindastóll ............................ 4:1
Selfoss – ÍBV ............................................ 2:5
Valur – Þróttur R ..................................... 8:0
Fylkir – Þór/KA........................................ 2:1
England
West Ham – Arsenal................................ 3:3
- Rúnar Alex Rúnarsson var ekki í leik-
mannahópi Arsenal.
Aston Villa – Tottenham.......................... 0:2
Brighton – Newcastle .............................. 3:0
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Everton – Manchester City .................... 0:2
- Gylfi Þór Sigurðsson lék allan leikinn
með Everton.
Chelsea – Sheffield United...................... 2:0
Bournemouth – Southampton................. 0:3
Leicester – Manchester United .............. 3:1
B-deild:
Millwall – Middlesbrough....................... 1:0
- Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem
varamaður hjá Millwall á 64. mínútu.
D-deild:
Tranmere – Exeter ................................. 2:1
- Jökull Andrésson varði mark Exeter.
Þýskaland
Bikarkeppnin, 8-liða úrslit:
Andernach – Eintracht Frankfurt ........ 0:7
- Alexandra Jóhannsdóttir kom inn á sem
varamaður á 63. mínútu hjá Eintracht
Frankfurt.
Spánn
B-deild:
Mallorca – Real Oviedo........................... 0:0
- Diego Jóhannesson var ónotaður vara-
maður hjá Real Oviedo.
Ítalía
Crotone – Bologna................................... 2:3
- Andri Fannar Baldursson sat allan tím-
ann á varamannabekk Bologna.
Napoli – Florentia ................................... 3:1
- Guðný Árnadóttir lék allan leikinn með
Napoli og Lára Kristín Pedersen kom inn á
sem varamaður á 60. mínútu.
B-deild:
Salernitana – Brescia.............................. 1:0
- Birkir Bjarnason lék allan leikinn með
Brescia, Hólmbert Aron Friðjónsson var
ónotaður varamaður.
Monza – Venezia...................................... 1:4
- Bjarki Steinn Bjarkason kom inn á sem
varamaður hjá Brescia á 90. mínútu, Óttar
Magnús Karlsson er meiddur.
C-deild:
Vis Pesaro – Padova................................ 0:2
- Emil Hallfreðsson kom inn á sem vara-
maður hjá Padova á 88. mínútu.
Holland
AZ Alkmaar – PSV Eindhoven.............. 2:0
- Albert Guðmundsson lék fyrstu 66. mín-
úturnar með AZ Alkmaar.
Belgía
Mouscron – Oostende.............................. 0:1
- Ari Freyr Skúlason lék fyrstu 73. mín-
úturnar með Oostende.
B-deild:
Lierse – Lommel...................................... 0:1
- Kolbeinn Þórðarson lék fyrstu 72. mín-
úturnar með Lommel.
Pólland
Lech Poznan – Jagiellonia ..................... 2:3
- Aron Jóhannsson kom inn á sem vara-
maður hjá Lech Poznan á 76. mínútu.
Grikkland
Panaitolikos – Lamia .............................. 0:3
- Theódór Elmar Bjarnason kom inn á
sem varamaður hjá Lamia á 68. mínútu.
Austurríki
St. Pölten – Altenmarkt.......................... 4:1
- Kristrún Rut Antonsdóttir kom inn á
sem varamaður hjá St. Pölten á 82. mínútu.
Danmörk
Midtjylland – Vejle .................................. 5:0
- Mikael Anderson lék fyrstu 64. mínút-
urnar með Midtjylland.
Bröndby – AGF ........................................ 1:1
- Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Bröndby.
- Jón Dagur Þorsteinsson lék fyrstu 81
mínútuna með AGF.
Nordsjælland – SönderjyskE................. 2:1
- Ísak Óli Ólafsson var ekki í leikmanna-
hóp SönderjyskE.
AaB – OB .................................................. 0:2
- Aron Elís Þrándarson lék allan leikinn
með OB og skoraði, Sveinn Aron Guðjohn-
sen kom inn á sem varamaður á 89. mínútu.
Horsens – Lyngby.................................... 1:2
- Ágúst Eðvald Hlynsson sat allan tímann
á varamannabekk Horsens.
- Frederik Schram var varamarkvörður
Lyngby.
Hvíta-Rússland
Dinamo Brest – BATE Borisov.............. 0:0
- Willum Þór Willumsson lék fyrstu 66.
mínúturnar með BATE Borisov.
50$99(/:+0$
FIMLEIKAR
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Nanna Guðmundsdóttir úr Gróttu og
Valgarð Reinhardsson úr Gerplu
urðu Íslandsmeistarar í fjölþraut í
áhaldafimleikum á laugardaginn í
húsakynnum Ármanns í Laugardal.
Keppnin var hnífjöfn en Nanna hafði
að lokum betur, Hildur Maja Guð-
mundsdóttir var önnur og Margrét
Lea Kristnsdóttir tók bronsið. Í gær
var svo keppt í úrslitum á einstökum
áhöldum og þar bættust við gull-
verðlaun hjá þeim báðum. Nanna
sigraði í gólfæfingum en engri í
kvennaflokki tókst að ná í fleiri en
eitt gull í gær. Hildur Maja sigraði í
stökki, Thelma Aðalsteinsdóttir á
tvíslá og Guðrún Edda Min Harð-
ardóttir á slá.
„Markmiðið mitt var að koma,
sýna fallega fimleika og hafa gaman.
Þetta kom mér því frekar á óvart,“
sagði Nanna um sigurinn þegar
Morgunblaðið ræddi við hana í gær.
„Ég bjóst ekki endilega við því að
verða Íslandsmeistari en svo gekk
þetta allt mjög vel,“ bætti hún við.
Nanna er tvítug og var að vinna sín
fyrstu gullverðlaun í kvennaflokki.
Hún varð Íslandsmeistari í unglinga-
flokki, 2014 og 2015, en hefur keppt í
kvennaflokki síðan.
„Þetta hefði getað farið hvernig
sem er, við erum mjög jafnar á flest-
um áhöldum. Þá snýst þetta bara um
hver framkvæmir æfingarnar best.
Ég gerði auðveldu æfingarnar
mínar núna, sem er þó aðallega
vegna bakmeiðsla. Ég hef verið með í
bakinu síðan 2016 og þarf alltaf að
finna jafnvægið á því hversu mikið ég
get æft áður en líkaminn segir nei.“
Þar að auki hefur auðvitað verið
erfitt að vera íþróttamaður á tímum
kórónuveirunnar, enda gat fim-
leikafólk illa lagt rækt við íþróttir
sínar í vetur. „Við vorum stopp mjög
lengi og fengum ekkert að æfa síð-
asta vor og svo aftur í haust. Sumarið
fór í það að byggja upp allar æfing-
arnar og svo þurftum við að hætta að
æfa aftur. Það var auðvitað frekar
erfitt.“
Evrópumótið í áhaldafimleikum
verður haldið í Sviss 21. til 25. apríl
næstkomandi og stefnir Nanna nú á
að keppa þar. „Ég stefni á Evr-
ópumótið eftir mánuð, Ísland mætir
þar til leiks en það er ekki búið að til-
kynna liðið. Þannig að það á eftir að
koma í ljós hverjir fá að fara.“
Spyr blaðamaður þá hvort glæsi-
legur árangur hennar um helgina
komi ekki til með að auka líkur henn-
ar á að komast þangað. „Ég vona það
alla vega!“ svaraði hún hlæjandi.
Valgarð meistari í fimmta sinn
Gerplumaðurinn Valgarð varð sem
fyrr segir Íslandsmeistari í fjölþraut
á laugardaginn og það í fimmta sinn
síðan 2015. Annar varð Íslandsmeist-
ari unglinga frá því í fyrra, Jónas
Ingi Þórisson, og þriðji var Eyþór
Örn Baldursson.
Valgarð bætti svo við sig gull-
verðlaunum í gær á tvíslá. Eins og í
kvennaflokki tókst engum að vinna
fleiri en eitt gull í gær. Jónas Ingi
sigraði í gólfæfingum, Arnþór Daði
Jónasson á bogahesti, Jón Sigurður
Gunnarsson í hringjum, Martin
Bjarni Guðmundsson í stökki og Ey-
þór Örn á svifrá.
Vildi sýna fal-
lega fimleika
- Nanna og Valgarð Íslandsmeistarar
Ljósmynd/Árni Torfason
Íslandsmeistari Nanna Guðmundsdóttir úr Gróttu er Íslandsmeistari í fjöl-
þraut og í gólfæfingum. Hér er hún í húsakynnum Ármanns í gær.
Haukar styrktu stöðu sína á toppi
úrvalsdeildar karla í handknattleik,
Olísdeildinni, þegar liðið heimsótti
Val í Origo-höllina á Hlíðarenda í
gær.
Þetta var fjórði sigur Hauka í röð
en eftir jafnan fyrri hálfleik þar
sem staðan var 17:17 tókst Haukum
að knýja fram 32:28-sigur.
Adam Haukur Baumruk var
markahæstur Hauka með sjö mörk
en Anton Rúnarsson skoraði sjö
mörk fyrir Valsmenn.
_ Þá skoraði Einar Rafn Eiðsson
níu mörk fyrir FH þegar liðið vann
Selfoss í kaflaskiptum leik í
Hleðsluhöllinni á Selfossi.
Selfyssingar voru sterkari í fyrri
hálfleik en Hafnfirðingar voru með
yfirhöndina allan síðari hálfleikinn.
Phil Döhler átti stórleik í marki
FH-inga með tuttugu skot varin,
45% markvörslu, en Einar Sverr-
isson var markahæstur Selfyssinga
með átta mörk.
_ Þá vann ÍBV sannfærandi átta
marka sigur á Þór frá Akureyri í
Vestmannaeyjum þar sem Kári
Kristján Kristjánsson fór á kostum
og skoraði átta mörk.
_ Í Hertz-höllinni á Seltjarn-
arnesi áttust svo við Afturelding og
Grótta þar sem Mosfellingar unnu
þriggja marka sigur, 30:27. Birgir
Steinn Jónsson fór á kostum í liði
Aftureldingar og skoraði níu mörk.
Ljósmynd/Árni Torfason
Gegnumbrot Heimir Óli Heimisson reynir skot að marki Valsmanna.
Haukar of stór biti fyrir
Valsmenn á Hlíðarenda
Sigurganga Þórs frá Akureyri hélt
áfram þegar liðið heimsótti KR í úr-
valsdeild karla í körfuknattleik,
Dominos-deildinni, í DHL-höllina í
Vesturbæ í gær.
Leiknum lauk með fjögurra stiga
sigri Þórs, 90:86, en þetta var
fimmti sigur Þórsara í röð í deild-
inni.
KR leiddi með fjórum stigum í
hálfleik, 48:44, en Þórsarar skor-
uðu 25 stig gegn 15 stigum KR í
þriðja leikhluta og Vesturbæingum
tókst ekki að snúa leiknum sér í vil
eftir það.
Dedrick Basile átti enn einn stór-
leikinn fyrir Þórsara, skoraði 27
stig og gaf ellefu stoðsendingar.
_ Valsmenn unnu sinn fjórða leik
í röð þegar liðið heimsótti Njarðvík
í Njarðtaksgryfjuna í Njarðvík en
leikurinn var afar kaflaskiptur.
Njarðvíkingar leiddu með þrem-
ur stigum í hálfleik, 41:38, en Vals-
menn voru sterkari í síðari hálfleik
og unnu 80:78-sigur.
Jordan Roland var stigahæstur
Valsmanna með 20 stig.
_ Tindastóll þurfti að hafa fyrir
hlutunum þegar liðið fékk Hött í
heimsókn á Sauðárkrók en leiknum
lauk með 90:82-sigri Tindastóls.
Stólarnir leiddu með einu stigi
þegar tvær mínútur voru eftir af
þriðja leikhluta, 61:60, en leikmenn
Tindastóls voru sterkari í fjórða
leikhluta.
Nikolas Tomsick átti stórleik fyr-
ir Tindastól, skoraði 25 stig og tók
þrettán fráköst.
_ Þá skoraði Mirza Sarajlija 31
stig fyrir Stjörnuna þegar liðið
vann 88:76-sigur gegn Haukum í
Mathús Garðabæjar-höllinni í
Garðabæ.
Ekkert fær stöðvað
Þór frá Akureyri
Ljósmynd/Árni Torfason
Erfiður KR-ingar réðu ekkert við
Dedrick Basile í Vesturbænum.