Morgunblaðið - 22.03.2021, Qupperneq 30
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. MARS 2021
Þ
rjátíu ár eru liðin frá því
Akeem, krónprins af Za-
munda (Eddie Murphy),
óhlýðnaðist föður sínum,
Jaffe Joffer (James Earl Jones), og
hélt til „glæsihverfisins“ Queens í
New York til þess að finna sér kvon-
fang og drottningarefni.
Á þeim árum hafa hann og Lisa
(Shari Headley) eignast þrjár yndis-
legar dætur og alið upp samkvæmt
konunglegri hefð. Gallinn er hins
vegar sú, að sama hefð knýr á um að
ríkisarfinn sé karlkyns, og þar sem
Jaffe konungur er kominn á síðasta
spölinn, er brýn þörf á að leiðrétta
það. Ekki bætir úr skák að ná-
grannaríkið Nexdoria, sem Árna-
stofnun myndi líklega vilja þýða
sem Næstibær, lætur ófriðlega, en
valdhafinn þar, Izzi hershöfðingi
(Wesley Snipes), krefst þess að elsta
dóttir Akeem giftist syni sínum og
geri hann þar með að konungi Za-
munda og Næstabæjar. Akeem
vantar því karlkyns erfingja og það
strax, en góð ráð eru sem fyrr í dýr-
ari kantinum.
Semmi (Arsenio Hall), hinn tryggi
fylgdarmaður Akeem, hefur hins
vegar lausnina: Það vill svo til að í
fyrri ferð sinni var Akeem svo
drukkinn að hann náði að barna eina
af „drottningum“ Queens-hverfisins
(Leslie Jones) að sjálfum sér óafvit-
andi, og sá, Lavelle Junson (Jer-
maine Fowler), er blessunarlega
karlkyns. Akeem þarf því bara að
sækja drenginn aftur til Bandaríkj-
anna og gera hann að konungsefni
áður en Izzi gerir innrás með heri
sína. Hvað gæti mögulega farið úr-
skeiðis?
Líklega er best að útskýra strax
hér að Coming to America frá árinu
1988 er ein af uppáhaldsgaman-
myndum þess sem hér skrifar. Ég
get nánast endurtekið myndina frá
orði til orðs, svo brennd er hún í
minni mitt. Þegar ég sá og heyrði að
framhaldsmynd væri á leiðinni hafði
ég hins vegar þungar áhyggjur af
því að hér myndi vera á ferðinni
önnur Zoolander 2, sem nánast eyði-
lagði allar þær góðu minningar sem
tengdust fyrri myndinni. Enn þann
dag í dag neita ég að viðurkenna til-
vist þeirrar myndar.
Þær áhyggjur voru hins vegar
óþarfar, þar sem Coming 2 America
er gerð af mikilli virðingu við fyrri
myndina, ólíkt Zoolander-framhald-
inu. Helsti kostur myndarinnar er
sú að hún er eitt risastórt nostalgíu-
kast aftur til fyrri myndarinnar. Ég
verð að játa að ég hló og hló og hló
allan tímann, sem segir kannski sitt-
hvað um lélegan húmor undirritaðs.
Helsti galli myndarinnar er sú að
hún er eitt risastórt nostalgíukast
aftur til fyrri myndarinnar. Sem slík
nær hún aldrei að svara spurning-
unni almennilega, hvaða þörf var á
framhaldsmynd, sér í lagi þegar
fyrri myndin er jafn stórkostlega
íkonísk og hún er. Einn af brönd-
urum myndarinnar gengur raunar
út á það hversu fáránlegt það er að
búa til framhaldsmyndir af eldgöml-
um myndum sem enginn bað um.
Coming 2 America er því skiljan-
lega stútfull af vísunum í fyrri
myndina. Það skal segja myndinni
til hróss að hún gerir þær vísanir
oftast nær alveg hárrétt, og setur í
sumum tilfellum áhugaverða fléttu á
gömul stef, eins og það hvað gerist
eiginlega í baðkari konungsfjöl-
skyldunnar.
Þá liggur við að nánast allir sem
enn draga andann og komu fyrir í
fyrri myndinni birtist í framhaldinu.
Rakarastofu-„kvartettinn“ á að
sjálfsögðu sinn sess. Hinn frábær-
lega skelfilegi Randy Watson og
hljómsveit hans Sexual Chocolate er
mættur. Andstutta dónaprestinum
bregður fyrir, og við vitum því að
Guð er hér. Það er helst að maður
sakni Soul Glo og Darryl, sem alltaf
var með permanentið í lagi.
Ásamt öllum þeim „gömlu“ sem
sjást á skjánum eru nú nokkur ný
andlit og er orkubomban Leslie Jon-
es þar fremst í flokki sem Mary,
barnsmóðir Akeem, og nýtur hún
sín greinilega í hlutverki boðflenn-
unnar í hinu konunglega umhverfi.
Wesley Snipes hefur greinilega
einnig gaman af því að spreyta sig í
hlutverki „vonda gaursins“, sem
varla gengur inn í herbergi án þess
að vera í nokkurs konar Stuð-
mannahoppi.
Þá er fullmikið af „cameo“-hlut-
verkum, allt frá Morgan Freeman
til söngkonunnar Gladys Knight, og
er sumt af því með því versta sem
sést í myndinni og gjörsamlega
óþarft fyrir framvindu sögunnar.
Á sama tíma er myndin alveg
stórkostlega „röng“, líkt og fyrri
myndin. Handritshöfundar reyna
alls ekki að skora stig hjá fólki sem
hefur gleymt húmornum í tíðaranda
slaufunar og almennrar hneyksl-
unar, en á sama tíma fer myndin
ekki vísvitandi yfir þau mörk sem
nú þykja rétt.
Engu að síður verða eflaust ein-
hverjir sem munu súpa hveljur yfir
því að sjá Eddie Murphy tala með
gerviafrískum hreim eða bregða sér
í líki New York-gyðings, eða munu
hneykslast á þeirri ímynd sem
myndin gefur af ríkjum Afríku og
samfélaginu þar. Líklega er það góð
ráðlegging að ef lesandanum þótti
fyrri myndin ekki góð sé eftir litlu
fyrir hann að slægjast í framhald-
inu.
En hvað er þá hægt að segja um
Coming 2 America? Líkt og fyrr
sagði skemmti ég mér konunglega
yfir henni, en væntingum mínum
hafði verið stillt mjög í hóf. Myndin
stóðst þær og fellur því í stóran hóp
mynda sem teljast „ágætisafþrey-
ing“. Hún mun þó seint teljast
skylduáhorf fyrir þá sem dýrka
fyrri myndina.
Konungur í Queens Akeem, konungur Zamunda, leikinn af Eddie Murphy. Rýnir telur myndina ágætisafþreyingu.
Hilmir snýr heim - að óþörfu
Amazon Prime
Coming 2 America bbbmn
Leikstjóri: Craig Brewer. Handrit: Kenya
Barris, Barry W. Blaustein, David Sheff-
ield. Aðalhlutverk: Eddie Murphy, Arse-
nio Hall, Jermaine Fowler, Leslie Jones,
Tracy Morgan, KiKi Layne, Shari Head-
ley, Teyana Taylor, Wesley Snipes, John
Amos og James Earl Jones. Bandaríkin
2021, 110 mínútur.
STEFÁN GUNNAR
SVEINSSON
KVIKMYNDIR
Fræðakaffi verð-
ur á Borgar-
bókasafninu í
Spönginni í dag
kl. 17.15. Þá mun
Særún Lísa Birg-
isdóttir þjóð-
fræðingur segja
frá samskiptum
hermanna og ís-
lenskra pilta á
hernámsárunum
hér á landi. „Í skugga ástandsins
eins og við flest þekkjum það
blómstraði menning sem litlar sög-
ur fóru af. Ef til vill mætti kalla það
hinsegin ástandið. Eftir að landið
var hernumið opnuðust dyr inn í
nýjan heim hjá fjölda manna sem
fram til þessa höfðu lifað í ein-
angrun og felum með kynhneigð
sína. Hafnarsvæðið og þar um
kring ásamt nýuppsprottnum kaffi-
og dansstöðum urðu þeir staðir þar
sem karlmenn hittust og fáa grun-
aði nokkuð, enda augu flestra á
samskiptum hinna erlendu dáta við
íslenskar stúlkur,“ segir í tilkynn-
ingu um viðburðinn.
Særún er með MA-próf í þjóð-
fræði frá Háskóla Íslands og hefur í
rannsóknum sínum horft til þess
hvernig hinir ýmsu jaðarhópar
birtast í sögnum, þjóðtrú og orð-
ræðu hvers tímabils með sérstakri
áherslu á samkynhneigða.
Hommarnir á höfn-
inni í fræðakaffi
Særún Lísa
Birgisdóttir
Bandaríski leik-
arinn Armie
Hammer er
grunaður um
nauðgun og er
málið til rann-
sóknar hjá lög-
reglunni í Los
Angeles. Var lög-
reglu tilkynnt
um hið meinta
brot 3. febrúar en konan sem kærði
Hammer, kölluð Effie, var tvítug
þegar leikarinn á að hafa nauðgað
henni, árið 2017. Hammer var þá
kvæntur og sagði Effie á blaða-
mannafjarfundi að Hammer hefði
nauðgað henni í fjórar klukku-
stundir og að hún hefði óttast að
hann myndi drepa hana.
Hammer sakaður
um nauðgun
Armie Hammer
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
sýnd með íslensKu og ensKu talı
SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI.
FRANCESMcDORMAND
MYND EFTIR CHLOÉ ZHAO
PEOPLE’S CHOICE AWARD
TORONTO FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
GOLDEN LION BEST FILM
VENICE FILM FESTIVAL
SIGURVERARI
EVENING STANDARD
THE GUARDIAN
TOTAL FILM
THE DAILY TELEGRAPH
TIME OUT
EMPIRE
BESTA MYNDIN
BESTALEIKONAN ÍAÐALHLUTERKI
Frances McDormand
BESTI LEIKSTJÓRI
Chloé Zhao
6
ÓSKARS
TILNEFNINGAR
MEÐAL ANNARS
®
94%
96%
94%
99%
BESTA MYNDIN