Morgunblaðið - 29.03.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2021
„HONUM VERÐUR SLEPPT Í FYRRAMÁLIÐ.
HANN ER BARA AÐ GERA ÞETTA TIL AÐ
SEGJAST HAFA REYNT AÐ FLÝJA.“
„ÉG VAR EINU SINNI MEÐ STÆRRA
SPJALD EN ÉG GRÆDDI EKKERT Á ÞVÍ.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að koma með ástina í
farteskinu.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
DEILUM TILFINN-
INGUMOKKAR
ÓKEI
ÉG ER MEÐ
VINDVERKI
HVAR ER RESTIN
AF GULLINU?
KENNDU FORELDRAR ÞÍNIR ÞÉR
EKKI AÐ ÞAÐ ER RANGT
AÐ STELA? ÞEGIÐU!
ÞÚ ERT
MEÐ ÞAÐ
ALLT!
KENNDU FORELDRAR ÞÍNIR ÞÉR
EKKI AÐ ÞAÐ ER RANGT AÐ LJÚGA?
starf og veitt mér mikla gleði en í
febrúar fékk ég nýjan titil og það er
að vera amma og það er sko ný upp-
lifun. Mikið hlakka ég til þess að
vera amma Anna sem leyfir næstum
allt. Annars á ég dásamlega gott
samband við systkinabörn mín og
geng ég þar undir nafninu frænka.“
Fjölskylda
Eiginmaður Önnu er Jens Dan
Kristmannsson, f. 15.5 1965, Mar-
eltæknir hjá Einhamar Seafood.
Foreldrar Jens: Kristmann Dan
Jensson, f. 26.4. 1942, d. 10.8. 1988,
og Elsa Guðrún Hjaltadóttir, f. 2.11.
1947, búsett í Færeyjum. Þau voru
gift. Fyrri eiginmaður Önnu er
Rögnvaldur Freyr Sigurðsson, f.
26.7. 1968, búsettur í Noregi.
Stjúpdóttir Önnu og dóttir Jens
er Elísa Huld Jensdóttir, f. 21.6.
1995, útskrifuð úr sálfræði frá Há-
skólanum á Akureyri. Sambýlis-
maðuir hennar er Rósberg S.
Rögnuson, fiskverkamaður á Akur-
eyri. Dóttir þeirra er óskírð Rós-
bergsdóttir, f. 24.2. 2021. Fóstur-
synir Önnu og Jens eru Kifah
Mourad, f. 16.3. 2000, nemi og fót-
boltastrákur, og Júlíus Mourad, f.
1.4. 2002, nemi og tölvustrákur.
Systkini Önnu eru Ragnhildur
Reyn Ólafsdóttir, f. 21.11. 1967, hús-
móðir í Reykjanesbæ, og Þórarinn
Kristján Ólafsson, f. 20.3. 1975, Du-
hoppari, búsettur á Álftanesi.
Foreldrar Önnu eru Ólafur Birgir
Baldursson, f. 14.3. 1947, eldri borg-
ari í Sandgerði, og Sigurlaug Jóna
Guðmundsdóttir, f. 9.11. 1949, eldri
borgari í Hafnarfirði. Eiginkona
Ólafs er Helga Nönnudóttir, f. 29.1.
1955.
Anna
Ólafsdóttir
Kristín Albertína Jónsdóttir
húsmóðir og verkakona á Bíldudal
Þórarinn Kr. Ólafsson
bóndi á Rauðsstöðum í
Arnarfirði
Hjördís Þórarinsdóttir
húsmóðir og fiskverkakona á Patreksfirði
Guðmundur L. Sigurðsson
sjómaður á Patreksfirði
Sigurlaug Jóna Guðmundsdóttir
starfsmaður í íþróttamiðstöð
í Hafnarfirði
Sigríður Guðmundsdóttir
húsmóðir á Sellátranesi
Sigurður Jónsson
bóndi á Sellátranesi í
Sauðlauksdalssókn,V-Barð.
Ólína Sigurðardóttir
húsmóðir og saumakona á
Torfastöðum
Sigurjón Jónsson
bóndi á Torfastöðum
Anna S. Sigurjónsdóttir
húsmóðir og bóndi á Torfastöðum
Baldur Árnason
bóndi á Torfastöðum í Fljótshlíð
Marsibil Jóhannsdóttir
húsmóðir og saumakona
í Ölversholtshjáleigu
Árni Árnason
kennari og bóndi í Ölversholts-
hjáleigu í Holtahreppi, Rang.
Úr frændgarði Önnu Ólafsdóttur
Ólafur Birgir Baldursson
sjúkraflutningamaður í Sandgerði
Á þriðjudag sagði Eyjólfur Ó.Eyjólfsson á Boðnarmiði nýj-
ustu fréttir úr Geldingadölum:
Hjá gosinu góndu menn á
er Guðrún á leik einn þar brá
og hrinti þar öllum
með hlátri og sköllum
á hjólastól, níræð og grá.
Friðrik Steingrímsson yrkir:
Áráttuna ekki skil,
um það fjallar stefið,
fólk að gosi flykkist, til
að fá sér gas í nefið.
Helgi Ingólfsson yrkir um Litla-
Hraun og fleirtölublætið:
Í kalsanum safnast nú kösin,
og kolroðinn svíður burt grösin.
Þar forðast skal köstin
og fanga öll plöstin
og finna út, hvar eru gösin.
Magnús Halldórsson yrkir og
kallar „Jón Vegan“:
Í kvöldmat fékk Nonni sér núðlur og
maðka,
nett oná þessu lá grænmetisblaðka.
Í vegan það sótti
og víst honum þótti.
Það veruleg hamingja í sig að graðka.
Jón Atli Játvarðarson kveður:
Ég horfi á dóm hinna dauðu
og dreg mig að húsunum auðu.
Mygla, því miður
er mannlegur siður,
sagði músin og hóstaði rauðu.
Hallmundur Kristinsson bætti
við:
Margir hollvinum hygla,
ef hugsun er þannig stemmd.
Víða sést mannleg mygla
og mikilvirk rakaskemmd.
Jón Atli Játvarðsson segir að í
þessari vísu sé vikið að tveimur lík-
lega óskyldum málum. Útigangi
hrossa annars vegar. Stýrivöxtum
og gjaldeyrismálum hins vegar.
Útigangsmerarnar hanga í höm,
haldast í beinni röð.
Ásgeir talar upp krónu í kröm,
kominn á endastöð.
Dagbjartur Dagbjartsson rifjar
upp „nokkrar gamlar og að-
stolnar“, – tvær að hann minnir úr
Speglinum gamla, – og segir þetta
ekki verra lífsmottó en hvert ann-
að:
Við yrkjum svona allavega
uppá grín.
Taktu það ekki alvarlega
elskan mín.
Andagift hefur Íslending
aldrei vantað.
Ýmist hefur ’ann ort í hring
- eða kantað.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Í hjólastól og gas í nefið