Morgunblaðið - 29.03.2021, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.03.2021, Blaðsíða 27
Linköping. Guðrún Arnardóttir skor- aði fyrra mark Djurgården sem tapaði naumlega fyrir Umeå, 2:3, og er úr leik. _ Kristján Örn Kristjánsson, lands- liðsmaður í handknattleik, er kominn í sóttkví vegna gruns um kórónu- veirusmit en leik liðs hans, Aix, gegn Chambéry í franska handboltanum var frestað í gær. Kristján staðfestir þetta í samtali við handbolti.is og segir að hann hafi fengið niðurstöðu úr skimun sem kölluð sé „hálfjákvætt kovid-próf“ í Frakklandi. Hann á að fara í annað próf eftir sjö til tíu daga. _ Heimsmeistarinn Lewis Hamilton hjá Mercedes vann fyrsta formúlu-1 kappakstur ársins í Barein í gær. Hann hafði betur eftir harða keppni við Max Verstappen á Red Bull. Valtteri Bottas á Mercedes varð þriðji og Lando Norr- is á McLaren fjórði. _ Handknattleikssamband Evrópu, EHF, samþykkti á laugardag breytingu á fjölda þeirra leikmanna sem mega vera í keppnishóp landsliða á Evrópu- mótum. Áður máttu einungis 16 leik- menn vera í hóp en frá og með loka- keppni EM karla í Ungverjalandi og Slóvakíu í janúar á næsta ári mega 20 leikmenn vera í keppnishóp hvers landsliðs. Þessar reglur voru teknar upp af Alþjóðahandknattleiks- sambandinu, IHF, fyrir heimsmeist- aramótið í Egyptalandi í janúar og þóttu gefast það vel að EHF ákvað að láta slag standa og breyta sínum reglum sömuleiðis. _ Handknattleiksmennirnir Lárus Helgi Ólafsson, Vilhelm Poulsen og Rógvi Dal Christiansen hafa fram- lengt samninga sína við Fram. Lárus skrifaði undir þriggja ára samning, en hann hefur verið einn besti markvörð- ur Olísdeildarinnar í vetur. Hann hefur síðustu þrjú ár spilað með Fram. Fær- eyingarnir Poulsen og Christiansen gerðu báðir tveggja ára samninga við félagið, en þeir leika einnig með fær- eyska landsliðinu. Poulsen hefur skor- að 58 mörk í 14 leikjum í Olísdeildinni í vetur og Christiansen 26 mörk. Poulsen leikur sem skytta og Christi- ansen sem línumaður. _ Franski knattspyrnumaðurinn Anthony Martial haltraði meiddur af velli í 2:0-sigri Frakka á Kasakstan á útivelli í undankeppni HM í gærkvöldi. Félagslið hans Manchester United bíð- ur nú fregna um hversu lengi fram- herjinn verður frá. Sóknarmaðurinn var tekinn af velli eftir klukkutíma leik eftir að hann fékk þungt högg á annað hnéð. ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2021 HM 2022 Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í knatt- spyrnu er strax komið í erfiða stöðu í undankeppni heimsmeistaramóts- ins 2022 eftir aðeins tvær umferðir. Liðið tapaði 2:0 á útivelli gegn Armeníu í Jerevan í gærkvöldi og hafði þar áður tapað fyrsta leiknum í J-riðli á fimmtudaginn var gegn Þjóðverjum, 3:0. Arnar Þór Viðarson fékk eldskírn sem landsliðsþjálfari á fimmtudag- inn í Duisburg og þótt tap sé auð- vitað alltaf tap, sama gegn hverjum, verður það seint talið slys að tapa útileik gegn Þjóðverjum. Vænting- arnar í gær voru aftur á móti allt aðrar, enda Armenía í 99. sæti á heimslista FIFA. Það er auðvitað ekki þar með sagt að Ísland hafi átt að eiga sigurinn vísan, en það hefur verið eitt af einkennismerkjum liðs- ins undanfarin ár að næla í góð úr- slit í útileikjum sem þessum. Vonin fyrir leik var sú að gömlu kemp- urnar myndu sýna að íslenska fót- boltaævintýrið væri ekki úti og þó að tap svo snemma í undankeppn- inni væri vissulega ekki rothögg, þá fengum við kjaftshögg á Lýðveldis- vellinum í Jerevan í gær. Ísland var mikið með boltann en gekk illa að skapa sér færi. Ari Freyr Skúlason átti laglega tilraun í fyrri hálfleik, viðstöðulaust skot utan teigs sem fór rétt framhjá markinu. Jón Daði Böðvarsson átti svo besta færi leiksins eftir hlé, er hann lyfti boltanum snyrtilega yfir varnarmann en skaut svo beint á David Jurchenko í marki Armena. Þetta var aðeins eitt af tveimur skotum Íslands sem rataði á mark- ið. Þess utan var mikið um fyrir- gjafir sem sterkir varnarmenn AFP Skellur Sargis Adamjan tekur fyrirliðann, Aron Einar Gunnarsson, föstum tökum í Jerevan í Armeníu í gær í erfiðum leik fyrir íslenska landsliðið. Armeníu vörðust vel. Sóknarleik- urinn var á tímum þunglamalegur en við söknuðum líka Gylfa Þórs Sigurðssonar alveg gríðarlega. Meira áhyggjuefni er að það er allt í einu auðvelt að skora gegn okkur. Það hefur hreinlega verið lifibrauð þessara leikmanna síðustu sjö ár eða svo, að vera gríðarlega agaðir og skipulagðir í vörn, sérstaklega í þessum leikjum. Það hafa verið einstaka skellir gegn sumum af bestu landsliðum heims, en þegar mestu máli skiptir hefur verið erf- itt að finna glufur á íslensku vörn- inni. Sú vörn er heldur betur byrj- uð að fá í sig sprungur. Þrír af fimm öftustu leikmönnum Íslands í gær spila í íslensku úrvalsdeildinni og eru 36 til 38 ára gamlir. Tigran Barseghjan og Khoren Bajramjan skoruðu mörk Armena í leiknum án þess að varnarmenn Íslands léku mótleik. Hangir á bláþræði Næsti leikur er gegn Liechten- stein úti á miðvikudaginn. Þá er að duga eða drepast enda verða möguleikar Íslands á að komast í lokakeppni HM svo gott sem úr sögunni ef við verðum án stiga eft- ir fyrstu þrjá leikina. Forveri Arn- ars, Erik Hamrén, byrjaði sína þjálfaratíð með hörmulegu tapi gegn Sviss. Hann varð aldrei sér- lega vinsæll eftir það en var engu að síður hársbreidd frá því að koma okkur á þriðja stórmótið í röð eins og frægt er orðið. Á bratt- ann er að sækja hjá Arnari en enn er raunhæfur möguleiki á að kom- ast áfram. Riðilinn skipa lið sem geta tekið stig af hvert öðru, fyrir utan Þýskaland sem ætti að vera í sérflokki. Við verðum þó engu að síður að vinna á miðvikudaginn og vont er að vera undir svo mikilli pressu svo snemma. Íslenska ævintýrið úti? - Ísland fékk skell gegn Armeníu í Jerevan - Of auðvelt að skora gegn okkur - Gríðarlega mikilvægur leikur framundan gegn Liechtenstein á miðvikudaginn ARMENÍA – ÍSLAND 2:0 1:0 Tigran Barseghjan 53. 2:0 Khoren Bajramjan 74. M Albert Guðmundsson Jón Daði Böðvarsson Kári Árnason _ Lið Íslands: (4-3-3) Mark: Hannes Þór Halldórsson. Vörn: Birkir Már Sævars- son, Sverrir Ingi Ingason, Kári Árna- son, Ari Freyr Skúlason. Miðja: Arnór Sigurðsson (Kolbeinn Sigþórsson 56), Aron Einar Gunnarsson, Birkir Bjarna- son (Guðlaugur Victor Pálsson 84). Sókn: Jóhann Berg Guðmundsson (Arn- ór Ingvi Traustason 77), Jón Daði Böðv- arsson (Hólmbert Aron Friðjónsson 77), Albert Guðmundsson. Lið Armeníu: (4-4-2) Mark: David Jurc- henko. Vörn: Hovhannes Hambar- dzumjan, Varazdat Harojan, Taron Voskanjan, Kamo Hovhannisjan. Miðja: Tigran Barseghjan, Artak Grigorjan, Solomon Udo (Karen Muradjan 81), Ha- kob Hakobyan. Sókn: Sargis Adamjan (Zhirair Shagojan 81), Norberto Briasco (Aleksandre Karapetian 64). Gul spjöld: Ari Freyr 8., Sverrir Ingi 63., Harojan 67., Albert 68., Barseghjan 90. Dómari: Enea Jorgji, Albaníu Áhorfendur: 4.000 _ Ísland hefur tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í undankeppni í fyrsta sinn síðan árið 2010 er liðið tapaði gegn Noregi á Laugardalsvelli og svo Dan- mörku á Parken í undankeppni EM 2012. Þýskaland RN Löwen – Minden............................ 29:27 - Ýmir Örn Gíslason skoraði 1 mark fyrir Löwen. Flensburg – Kiel .................................. 31:28 - Alexander Petersson skoraði 1 mark fyr- ir Flensburg. Lemgo – Göppingen........................ Frestað - Bjarki Már Elísson leikur með Lemgo. - Gunnar Steinn Jónsson og Janus Daði Smárason eru leikmenn Göppingen. Ludwigshafen – Melsungen............... 27:30 - Arnar Freyr Arnarsson lék ekki með Melsungen. Guðmundur Þ. Guðmundsson er þjálfari liðsins. Erlangen – Bergischer ....................... 20:25 - Arnór Þór Gunnarsson skoraði 5 mörk fyrir Bergischer. Stuttgart – Magdeburg ...................... 22:32 - Viggó Kristjánsson skoraði 4 mörk fyrir Stuttgart. - Ómar Ingi Magnússon skoraði 9 mörk fyrir Magdeburg en Gísli Þorgeir Krist- jánsson er meiddur. _ Efstu lið: Flensburg 34, Magdeburg 34, Kiel 33, Rhein-Neckar Löwen 32, Göppin- gen 29, Bergischer 27, Füchse Berlin 27, Melsungen 23, Leipzig 23, Wetzlar 22, Er- langen 22, Stuttgart 21. Leverkusen – Neckarsulmer ............. 30:28 - Hildigunnur Einarsdóttir skoraði 2 mörk fyrir Leverkusen. B-deild: Bietigheim – N-Lübbecke .................. 24:29 - Aron Rafn Eðvarðsson varði 9 skot í marki Bietigheim. Gummersbach – Emsdetten............... 38:30 - Elliði Snær Viðarsson lék ekki með Gummersbach vegna meiðsla. Guðjón Val- ur Sigurðsson þjálfar liðið. Eisenach – Aue .................................... 24:24 - Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði 1 mark fyrir Aue. Sveinbjörn Pétursson varði 5 skot í marki liðsins. Rúnar Sig- tryggsson þjálfar Aue. Sachsen Zwickau – Waiblingen......... 32:20 Díana Dögg Magnúsdóttir skoraði 2 mörk fyrir Sachsen Zwickau. Spánn Valladolid – Barcelona................... Frestað - Aron Pálmarsson leikur með Barcelona Danmörk Skjern – Ribe-Esbjerg ........................ 34:31 - Elvar Örn Jónsson skoraði 3 mörk fyrir Skjern. - Rúnar Kárason skoraði 6 mörk fyrir Ribe-Esbjerg og Daníel Þór Ingason 1. GOG – Skanderborg............................ 34:34 - Viktor Gísli Hallgrímsson varði 6 skot í marki GOG. Bjerringbro/Silkeb. – SönderjyskE . 37:18 - Sveinn Jóhannsson skoraði ekki fyrir SönderjyskE. Pólland Kielce – Kwidzyn................................. 40:26 - Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 4 mörk fyrir Kielce en Haukur Þrastarson er frá keppni vegna meiðsla. Frakkland Chambéry – Aix............................... Frestað - Kristján Örn Kristjánsson er leikmaður Aix. Svíþjóð 8-liða úrslit, þriðji leikur: Sävehof – Guif...................................... 28:27 - Daníel Freyr Ágústsson varði 9 skot og skoraði 1 mark í marki Guif. _ Sävehof vann einvígið 3:0. Skövde – Alingsås ............................... 22:24 - Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði ekki fyrir Skövde. - Aron Dagur Pálsson var ekki í leik- mannahópi Alingsås. _ Staðan er 2:1 fyrir Skövde. Skara – Kristianstad........................... 36:16 - Andrea Jacobsen skoraði 2 mörk fyrir Kristianstad. _ Skara vann einvígið 3:0. Sviss Kadetten – Wacker Thun ................... 31:31 - Aðalsteinn Eyjólfsson þjálfar Kadetten sem er í öðru sæti deildarinnar. %$.62)0-# Spánn Tenerife – Valencia............................. 90:86 - Martin Hermannsson var ekki í leik- mannahópi Valencia vegna meiðsla. B-deild: Tizona Burgos – Girona ..................... 93:73 - Kári Jónsson skoraði átta stig, tók þrjú fráköst, gaf eina stoðsendingu og stal tveimur boltum á 18 mínútum hjá Girona. Þýskaland Braunschweig – Fraport.................... 80:68 - Jón Axel Guðmundsson gaf þrjár stoð- sendingar á 20 mínútum hjá Fraport. Litháen Nevezis – Siaulai ............................. Frestað - Elvar Már Friðriksson leikur með Siaulai. 4"5'*2)0-#

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.