Morgunblaðið - 29.03.2021, Blaðsíða 21
tíma í spjall og sögur frá barnæsk-
unni á Snæfellsnesi, vistinni í
Reykjavík, dvölinni í húsmæðra-
skólanum og þegar hún hitti afa
og flutti á Leirá. Einnig kenndi
hún mér að baka, prjóna og sauma
sauðskinnsskó sem hún lærði þeg-
ar hún var barn. Alltaf var nóg að
borða hjá ömmu og afa og oft hafði
hún áhyggjur af því að barnabörn-
in hennar borðuðu ekki nóg þrátt
fyrir að við stæðum á blístri.
Minnisstæðar eru óteljandi
stundir í kirkjugarðinum á Leirá
þar sem ástvinir okkar liggja. Þar
var lítið rætt um sorg og söknuð,
heldur góðar minningar. Henni
varð tíðrætt um hvernig pabbi var
sem barn og komst stundum við.
Oft sagði hún mér frá prakkara-
strikum barnanna sinna í gamla
daga og hló sig máttlausa að uppá-
tækjum minna barna. Einn dag-
inn rétti hún mér gamlan sjúkra-
kassa sem hún átti aukalega og
sagði: „Þú þarfnast þessa meira
en ég.“
Svo skellti hún upp úr.
Þegar hún varð níræð hætti
hún að fara í kirkjugarðinn og
sagði hlæjandi að hún væri orðin
svo löt. Þrátt fyrir heilsubrest
kvartaði amma lítið og horfði
heldur á björtu hliðarnar. Hún var
afar þakklát fyrir að geta prjónað,
ræktað grænmetið sitt og hafa
andlega heilsu. Amma var mikil
ræktunarkona og ræktaði tómata,
gúrkur, kartöflur og fleira af mikl-
um myndarskap.
Það er sjónarsviptir að ömmu
og hennar verður sárt saknað.
Eftir situr minning um hlýja, já-
kvæða og einstaka manneskju.
Hjartans þakkir fyrir sam-
fylgdina, elsku Ásta amma.
Margrét J. Reynisdóttir.
Elsku Ásta amma.
Þó að maður hafi getað átt von
á þessum fréttum um eitthvert
skeið þá er það alltaf skellur að
þurfa að venjast svona nýjum
raunveruleika. Já, það er skrítið
að eiga ekki lengur ömmu á Leirá.
Þú talaðir oft um hvað þú varst
stolt af okkur barnabörnunum, en
ég er líka innilega þakklát og stolt
yfir því að hafa átt þig sem ömmu.
Þú varst mikill dugnaðarforkur
með gott hjarta, sem lést afar fátt
slá þig út af laginu. Í gegnum lífið
og á erfiðum tímum sýndir þú best
það æðruleysi og jákvæða hugar-
far sem við þurfum á að halda til
að komast yfir smáar jafnt sem
stórar hindranir lífsins, því sama
hvað á dynur þá heldur lífið
áfram. Þessi andlegi styrkur og
jákvætt viðhorf þitt til lífsins hélt
þér svo gangandi á meðan síðustu
kraftar líkamans báru þig uppi, og
með ótrúlegum kjarki, dugnaði og
viljastyrk náðir þú að halda heim-
ili á sveitabænum næstum því til
æviloka. Mér er minnisstætt þeg-
ar ég og Bryndís systir komum í
heimsókn fyrir nokkru og höfðum
í för með okkur áburð á kartöflu-
garðinn sem þú hafðir beðið okkur
um að kaupa fyrir þig. Þú tókst
það hins vegar ekki í mál að við
myndum bera á garðinn fyrir þig,
heldur gekkst sjálf með göngu-
grindina niður torfæra brekkuna
og studdir þig svo við hana meðan
þú barst á garðinn. Það voru
svona augnablik sem gerðu mann
hálforðlausan.
Síðan Kiddi afi dó hefur hann
stundum kíkt við hjá mér í draum-
um. Ég hlakkaði alltaf til að segja
þér frá þessum draumum því ég
sá að þér þótti vænt um að heyra
þá. Fyrir skömmu dreymdi mig
svo að ég var á gangi í kvöldsólinni
á túninu fyrir framan húsið ykkar,
og sá að sumargolan feykti
stórum gardínunum til og frá.
Þegar ég kom nær sá ég þig sitj-
andi fyrir innan þar sem þú horfð-
ir á sólsetrið, og á stólbríkina hafði
Kiddi afi tyllt sér og hvíldi hend-
urnar á herðum þér. Þið virtust
svo friðsæl og glöð og mér varð
svo hlýtt að horfa til ykkar. Elsku
amma, ég óska þess svo innilega
að í þessum draumi búi einhver
sannleikur, og að nú sértu með afa
og Reyni á góðum stað.
Takk fyrir allar samveru-
stundirnar og minningarnar sem
fá nú að lifa í hjarta mínu, og auð-
vitað allar peysurnar sem þú
prjónaðir og fötin sem þú saum-
aðir, takk fyrir allt. Blessuð sé
minning þín elsku Ásta amma
mín.
Þitt ömmubarn,
Anna Marín.
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. MARS 2021
„Sandó“-„Lansó“ og United
bar oft á góma í spjalli okkar sl.
ár. Guðjón kastaði þessu oft
fram og bar hann mikinn hlýhug
til þessara orða. Fyrst skildi ég
ekki alveg hvað „Sandó“ var, en
var fljótur að átta mig á að hann
dýrkaði heimabæ sinn. Á
„Lansó“ dvaldi hann reglulega,
og þá á barnaspítalanum og
þrátt fyrir að vera kominn á
„aldur“ til að færa sig yfir á aðra
deild fékk hann undanþágu til að
dvelja þar sem aldursforseti.
Guðjón var afar þakklátur,
dásamaði starfsfólkið hástöfum
og talaði um dvöl sína þar eins
og
hann væri á 5 stjörnu hóteli.
Guðjóni var afar skemmt er ein
hjúkkan hugðist lauma hundin-
um hans inn á deildina gegn öll-
um reglum og fannst honum það
vera alveg meiri háttar að fá
hundinn sinn í heimsókn…sem
að vísu svaf mestalla heimsókn-
ina.
Þau voru nokkur höggin sem
Guðjón Elí
Bragason
✝
Guðjón Elí
Bragason
fæddist 13. júní
2002. Hann lést á
Barnaspítala
Hringsins 19. mars
2021.
Guðjón Elí var
sonur Braga Guð-
jónssonar og Jó-
hönnu Maríu
Ævarsdóttur.
Bróðir hans var
Elfar Máni Bragason.
Útförin fer fram frá
Sandgerðiskirkju 29. mars 2021
klukkan 13.
Streymt verður frá útför,
stytt slóð:
https://tinyurl.com/nz8w3wy6
Virkan hlekk á slóð má finna
á:
https://www.mbl.is/andlat
Guðjóni tókst að
skjóta á mig vegna
gengis minna
manna í Liverpool,
er allt virtist ganga
upp hjá United.
Gallharður United-
maður og sárlasinn
sendi hann mér
skilaboð í einum af
mörgum tapleikjum
okkar sl. vikur.
„Það er nú alveg
hægt að hressa sig við að horfa á
þennan leik,“ og tók skjáskot af
sjónvarpinu þar sem Liverpool
var að tapa nokkuð stórt. En
þessu fylgdi engin alvara því
Guðjón var allra, og vildi öllum
vel.
Ofarlega í minni eru allar þær
heimsóknir er hann kom í sauna
til okkar feðga, þar sem við
borðuðum saman og spjölluðum.
Drukkum helling af sódavatni og
stigum út til að kíkja á stjörn-
urnar eða norðurljósin.
Guðjón var fróðleiksfús og
spurði oft hnitmiðaðra spurn-
inga og má þar nefna fasteigna-
kaup, leigumarkaðinn og fjár-
festingar. Þá hafði hann mikinn
áhuga á innanhússhönnun, arkí-
tektúr og sköpun. Guðjón var
fullur tilhlökkunar en móðir
hans hafði keypt nýtt húsnæði
og var hann uppnuminn af að
skipuleggja og hanna útisvæðið.
Jákvæðari einstakling hef ég
aldrei áður hitt á mínum 50 ára
lífsferli, en 15. mars sl. átti ég
stórafmæli, og er klukkan var
gengin yfir miðnætti hringir
Guðjón, og sagðist ekki hafa
kunnað við að hringja á afmæl-
isdeginum og trufla mig. En
glaður sagði ég honum að símtal
hans hafi verið besta afmælis-
gjöf sem ég hefði getað fengið!
Guðjóni var tíðrætt um
hversu gott bakland hann hafði
frá ömmum sínum og öfum.
Hann var afar stoltur af for-
eldrum sínum sem sinntu honum
af mikilli alúð og kærleika í
gegnum veikindin. Þá var hann
fullur tilhlökkunar að fylgjast
með bróður sínum í boltanum í
framtíðinni.
Þrátt fyrir alvarleg veikindi
kvartaði Guðjón aldrei. Hjarta-
lag hans var með þeim hætti að
maður fylltist hlýju og kærleika
við að ræða við hann. Þá var
hann mjög stoltur af fjölskyldu
sinni og „Sandó“ og þar var sko
best að búa. Ég fann vel fyrir
þessu og enn betur er ég fór á
rúntinn daginn eftir að Guðjón
kvaddi og sá að allir bæjarbúar
sem eiga flaggstöng höfðu flagg-
að til minningar um elsku Guð-
jón. Einnig var flaggað víðs veg-
ar í Keflavík og segir það margt
um hvaða dreng Guðjón hafði að
geyma. Traustur drengur með
fallegt hjarta og tæra sál.
Stórt skarð er rofið í „Sandó“-
samfélagið. Ég er afskaplega
þakklátur fyrir að hafa kynnst
Guðjóni Eli, hlýju hans og kær-
leika sem ég mun kappkosta að
hafa að leiðarljósi um ókomna
framtíð. Að endingu vil ég
kveðja með einni af setningum
Guðjóns; „takk fyrir, sjáumst
soon“. Fjölskyldu Guðjóns, ætt-
ingjum, vinum og öllum í
„Sandó“ sendi ég mínar dýpstu
samúðarkveðjur.
Gunnar Már Másson.
Meira á www.mbl.is/andlat
Sorgin liggur yfir Suðurnesj-
unum! Hvarvetna er flaggað í
hálfa stöng til minningar um ein-
stakan dreng sem kvaddi okkur
allt of snemma. Guðjón Elí bjó
yfir öllu því sem ungur maður
þarf að hafa til að ná langt og
njóta lífsins. Frábæra fjölskyldu,
góða vini en það sem ég kunni
alltaf svo vel að meta var hans
einstaka lundarfar og gleði sem
smitaði hvert sem hann fór. Já-
kvæðari manneskju hef ég ekki
fyrir hitt. Þrátt fyrir alvarlegt
krabbamein leit hann aldrei á
sig sem veikan. Þetta var bara
verkefni sem hann ætlaði með
þrautseigju að komast yfir. Guð-
jón hafði fulla trú á að hann
myndi sigra þetta stríð alveg til
þeirrar stundar er líkami hans
gafst upp. Ég get ekki annað en
grátið þegar ég hugsa til Guð-
jóns og gæðastundanna sem við
áttum saman í skólanum, á
heimili okkar feðga eða þegar
við fengum að heimsækja hann á
spítalann. Ég fékk þann heiður
að taka viðtal við Guðjón sl. nóv-
ember þegar hann kom í viðtal
til okkar á Útvarp Sögu en þátt-
inn má finna á helstu hlaðvarps-
veitum undir nafninu Guðjón
Elí. Þar fengum við innsýn í líf
hans og hvaða mann hann hafði
að geyma. Þótt sorg mín yfir
fráfalli góðs vinar sé gríðarleg er
hún eflaust lítil samanborið við
sorg fjölskyldu hans og vil ég
votta þeim samúð frá öllu mínu
hjarta. Ég er þakklátur fyrir að
hafa þekkt Guðjón og fyrir allt
sem hann kenndi mér. Ég mun
sakna og minnast Guðjóns hvert
sem ég fer um alla og ókomna
tíð. Góða ferð elsku besti dýr-
mæti Guðjón Elí.
Már Gunnarsson.
✝
Valgerður
Ólafsdóttir frá
Stakkadal, Rauða-
sandi, f. 21.06. 35,
d. 19.03. 21.
Valgerður var
dóttir hjónanna
Önnu Guðrúnar
Torfadóttur, f.
06.12. 1894, d.
21.03. 1965, frá
Kollsvík og Ólafs
Hermanns Einars-
sonar, f. 27.12. 1891, d. 25.05.
1936, frá Stakkadal á Rauða-
sandi.
Systkini Valgerðar voru
Torfi, f. 1919, Guðbjörg Ólína, f.
1921, Eín Erna, f. 1925, Hall-
dóra Guðrún, f. 1929, María, f.
1931, og Kristín, f. 1933, þau eru
öll látin.
Valgerður giftist Sigurði
Magnússyni rafvirkjameistara
en þau slitu samvistir. Börn Val-
gerðar og Sigurðar eru Magnús
rafvirkjameistari, f. 1953,
kvæntur Kristínu B.K. Michel-
sen skrifstofu-
stjóra, þeirra börn
eru 4 og barna-
börnin 4. Anna
Guðrún lífeinda-
fræðingur, f. 1956,
gift Ólafi B. Guðna-
syni þýðanda,
þeirra börn eru 3
og barnabörnin 4.
Sigríður kennari, f.
1957, hennar börn
eru 2 og barna-
börnin 2. Halldór lyftusérfr., f.
1963, kvæntur Maríu Lorenu,
þau eiga 2 dætur, áður átti Hall-
dór 2 syni, barnsmóðir hans er
Ólöf Eðvarðsdóttir. Esther hár-
greiðslumeistari, f. 1966, hún á
2 börn. Valgerður giftist Arnóri
Ólafssyni en þau slitu samvistir.
Valgerður var húsmóðir á stóru
heimili en seinni hluta starfsævi
sinnar vann hún í Sólarfilmu eða
þar til hún lét af störfum vegna
aldurs.
Útförin fer fram í Laugarnes-
kirkju 29. mars 2021 kl. 13.
Tengdamóðir mín, Valgerður
Ólafsdóttir, er nú látin, 85 ára að
aldri, eftir langa glímu við óvæg-
inn sjúkdóm. Valgerður var tví-
gift, fimm barna móðir, en líf þess-
arar glaðværu hláturmildu konu
æxlaðist þannig að hún þurfti
löngum að standa ein og treysta á
sjálfa sig. Síðustu árin þjáðist hún
af sjúkdómi, sem hún lýsti einu
sinni fyrir mér þannig, að hann
væri eins og myrkur. Sjúkdómur-
inn lagðist sífellt þyngra á hana og
að lokum fór svo, að hún þurfti að
reiða sig á aðra.
Þrátt fyrir erfiðleikana sem
einkenndu síðustu ár hennar
minnist ég Valgerðar einkum
fyrir það hve gjarna hún vildi
gleðjast. Það rifjast upp fyrir
mér, að við Anna fórum með Val-
gerði á æskuslóðir hennar á
Rauðasandi, fyrir fáeinum árum.
Minnið var þá farið að bregðast
henni stundum, um fólk, atburði
og staði, og öll vissum við að af
því yrði enginn bati. En þegar
kom á Rauðasand, þar sem bær-
inn í Stakkadal hafði staðið,
mundi hún allt. Hún mundi eftir
fólki, atburðum og staðháttum.
Hún rifjaði upp leiki sem hún
hafði leikið sem barn og sagði frá
skemmtilegum jafnöldrum af
öðrum bæjum. Og hún settist á
stóran, flatan stein nærri bæjar-
tóftunum og lýsti því hvernig þar
hefði verið borið fram kaffi, á sól-
ríkum dögum. Af lýsingu hennar
á veðurfari á Rauðasandi mátti
ætla að kaffi hefði verið drukkið
við steininn flesta daga. Og þeg-
ar hún sagði frá þessu öllu brosti
hún og hló og var eins og hún
hafði verið.
Við Valgerður kynntumst fyrir
um það bil hálfum mannsaldri,
þegar ég fór að venja komur mín-
ar á heimili hennar, til þess að
hitta elstu dótturina. Öll þau ár
sem síðan hafa liðið bar aldrei
skugga á okkar samband. Hún
var góðhjörtuð, glaðlynd og ákaf-
lega barngóð. Hún var börnum
sínum góð móðir og sinnti hlut-
verki ömmu og langömmu af sér-
stakri ánægju, ákaflega stolt af
öllum sínum afkomendum. Síð-
ustu æviár hennar sýna glöggt
hversu mikilvægar minningar eru
fyrir lífsgæði. Það verður gott fyr-
ir þá, sem þekktu hana, að minn-
ast hennar.
Ólafur B. Guðnason.
Valgerður, föðursystir mín, var
yngst sjö systkina og var yfirleitt
kölluð Valla. Hún var aðeins á
fyrsta ári er hún missti föður sinn,
en elstur þeirra systkina var faðir
minn, þá sautján ára. Það mun
vafalaust hafa verið erfitt að hefja
líf sitt föðurlaus í afskekktum
kotbæ vestur á Rauðasandi árið
1935. Á móti kom að Anna, móðir
Völlu, var afskaplega dugleg kona
og einstaklega ljúf og góð í allri
umgengni. Ekki var verra að
Valla átti fimm eldri systur,
hverja annarri betri og svo stóra
bróður sem að vísu hvarf henni í
skóla í Reykjavík er Valla var
fimm ára.
Valla var gift Sigurði Magnús-
syni rafvirkja og leigðu þau eitt
sumar hús á Látrum við Látra-
bjarg. Meðan Siggi var við vinnu í
Breiðuvík var Valla með börn sín í
sveitasælunni á Látrum og fékk
ég að vera þar með þeim þá um
sumarið. Þetta var gott sumar og
sólríkt, ströndin steinsnar frá
bæjunum sem allir stóðu í einum
hnapp og nóg var af krökkum til
að leika við. Þar fellur hafaldan á
sandinn, nýkomin að sunnan og
vísast er ungum fótum að hætta
sér ekki of langt út í sjóinn, því að-
djúpt er við ströndina. Frá Látr-
um á ég góðar minningar að hafa í
farteskinu.
Er faðir minn og móðir skildu
kom Anna amma honum til að-
stoðar og tók að sér að baka fyrir
hann og synina, enda fátt nauð-
synlegra drengjum á unglings-
aldri en hafa greiðan aðgang að
góðum kökum. Amma bjó þá hjá
Völlu á Hofteigi og er ekki ólíklegt
að hún hafi rétt gömlu konunni
hjálparhönd við að dekra soninn.
Þetta voru sæludagar sem entust
mörg ár.
Valla var yngst systkinanna,
sem eru nú öll látin, og með henni
er nú horfinn gluggi inn í veröld
Rauðasandsfjölskyldunnar, ver-
öld fátæktar sem við getum á eng-
an hátt skilið, veröld þar sem að-
eins kom til greina einn flokkur í
kosningum og þar sem kaupfélag-
ið sá um allt nema ef til vill messur
á sunnudögum.
Ég minnist Völlu, föðursystur
minnar, með hlýju og þakklæti.
Við vottum afkomendum hennar
okkar dýpstu samúð og um leið
þökkum áratuga velvild og vin-
áttu.
Helgi Torfason og
Ella B. Bjarnarson.
Valgerður
Ólafsdóttir
áttuð mörg góð ár saman. Mér
fannst erfitt þegar afi dó að vita að
þú hefðir ekki lengur félagsskap
hans, en þú varst samt alltaf kát og
glöð.
Þegar ég var á unglingsárunum
bjuggum við fjölskyldan í næsta
húsi í Fossvoginum og það var svo
ótrúlega gott að vita af ykkur þar.
Ef eitthvað merkilegt bar upp á
hjá mér í skólanum fór ég beint
heim til ykkar eftir skóla, fékk
kókglas og kex og við fórum sam-
an yfir málin. Það var eiginlega
ómetanlegt að hafa ykkur þarna
og þetta eru mér kærar minning-
ar. Eitt sinn vann ég skólahlaup
og það fyrsta sem ég gerði var að
fara heim til ykkar afa að sýna
ykkur bikarinn og þið voruð svo
ánægð og stolt af mér.
Þú áttir alltaf kók því þú vildir
dekra við okkur barnabörnin þeg-
ar við komum í heimsókn og þú
hafðir svo mikinn áhuga á öllu sem
við vorum að gera og líka áhyggj-
ur þegar við vorum t.d. að ferðast,
en það var eitthvað svo hlýlegt að
vita af því. Þegar ég bjó hjá ykkur
í kjallaranum um tíma lést þú
setja upp dyrabjöllu sem var
þannig að við gátum hringt á milli
og á hverjum degi töluðum við
saman og fórum yfir daginn.
Elsku amma mín, ég mun
sakna þín og ég er ótrúlega þakk-
lát fyrir að hafa haft þig í lífi mínu
og barna minna.
Hjördís Ýr Ólafsdóttir.
Elsku amma Dedda.
Þegar ég hugsa til þín sé ég þig
ljóslifandi inni í eldhúsi í Snæland-
inu með svuntuna á þér að hella
kóki í sætu Mikka-músar-glösin. Í
minningunni ertu alltaf brosandi
og það var alltaf svo stutt í hlátur
og gleði. Hjá þér var alltaf hlýlegt
andrúmsloft, nóg til af kökum og
því alltaf hægt að næla sér í eitt-
hvað gott. Þér fylgdi svo góð orka.
Þú varst alltaf svo áhugasöm og
forvitin um fólkið þitt og tókst öll-
um fagnandi. Það eiga ekki allir
ömmu á tíræðisaldri sem tekur vel
á móti barnabarni sínu sem kemur
út úr skápnum en ég upplifði aldr-
ei annað en væntumþykju og
stuðning frá ykkur afa. Alls konar
minningar um þig og stundir okk-
ar saman koma til mín þegar ég
hugsa til baka. Ég er þakklát fyrir
þann tíma og þakklát fyrir að
börnin mín hafi fengið að kynnast
þér og átt góðar stundir með þér.
Þegar ég var 12 ára gömul
dvaldi ég hjá þér og afa hluta úr
sumri og fékk að upplifa það að
búa hjá ykkur. Vissulega var
margt sem ég á þeim aldri hafði
ekkert sérlega mikinn áhuga á,
KR-leikir, allir fréttatímarnir og
svo auðvitað golf í sjónvarpinu.
Mikið fór samt vel um mig og
ávallt leið mér vel hjá ykkur. Við
keyrðum saman frá Akureyri til
Reykjavíkur og ferðuðumst sam-
an til Hríseyjar, við spiluðum og
tókum þátt í öllum leikjunum sem
afi bjó til. Þú bjóst alltaf til mat í
hádeginu og hugsaðir svo vel um
okkur öll. Þú straujaðir allan þvott
og nánast nærbuxurnar af öllum
líka! Mig langar að segja takk, því
þitt hlutverk snerist að miklu leyti
um aðra, líkt og ættmæður tengja
sennilega margar við. Takk fyrir
allt sem þú gerðir fyrir okkur öll.
Elsku amma, takk fyrir allar
stundirnar okkar saman, hvíldu í
friði.
Þín dótturdóttir,
Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir.
- Fleiri minningargreinar
um Sigurást Indriðadótt-
ur bíða birtingar og munu
birtast í blaðinu næstu daga.
Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla
útgáfudaga.
Óheimilt er að taka efni úr minningargreinum til birtingar í
öðrum miðlum nema að fengnu samþykki.
Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í
hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Minningargreinar