Morgunblaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 Fabrikkusmáréttir í fermingarveisluna HEITIR VÆNGIR Heitir kjúklingavængir (Hot wings) (1 kg.) Bornir frammeð gráðostasósu og hotwings sósu. BBQVÆNGIR BBQ kjúklingavængir (1 kg.) Bornir frammeð hvítlaukssósu og BBQ sósu. WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575 ÞÚ PANTAR - VIÐ GRILLUM - ÞÚ SÆKIR Hún fór í hárgreiðslu og í förðun fyrir ferminguna sína. Ljósmynd/Heida HB K atrín Katla Guðmundsdóttir á góðar minningar frá fermingardegi sínum. Hún segir æðislegt að eiga einn dag þar sem allt snýst um mann sjálfan og segir að þá þurfi maður bara að kunna að njóta sín. Hún fermdist í Neskirkju þann 6. september árið 2020. „Fermingin var æðisleg, en ætli mér hafi ekki samt fundist veislan skemmtilegust. Við vorum með veisluna heima og það voru kannski ekki alveg nógu margir sem mættu, en það var vegna faraldurs- ins.“ Bauð upp á góðar kökur Hvað var boðið upp á í veislunni? „Það var bara allt á boðstólum sem er uppáhaldsmaturinn minn. Hamborgarar, franskar og síðan góðar kökur.“ Katrín Katla segir að það hafi ekki verið tónlistaratriði eða skemmtiatriði í veislunni, en að samveran hafi verið mjög góð og allir hafi talað saman. „Svo fór ég í förðun og hárgreiðslu sem var mjög skemmti- legt að upplifa. Ég fór í myndatöku og gerði allt sem maður gerir á draumadeginum sínum.“ Hvar keyptir þú fermingarkjólinn? „Við keyptum hann í Gallerí 17.“ Fallegir skartgripir gleðja Hvað er á óskalista fermingarbarna um þessar mundir? „Ég held að við kunnum öll að meta að fá peninga og skartgripi, svo fékk ég líka tölvu sem ég var mjög ánægð með. Skartgripirnir sem ég er hrifin af eru nettir skartgripir bæði úr silfri og úr gulli.“ Það sem Katrín Katla kann hvað mest að meta frá veisl- unni í fyrra var að hitta fjölskyldu sína og vini. „Já, ætli það sé ekki ráðið sem mig langar að gefa ferming- arbörnum á þessu ári; bara að njóta dagsins og að hafa gam- an með fjölskyldunni, svona loksins þegar maður hefur tök á að hitta alla aftur.“ Hefur áhuga á fimleikum Katrín Katla segir ekki eitthvað eitt standa upp úr þegar kemur að fermingarfræðslunni, nema bara að kristin trú er áhugaverð og án efa gott að hafa Guð með sér í liði í lífinu. Hún hefur mikinn áhuga á fimleikum sem hún æfir og veit síðan fátt skemmtilegra en að vera með vinum sínum á milli æfinga. Hún er ánægð með félagslífið í Hagaskóla og getur hik- laust mælt með þeim skóla fyrir alla. Katrín Katla Guðmundsdóttir er í Hagaskóla og fermdist í fyrra í Nes- kirkju. Hún segir að allir hennar draumar hafi ræst á fermingardaginn. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Þegar dag- urinn snýst um ferm- ingarbarnið Katrín Katla keypti fermingarkjólinn í Gallerí 17.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.