Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 20
„Það er búið að vera mjög mikið að gera síðan við opn-
uðum í júlí og ákváðum við að fara í viku frí fyrir næstu
törn. Þegar maður er að byrja með fyrirtæki og með fáa
starfsmenn er mikilvægt að muna að passa upp á sjálfan
sig. Ég verð að viðurkenna að ég hef aðeins gleymt því
svo ég hlakka til þess að hvíla mig og fara í frí.“
Með hverju mælir þú í fermingarveisluna?
„Ég get mælt með svo mörgu. Marengs og brownies-
tafir eru geggjaðir á veisluborðið, kleinuhringir, veislu-
bakkar og svo auðvitað góðar súkkulaðikökur. Það sem
slær líka alltaf í gegn eru pönnukökur. Þær hverfa alltaf
af borðinu strax ásamt heitum réttum.“
Hvernig kökur eru vinsælar núna?
„Vinsælast í kökunum þessa dagana er súkkulaðikaka
með þristamús, marengs og browniestafirnir.“
Eru kökur að verða meira eins og skreytingar?
„Já, ég myndi segja það. Fólk er mjög mikið að hugsa
um heildarútlitið á veisluborðinu. Það tekur kannski
köku og staf í stíl og hefur blómaskreytingar á kökunum
og borða í sama litaþemanu.“
Gott ráð að vinna með
frosna kökubotna
Sylvía segir sykurmassann
vera að minnka tölvert í eftir-
spurn og nú sækist fólk meira
eftir kökum með kremi í lit
og er þá sykurmassinn meira
notaðar í skreytingarnar í dag.
„„Rustic“ kökur með lif-
andi blómum eru vinsælar.
Síðan er gull, silfur eða
rósagull notað með til að
setja punktinn yfir i-ið.“
Áttu gott ráð fyrir þá sem vilja prófa sig áfram
með kökur?
„Ég mæli alltaf með því að vinna með frosna
kökubotna. Þá er þægilegra að setja utan um þá.
Það molnar ekki eins mikið úr þeim og kakan
er stöðugri þegar verið er að setja hana
saman. Svo er bara að prófa sig áfram.
Það er fullkomlega eðlilegt að kakan
verði ekki fullkomin í fyrstu tilraun.“
É
g á klárlega margar góðar minningar úr eld-
húsinu heima. Það eru mínar uppáhalds-
minningar. Núna vinn ég við að baka og finnst
einnig dásamlegt að baka heima hjá mér. Það
er ákveðin hugleiðsla fyrir mig að vera að
dúlla mér eitthvað í eldhúsinu.“
Sylvía er yngri systir Birgittu Haukdal söngkonu og
eru þær mjög nánar systur og vinkonur.
„Það eru níu ár á milli okkar þannig að ég man ekki
mikið eftir henni að syngja heima í stofu á meðan ég var í
eldhúsinu. Hins vegar var hún dugleg að leyfa mér að
koma og vera hjá sér þegar hún flutti suður.
Við eigum ótrúlega dýrmætt samband og er hún mín
besta vinkona. Við eigum dætur á sama aldri og eiga þær
líka ótrúlega fallega vináttu.“
Sylvía á dæturnar tvær með eiginmanni sínum Atla
Björgvinssyni.
„Fjölskyldulífið er mér mjög dýrmætt og ég er svo
þakklát fyrir fólkið mitt. Mér finnst starf mitt og heim-
ilislífið fara vel saman og hlakka til að halda áfram að
koma mér fyrir á kökumarkaðnum hér heima.“
Sylvía hefur unnið við að gera kökur hjá
Sætum syndum frá árinu 2015 eða þar
til hún ákvað að stofna sitt eigið fyrir-
tæki í fyrra.
Opnuðu kökubúð í miðjum faraldri
Það muna eflaust margir eftir henni
úr þáttunum Bakað með Sylvíu Haukdal á
Stöð 2.
„Við Eva Rós Sigurðardóttir opn-
uðum Bake Me A Wish í miðjum
kórónuveirufaraldri í fyrrasumar og
hafa viðtökurnar verið ótrúlegar. Við erum með litla
bleika og blómlega kökubúð og kaffihús í Iðnbúð 2 í
Garðabæ þar sem við erum með fullt af kökum, bollakök-
um, pestói, hrökkbitum og fleira. Svo erum við með sér-
pantanir þar sem hægt er að panta kökur, veislubakka,
kökupinna, marengs, browniestafi og ýmislegt fleira.“
Vinsælast að hafa veisluborðin stílhrein
Sylvía er þessa dagana að hvíla sig til að ná upp
orku fyrir fermingarnar sem senn fara af stað.
Opnaði kökubúð ímiðjum faraldri
Huggulegt og fallegt
í Bake Me a Wish.
Blómaskreytingar eru
vinsælar á kökum í dag.
Sylvía Haukdal, annar eigandi Bake Me A Wish Ísland, er menntaður
sætabrauðskokkur frá Le Cordon Bleu. Hún hefur alltaf elskað að baka og
eru hennar bestu minningar frá Húsavík með mömmu sinni í eldhúsinu.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Sylvía Haukdal er annar eig-
andi Bake Me a Wish. Hún
er menntaður sætabrauðs-
kokkur frá Le Cordon Bleu.
20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
STÓRI BÓ
Í dúnmjúku brauði
með beikoni,
bræddumHávarti
osti og Bó sósu.
Fabrikkusmá-
borgararnir
slá í gegn í
öllum veislum.
25 borgarar á
hverjum bakka!
7 gómsætar
tegundir í boði!
fe a
WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575
Ferköntuð
rmingarveisl
ÞÚ PANTAR - VIÐ GRILLUM - ÞÚ SÆKIR