Morgunblaðið - 12.03.2021, Síða 20

Morgunblaðið - 12.03.2021, Síða 20
„Það er búið að vera mjög mikið að gera síðan við opn- uðum í júlí og ákváðum við að fara í viku frí fyrir næstu törn. Þegar maður er að byrja með fyrirtæki og með fáa starfsmenn er mikilvægt að muna að passa upp á sjálfan sig. Ég verð að viðurkenna að ég hef aðeins gleymt því svo ég hlakka til þess að hvíla mig og fara í frí.“ Með hverju mælir þú í fermingarveisluna? „Ég get mælt með svo mörgu. Marengs og brownies- tafir eru geggjaðir á veisluborðið, kleinuhringir, veislu- bakkar og svo auðvitað góðar súkkulaðikökur. Það sem slær líka alltaf í gegn eru pönnukökur. Þær hverfa alltaf af borðinu strax ásamt heitum réttum.“ Hvernig kökur eru vinsælar núna? „Vinsælast í kökunum þessa dagana er súkkulaðikaka með þristamús, marengs og browniestafirnir.“ Eru kökur að verða meira eins og skreytingar? „Já, ég myndi segja það. Fólk er mjög mikið að hugsa um heildarútlitið á veisluborðinu. Það tekur kannski köku og staf í stíl og hefur blómaskreytingar á kökunum og borða í sama litaþemanu.“ Gott ráð að vinna með frosna kökubotna Sylvía segir sykurmassann vera að minnka tölvert í eftir- spurn og nú sækist fólk meira eftir kökum með kremi í lit og er þá sykurmassinn meira notaðar í skreytingarnar í dag. „„Rustic“ kökur með lif- andi blómum eru vinsælar. Síðan er gull, silfur eða rósagull notað með til að setja punktinn yfir i-ið.“ Áttu gott ráð fyrir þá sem vilja prófa sig áfram með kökur? „Ég mæli alltaf með því að vinna með frosna kökubotna. Þá er þægilegra að setja utan um þá. Það molnar ekki eins mikið úr þeim og kakan er stöðugri þegar verið er að setja hana saman. Svo er bara að prófa sig áfram. Það er fullkomlega eðlilegt að kakan verði ekki fullkomin í fyrstu tilraun.“ É g á klárlega margar góðar minningar úr eld- húsinu heima. Það eru mínar uppáhalds- minningar. Núna vinn ég við að baka og finnst einnig dásamlegt að baka heima hjá mér. Það er ákveðin hugleiðsla fyrir mig að vera að dúlla mér eitthvað í eldhúsinu.“ Sylvía er yngri systir Birgittu Haukdal söngkonu og eru þær mjög nánar systur og vinkonur. „Það eru níu ár á milli okkar þannig að ég man ekki mikið eftir henni að syngja heima í stofu á meðan ég var í eldhúsinu. Hins vegar var hún dugleg að leyfa mér að koma og vera hjá sér þegar hún flutti suður. Við eigum ótrúlega dýrmætt samband og er hún mín besta vinkona. Við eigum dætur á sama aldri og eiga þær líka ótrúlega fallega vináttu.“ Sylvía á dæturnar tvær með eiginmanni sínum Atla Björgvinssyni. „Fjölskyldulífið er mér mjög dýrmætt og ég er svo þakklát fyrir fólkið mitt. Mér finnst starf mitt og heim- ilislífið fara vel saman og hlakka til að halda áfram að koma mér fyrir á kökumarkaðnum hér heima.“ Sylvía hefur unnið við að gera kökur hjá Sætum syndum frá árinu 2015 eða þar til hún ákvað að stofna sitt eigið fyrir- tæki í fyrra. Opnuðu kökubúð í miðjum faraldri Það muna eflaust margir eftir henni úr þáttunum Bakað með Sylvíu Haukdal á Stöð 2. „Við Eva Rós Sigurðardóttir opn- uðum Bake Me A Wish í miðjum kórónuveirufaraldri í fyrrasumar og hafa viðtökurnar verið ótrúlegar. Við erum með litla bleika og blómlega kökubúð og kaffihús í Iðnbúð 2 í Garðabæ þar sem við erum með fullt af kökum, bollakök- um, pestói, hrökkbitum og fleira. Svo erum við með sér- pantanir þar sem hægt er að panta kökur, veislubakka, kökupinna, marengs, browniestafi og ýmislegt fleira.“ Vinsælast að hafa veisluborðin stílhrein Sylvía er þessa dagana að hvíla sig til að ná upp orku fyrir fermingarnar sem senn fara af stað. Opnaði kökubúð ímiðjum faraldri Huggulegt og fallegt í Bake Me a Wish. Blómaskreytingar eru vinsælar á kökum í dag. Sylvía Haukdal, annar eigandi Bake Me A Wish Ísland, er menntaður sætabrauðskokkur frá Le Cordon Bleu. Hún hefur alltaf elskað að baka og eru hennar bestu minningar frá Húsavík með mömmu sinni í eldhúsinu. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sylvía Haukdal er annar eig- andi Bake Me a Wish. Hún er menntaður sætabrauðs- kokkur frá Le Cordon Bleu. 20 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 STÓRI BÓ Í dúnmjúku brauði með beikoni, bræddumHávarti osti og Bó sósu. Fabrikkusmá- borgararnir slá í gegn í öllum veislum. 25 borgarar á hverjum bakka! 7 gómsætar tegundir í boði! fe a WWW.FABRIKKAN.IS PANTANIR Í SÍMA575 7575 Ferköntuð rmingarveisl ÞÚ PANTAR - VIÐ GRILLUM - ÞÚ SÆKIR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.