Morgunblaðið - 12.03.2021, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 12.03.2021, Qupperneq 42
Danska förðunarmerkið GOSH Copen- hagen er alltaf með puttana á púlsinum þegar förðunarvörur eru annars vegar og alltaf í takt við það sem er að gerast í snyrtivöruheiminum. Litapallettan Eye- dentity 002 Be Humble er mjög góð fyrir þá sem hafa nýlega hoppað upp á förð- unarvagninn. Um er að ræða litapallettu sem er í þremur litum í mismunandi tón- um, sem auðveldar fólki að búa til fallegt og ítarlegt útlit í kringum augun. Ljósi lit- urinn gengur vel rétt fyrir neðan auga- brúnina, miðliturinn er fullkominn fyrir augnlokið sjálft og dökkt er gott með- fram hnattlínunni. Með þessari ofurfínu pallettu hefurðu alltaf auðvelt verkfæri til að blanda fallegt útlit bæði hversdags og fyrir partí. Vörurnar frá GOSH njóta vinsælda því þær eru á góðu verði og fara vel með húðina. Litapalletta sem lífgar upp á fermingardaginn Litapallettan Eyedentity 002 Be Humble frá GOSH býður upp á marga möguleika. Velvet Touch Lipstick – 172 Angel frá GOSH er litrík- ur og fallegur án þess að vera eitthvað of mikið. Just Click It! er splunkunýr maskari frá GOSH. Burstinn þykkir og lengir augnhárin og gefur augnsvæðinu góða fyllingu. Fólk sem hefur prófað þenn- an maskara er þeirrar skoð- unar að þarna sé einstakur gripur á ferð og sá sami verði keyptur aftur. 42 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 D agmar Una, sölu- og markaðs- stjóri Dr. Hauschka á Íslandi, er menntaður jógakennari og reiki- heilari. Hún hefur alltaf haft óbil- andi áhuga á snyrtivörum og þá helst náttúrulegri og góðri húðrútínu. Þessa dagana er hún að undirbúa fermingu eldri sonar síns, Jóns Starkaðar. Hún segir að mörgu að huga þegar kemur að því að halda fermingu. Enda sé fermingardagurinn stór dagur. „Það er einnig mikið að gera í vinnunni en þessa dagana er Dr. Hauschka að koma með nýja línu sem heitir „Flower Power“ og er lín- an fyrir unga fólkið okkar. Línan samanstendur af léttum og fljótandi dagvökvum, Balancing Day Lotion, fyrir blandaða til feita húð og „Soothing Day Lotion“ fyrir þurra og viðkvæma húð. Svo fylgir þessari línu „Revitalizing Day Lotion“ sem hefur verið á markaðnum í mörg ár. Við erum erum mjög spennt fyrir þessari línu.“ Fermist 1. apríl á skírdag Fermingin verður haldin þann 1. apríl á skír- dag. Jóni Starkaði fannst þetta skemmtileg dagsetning og telur Dagmar Una dagsetn- inguna góða til að muna. „Fermingarveislan verður haldin á Petersen-svítunnni og verða snittur, pinnamatur og falleg fermingarkaka. Salurinn verður svo skreyttur í fallegu þema sem hæfir deginum. Við ætlum að hafa daginn afslappaðan en það má ekki myndast stress í kringum daga sem þennan. Þessi dagur á fyrst og fremst að vera skemmtilegur og eftir- minnilegur.“ Dagmar Una er þakklát fyrir að vera í lif- andi og skemmtilegri vinnu. „Vinnan hentar mér sérstaklega vel þar sem húðumhirða hefur lengi verið áhugamál hjá mér. Ég hef alltaf hugsað vel um húð mína og eingöngu notað náttúruleg gæðakrem. Ég man eftir því að ég las grein um Madonnu þegar ég var 15 ára gömul en þar talaði hún um Rósakremið frá Dr. Hauschka. Þá fór ég og keypti mér fyrsta lífræna kremið mitt og þá var ekki aftur snúið.“ Mikilvægt að hreinsa húðina Hvað ætlarðu að gera tengt húðinni fyrir ferminguna? „Kvöldið fyrir fermingardaginn nota ég leir- maska. Hann nota ég til að hreinsa húðina sem best en síðan nota ég rakamaskann „Cream Mask“. Hann nærir vel húðina og gerir hana gljáandi fallega. Fermingarbörnin geta einnig notað vörur sem eru með engin skaðleg efni í sér. Húðin er stærsta líffærið okkar og það sem þú setur á hana skilar sér margfalt til baka. Því er mikilvægt að vera meðvitaður um hreinar og vandaðar snyrtivörur.“ Hver er uppáhaldsrakinn þinn? „Uppáhaldsrakinn minn er „Soothing“- maskinn frá Dr. Hauschka en ég blanda honum daglega í dagkremið „Rose Light“ sem er létt og gott rakakrem en maskinn gefur mér fallega áferð og ljóma út daginn. Mikilvægur partur í húðrútínunni er hreinsun. Til þess að húðin verði sem fallegust þá kemur hreinsimjólk og hreinsikrem sterkt inn. Mild hreinsun er góður grunnur fyrir hreint og heilbrigt útlit húðarinnar. Það sem hefur komið mér einna mest á óvart er fitulausa húðumhirðan fyrir nóttina. Í stað þess að hindra eðlilega starfsemi húðarinnar með því að nota feit krem eftir hreinsun á kvöldin þá er húðin örvuð með andlitsvatni sem inniheldur styrkjandi og endurnýjandi kjarna- seyði úr jurtum, svo er gott að nota nærandi ol- íulaust næturserum sem hjálpar húðinni að anda og flýtir þannig fyrir endurnýjun hennar. Að nota fitulausa umhirðu fyrir nóttina eykur innra jafnvægi húðarinnar og örvar starfsemi hennar. Áhrifin koma fram í fögru, geislandi og heilbrigðu útliti. Til að viðhalda náttúrulegum, fallegum ljóma húðarinnar er nauðsynlegt að leyfa henni að anda á næturnar.“ Ef þú ætlar að hafa húð fermingardrengsins hreina og fallega á fermingardaginn, hvað ger- ir þú þá? „Ég myndi ganga úr skugga um að hann að hann þrifi húð sína vel bæði kvölds og morgna og setti á sig gott rakakrem. Einnig er hægt að bæta við brúnkudropum fyrir frísklegri lit.“ Langar að gleðjast með sem flestum Hvernig ætlið þið að vera klædd á fermingardaginn? „Jón Starkaður er mínimalískur þegar kem- ur að klæðaburði. Á fermingardaginn valdi hann sér flotta skyrtu og bindi og verður í snyrtilegum buxum og hvítum flottum striga- skóm. Hann vildi miklu frekar dýra og flotta takkaskó fyrir fótboltann enda algjör fótbolta- gaur. Ég er ekki enn búin að velja mér mitt dress en það sem er á óskalistanum er kjóll frá Hildi Yeoman.“ Dagmar Una segir engan á heimilinu kom- ast hjá því að hugsa um húðina. „Synir mínir segja oft: Mamma, er eitthvað sem þú átt ekki krem við?“ Jón Starkaður fermist í Fríkirkjunni og seg- ir hann fermingarfræðsluna þar skemmti- lega og lifandi. „Við tölum um Jesú og trúna sem er okkur svo kær en ég og Jón Starkaður erum mjög náin og hann veit að hann getur alltaf leitað til mín með hvað sem. Svo er- um við líka svo góðir vinir og tölum um allt milli him- ins og jarðar og erum bæði með svipaðan húmor og get- um því hæglega komið hvort öðru til að hlæja. Mér þykir það ótrúlega dýrmætur tími að skipu- leggja þennan dag með Jóni Starkaði og það mun skilja eftir fallegar minningar.“ Ætlið þið að bjóða mörgum í veisluna? „Það fer eftir kórónuveirunni. Eins og stað- an er í dag er fyrirhugað að hafa bara okkar nánustu; svo ég tel að það verði góðmennt en fámennt. Við leyfum okkur þó að dreyma um að tímabil kórónuveirunnar verði búið og við getum glaðst með sem flestum.“ „Mamma, er eitthvað sem þú átt ekki krem við?“ Dagmar Una Ólafsdóttir er að fara að ferma son sinn, Jón Starkarð, í vor og ætlar að nostra við húð sína og fjölskyldunnar fyrir fermingardaginn. Hún mælir með lífrænum vörum sem fermingarbörnin geta notað líka. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ljósmynd/Saga Sig Fermingarveisla Jóns Starkaðar verður haldin á Petersen-svítunni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.