Morgunblaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 fyrr en við komum í kirkjuna hversu margir táningar yrðu fermdir þennan dag en þau voru fimm talsins.“ Hún segir Önnu dóttur sína hafa treyst mömmu sinni fullkomlega þegar kom að kökunum. „Hún veit að ég er með puttann á púls- inum þegar kemur að kökum og köku- skreytingum.“ Hvað er í tísku tengt fermingarkökum núna? „Hvað viðkemur kökum eru kökur með svokölluðu „rustic lúkki“ og lifandi blómum vinsælastar. Fyrir nokkrum ár- um voru sykurmassaskreyttar kökur mjög í tísku og þá var skreytingin oft tengd áhugamálum fermingarbarnsins. Í kjölfar kórónuveirunnar varð allt einfald- ara og íburðarminna en afskaplega fal- legt í einfaldleika sínum.“ Erfitt að halda veislu í miðjum faraldri Hvernig var að halda upp á fermingu í miðjum faraldri? „Það var mjög „frústrerandi“ að reyna að halda og skipuleggja fermingu í miðjum heimsfaraldri. Í upphafi var maður þó alltaf frekar bjartsýnn á að þetta færi nú að verða búið en eftir að hafa þurft að fresta nokkrum sinnum og þrjár bylgjur kórónuveirunnar, þá varð maður bara að taka einn dag í einu. Við ákváðum að Anna myndi fermast þrátt fyrir að geta ekki haldið stóra veislu á þessum tíma.“ Arna Guðlaug segir að staðurinn þar sem fermingin er haldin, hafi mjög oft áhrif á hvaða veitingar verða fyrir valinu. „Þeir sem kjósa að halda veisluna í veislusal fá oft val um mismunandi rétti frá staðnum. Nú þarf maður oft að grípa tækifærið þegar það gefst og því erfitt að skipu- leggja langt fram í tímann. Kjúklingasúpa með ýmiss konar brauðmeti og svo einhvers konar sætabrauð á eft- ir er mjög vinsælt í fermingum um þessar mundir. Enda auðvelt að gera súpur með stuttum fyrirvara.“ Þurfum að vera sveigjanleg í dag Hún segir ómissandi að fara í ljósmyndatöku og leit- uðu þau til Heidu HB Photography. „Dagurinn var svo skemmtilegur og andrúmsloftið svo afslappað. Við fengum æðislega myndabók en við áttum í stökustu vandræðum með að velja myndirnar; þær voru allar svo fallegar. Anna var bæði í ferming- arkjólnum og í öðrum fallegum sumar kjól. Svo fékk Perla hundurinn okkar að vera með á nokkrum myndum jafnframt fékk hún smá einkamyndatöku. Við munum klárlega panta hjá Heidu HB aftur en næsta ferming hjá okkur verður árið 2022 ef allt gengur upp vegna kórónu- veirunnar. Í dag þarf maður að vera sveigjanlegri en oft áður. Þó að dagurinn í dag sé góður getur skjótt skipast veður í lofti og kórónuveiran stungið sér niður án fyrirvara. Ég held að sveigjanleiki sé orð dagsins fyrir ferming- arnar í ár.“ Á fermingadaginn var boðið upp á girnilega rétti. Lifandi blóm á girnilegri köku. Blómin í hár fermingarbarnsins voru keypt í Garðheimum. Ljósmynd/Heida HB Anna Guðlaug með hundinum Perlu. Arna Guðlaug var þakklát fyrir að fermingarkjólinn hafi passað loksins þegar hægt var að ferma. Upphaflega átti að ferma í apríl en ferm- ingin fór fram þann 23. ágúst í fyrra. „Það var mjög „frústrerandi“ að reyna að halda og skipuleggja fermingu í miðjum heimsfaraldri. Í upphafi var maður þó alltaf frekar bjartsýnn á að þetta færi nú að verða búið en eftir að hafa þurft að fresta nokkrum sinnum og þrjár bylgjur kórónuveirunnar, þá varð maður bara að taka einn dag í einu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.