Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 58
S
ara Björk Purkhús viðskiptafræðingur stofnaði Purkhús árið 2017.
Í fyrstu var fyrirtækið netverslun en nú er hún einnig með verslun.
Samhliða rekstrinum var hún í fullu starfi sem fyrirtækjaráðgjafi í
banka þangað til sumarið 2020 þegar hún ákvað að taka áhættu í
miðjum heimsfaraldri og segja upp vinnunni og einbeita sér að
fyrirtæki sínu. Hún opnaði verslun í Ármúla 40. „Þetta var nokkuð mikil
áhætta þar sem kærasti minn, Ágúst Orri, hafði nýlega misst vinnuna hjá Ice-
landair. Verslunin hefur stækkað hratt og vel undanfarna mánuði og fer versl-
unarrýmið í Ármúla 40 nánast að verða of lítið fljótlega.“
Hverju mælirðu með í skreytingar á þessu ári þegar kemur að fermingum?
„Ég mæli með fallegum litum og skreytingum sem eru ekki endilega „bara“
fermingarskreytingar, heldur hægt að nota í skreytingar fyrir fleiri tilefni eða
bara í skreytingu á heimilinu sjálfu. Það geta til dæmis verið þurrkuð blóm og
strá, greinar með fallegu skrauti á og falleg kerti í borðskreytinguna. Það er
alltaf gaman að sjá fallega dekkuð borð. Til dæmis fallegur dúkur, fallegir
kökudiskar, áhöld og föt undir veitingar, fallegar servíettur og fleira.“
Hrifin af snúnum kertum og þurrkuðum stráum
Er eitthvað sem þér finnst sérstaklega fallegt?
„Í borðskreytingu er ég sérstaklega hrifin af fallegum snúnum kertum og
þurrkuðum stráum.
Einnig finnst mér fallegt að skreyta greinar með alls konar fallegu skrauti,
til dæmis með fjaðrablómunum eða glerdropunum sem við seljum. Bæði
fjaðrablómin og glerdroparnir fást í ýmsum fallegum litum. Þessar vörur
bjóða upp á alls konar skemmtilega möguleika.“
Hvað er nýtt og fallegt þegar kemur að litum og skrauti?
„Pastelfjólublár og fleiri pastellitir eru áberandi núna. Mér finnst það ótrú-
lega skemmtilegt og er mjög hrifin af þessum fallegu litum. Annað sem er nýtt
en samt gamalt eru snúnu kertin. Þau hafa verið ótrúlega áberandi og vinsæl
undanfarna mánuði. Maður hefur heyrt marga segja að kertin minni þá á
„gamla daga“ þar sem kerti voru oft snúin hér áður fyrr. Nú fást snúnu kertin
hjá okkur í alls konar litum, stærðum og gerðum.“
Það er ákaflega margt sem Söru Björk þykir fallegt.
„Smekkur minn er mjög breiður. Ég elska hlýja og fallega jarðliti á sama
tíma og ég er að elska alla þessa pastelliti sem eru svo vinsælir núna. Bleikur
og grænn hafa líka alltaf verið ofarlega á listanum hjá mér.
Ég er líka mjög hrifin af öllu basti, hvort sem það eru ljós, smáhlutir eða
húsgögn. Bastið skapar svo mikla hlýju og kósí stemmingu.“
Tók áhættu
í miðjum
heimsfaraldri
Sara Björk Purkhús mælir með fallegum litum og skreytingum
í ferminguna sem hægt er að nýta á heimilinu eftir veisluna.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Falleg kerti geta
verið góð viðbót við
alls konar skraut.
Fjaðrir eru fallegar
á veisluborðið.
Sara Björk opnaði
verslun í miðjum
kórónuveirufaraldri.
58 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
✆ 471 2433 / Miðvangur 1-3 / 700 Egilsstaðir
Kíktu á
www.hushandanna. is
· á vegginn
· á kökuna
· á kertið
Verð frá
1.250 – 3.500.-
Trú
von &
kær
leikur
Sendum um
land allt