Morgunblaðið - 12.03.2021, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 12.03.2021, Qupperneq 58
S ara Björk Purkhús viðskiptafræðingur stofnaði Purkhús árið 2017. Í fyrstu var fyrirtækið netverslun en nú er hún einnig með verslun. Samhliða rekstrinum var hún í fullu starfi sem fyrirtækjaráðgjafi í banka þangað til sumarið 2020 þegar hún ákvað að taka áhættu í miðjum heimsfaraldri og segja upp vinnunni og einbeita sér að fyrirtæki sínu. Hún opnaði verslun í Ármúla 40. „Þetta var nokkuð mikil áhætta þar sem kærasti minn, Ágúst Orri, hafði nýlega misst vinnuna hjá Ice- landair. Verslunin hefur stækkað hratt og vel undanfarna mánuði og fer versl- unarrýmið í Ármúla 40 nánast að verða of lítið fljótlega.“ Hverju mælirðu með í skreytingar á þessu ári þegar kemur að fermingum? „Ég mæli með fallegum litum og skreytingum sem eru ekki endilega „bara“ fermingarskreytingar, heldur hægt að nota í skreytingar fyrir fleiri tilefni eða bara í skreytingu á heimilinu sjálfu. Það geta til dæmis verið þurrkuð blóm og strá, greinar með fallegu skrauti á og falleg kerti í borðskreytinguna. Það er alltaf gaman að sjá fallega dekkuð borð. Til dæmis fallegur dúkur, fallegir kökudiskar, áhöld og föt undir veitingar, fallegar servíettur og fleira.“ Hrifin af snúnum kertum og þurrkuðum stráum Er eitthvað sem þér finnst sérstaklega fallegt? „Í borðskreytingu er ég sérstaklega hrifin af fallegum snúnum kertum og þurrkuðum stráum. Einnig finnst mér fallegt að skreyta greinar með alls konar fallegu skrauti, til dæmis með fjaðrablómunum eða glerdropunum sem við seljum. Bæði fjaðrablómin og glerdroparnir fást í ýmsum fallegum litum. Þessar vörur bjóða upp á alls konar skemmtilega möguleika.“ Hvað er nýtt og fallegt þegar kemur að litum og skrauti? „Pastelfjólublár og fleiri pastellitir eru áberandi núna. Mér finnst það ótrú- lega skemmtilegt og er mjög hrifin af þessum fallegu litum. Annað sem er nýtt en samt gamalt eru snúnu kertin. Þau hafa verið ótrúlega áberandi og vinsæl undanfarna mánuði. Maður hefur heyrt marga segja að kertin minni þá á „gamla daga“ þar sem kerti voru oft snúin hér áður fyrr. Nú fást snúnu kertin hjá okkur í alls konar litum, stærðum og gerðum.“ Það er ákaflega margt sem Söru Björk þykir fallegt. „Smekkur minn er mjög breiður. Ég elska hlýja og fallega jarðliti á sama tíma og ég er að elska alla þessa pastelliti sem eru svo vinsælir núna. Bleikur og grænn hafa líka alltaf verið ofarlega á listanum hjá mér. Ég er líka mjög hrifin af öllu basti, hvort sem það eru ljós, smáhlutir eða húsgögn. Bastið skapar svo mikla hlýju og kósí stemmingu.“ Tók áhættu í miðjum heimsfaraldri Sara Björk Purkhús mælir með fallegum litum og skreytingum í ferminguna sem hægt er að nýta á heimilinu eftir veisluna. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Falleg kerti geta verið góð viðbót við alls konar skraut. Fjaðrir eru fallegar á veisluborðið. Sara Björk opnaði verslun í miðjum kórónuveirufaraldri. 58 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 ✆ 471 2433 / Miðvangur 1-3 / 700 Egilsstaðir Kíktu á www.hushandanna. is · á vegginn · á kökuna · á kertið Verð frá 1.250 – 3.500.- Trú von & kær leikur Sendum um land allt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.