Morgunblaðið - 12.03.2021, Side 62
Ljósmynd/María Rúnarsdóttir
Í
ár geta trú- og lífsskoðunarfélög
haft athafnir fyrir allt að 200
manns. Um veislur gilda þó aðrar
reglur. Nú má leyfa 50 einstaklingum
að koma saman. Börn fædd eftir
2005 eru undanskilin talningu og
einnig ættingjar og vinir sem vitað er
að hafi fengið kórónuveiruna. Sam-
kvæmt ráðleggingum embættis
landlæknis og almannavarna er gott
að hafa í huga eftirfarandi atriði:
' Skiptum veislugestum í hópa sem
eru innan fjöldatakmarkana og höld-
um aðskildar veislur fyrir hópana.
' Látum gesti vita um boðið með
góðum fyrirvara svo þeir hafi tækifæri
til að fara varlega dagana fyrir boðið.
' Verndum viðkvæma einstaklinga.
' Ef við finnum fyrir einkennum sem
bent geta til kórónuveirunnar er mik-
ilvægt að vera heima, fara í próf og
vera í einangrun þar til niðurstaða
liggur fyrir.
' Fylgjumst með þróun faraldursins
og takmörkunum og bregðumst við
ef þörf krefur.
' Sýnum varúð í ferðalögum milli
landshluta.
' Tryggjum nándarmörk og ein-
staklingsbundnar smitvarnir.
Veislan sjálf
' Höfum handspritt víða aðgengi-
legt í veislunni. Gætum vel að sótt-
vörnum og höfum handspritt á hlað-
borðinu.
' Geymum handabönd, faðmlög
og kossa til betri tíma.
' Hugum að loftræstingu og loftum
út meðan á boðinu stendur.
' Bjóðum upp á grímur ef gestir
kjósa, þvoum hendur og sprittum
okkur reglulega.
' Takmörkum sameiginlega snerti-
fleti og þrífum þá oft og reglulega.
' Notum grímu og þvoum okkur
reglulega um hendur á meðan við
útbúum matinn, berum hann fram
og göngum frá.
' Takmörkum fjölda fólks þar sem
maturinn er útbúinn og gengið er frá
eftir matinn.
' Takmörkuð notkun á sameigin-
legum áhöldum, svo sem tertuhníf-
um, kaffikönnum, mjólkurkönnum
og svo framvegis.
' Þvoum allt tau eftir hvert boð, svo
sem dúka og tauservíettur.
Covid.is
Fermingar á
veirutímum
Mikilvægt er að gæta að einstaklingsbundnum
sóttvörnum á fermingardaginn. Eftirfarandi atriði
er því mikilvægt að hafa í huga.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Harpa Heimisdóttir
sem var til fyrirmyndar
fyrir son sinn.
J
ökull Jónsson fermist hjá
Siðmennt 27. mars næst-
komandi. Jökull er spenntur
fyrir fermingunni og segir
að fermingarfræðslan hafi
gefið sér meiri færni í lífinu.
„Ég hef orðið betri í að leysa
vandamál eins og við tókum fyrir í
fræðslunni og lært heilan helling á
því.“
Jökull ætlar að mæta í
athöfnina og láta ferma sig.
„Síðan er ég að spila í
tveimur athöfnum daginn eftir.
Að þeim loknum ætlum við fjöl-
skyldan að bruna út á land, gista á
góðum stað og fá okkur gott að borða.
Ég reikna svo með að bjóða vinunum
í veislu við gott tækifæri. Ég ætla að
láta þessi veisluhöld duga.“
Jökull Jónsson er í níunda bekk í Haga-
skóla og ætlar að fermast hjá Siðmennt
núna í vor. Hann á ekki langt að sækja
tónlistarhæfileika sína en faðir hans er Jón
Ólafsson tónlistarmaður og móðir hans
Hildur Vala Einarsdóttir söngkona.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Jökull Jónsson
dreymir um að
verða tónlistamaður
í framtíðinni.
Samdi lag fyrir
Siðmennt
J
ón Ólafsson tónlist-
armaður segir það hafa
verið auðvelt og skemmti-
legt að fylgja Jökli eftir í
fermingarfræðslunni og
fræðslan sé alltaf skemmtileg lífs-
reynsla fyrir börnin okkar. „Ætli
aðalstuðningurinn við Jökul hafi
ekki verið að skutla honum í
fræðslutímana hjá Sið-
mennt. Mér finnst ferm-
ingarfræðslan hjá þeim
hafa vakið hann til umhugs-
unar um lífið og tilveruna,
sem er alltaf mjög gott fyrir
krakka á þessum aldri. Í raun
hefur Jökull alltaf verið að velta
upp hlutum um lífið og tilveruna;
„Mesti stuðningurinn að
skutla í fermingarfræðsluna“
Jón Ólafsson tónlistarmaður á soninn Jökul sem
mun fermast hjá Siðmennt á þessu ári. Jón segir
syninum líða vel að koma fram og hugsanlega sé
það eitthvað sem liggur í genum hans.
Elínrós Líndal elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Jón Ólafsson tón-
listarmaður er að
ferma á þessu ári.
62 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
VAGABOND PAUL
19.995.- / 3 LITIR
VAGABOND ZOE
19.995.- / 2 LITIR
S K Ó V E R S L U N
STEINAR WAAGE
FALLEGIR SKÓR FYRIR
FERMINGUNA