Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 64

Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 64
ég var með þá hugmynd að réttast væri fyrir kirkjuna að brenna sína lista yfir sóknarbörn og hefja trúboð og að einungis væru þeir skráðir sem óskuðu þess. Það hefði verið magnað átak og skilað fámennari en vonandi sterkari kirkju.“ Viktor er sáttur við ákvörðun Ástu um að fermast og segir hann undirbúninginn nú þegar hafinn. „Ásta og ég ætlum sjálf að gera mest af veit- ingunum fyrir veisluna. Ásta er mikill bakari auk þess sem hún er lipur við matseld. Við erum ekkert að fara að keppast við að hafa þessa veislu með einhverjum instagram-lífsstíls- matar-bloggara brag. Bara einfalt og gott. Brauðtertur, kransakaka, rjómatertur og svo eitthvað með asískum brag; salöt, vorrúllur, grillpinnar og annað sem Jintapat, systir Ástu, mun hjálpa okkur með.“ Hefur boðist til að aðstoða með förðunina „Ásta hefur ákveðnar skoðanir varðandi útlit- ið og hefur fyrir löngu valið sér hárgreiðslu. Ég V iktor Sveinsson er átta barna faðir sem býr einn með fjórum yngstu börnum sínum í Hveragerði. Fjöl- skyldan á einn kött og tíu hænur og fer vel um þau í bænum. Síðastliðin 25 ár hefur hann unnið við ferða- þjónustu en í dag vill hann titla sig heimavinn- andi húsföður. Hann á fimm dætur, þrjá syni og tvö barnabörn. „Það stóð aldrei til að Ásta myndi fermast. Ég hafði í raun unnið að því í mörg ár að Ásta færi ekki þessa hefðbundnu leið því hvorki ég né móðir hennar tilheyrðum kirkjunni og ég var persónulega ekkert heillaður af fermingum yfir- höfuð. Ég hafði reynt að styrkja ásetning Ástu um að fermast ekki með því að heita henni ferðalagi sem við tvö færum í á sama tíma og vinir hennar væru að fermast. Í mörg ár stefnd- um við að ferð til Parísar. Það var drauma- staður Ástu en svo féllum við fyrir sjónvarps- þáttaröðinni Anne with an E sem eru sömu sögur og þekkjast sem Anna frá Grænuhlíð og ákváðum að fermingarferðin hennar yrði til Prince Edward-eyju við austurströnd Kanada. Við vorum búin að plana flug til Boston og að fara svo akandi norður til Kanada og enda ferð- ina í Halifax þaðan sem flogið yrði heim. Vegna kórónuveirunnar hafa flest flug fallið niður og í raun er ómögulegt að plana nokkrar svona ferð- ir en vonandi breytist það í lok ársins.“ Fann ekki sinn stað í Þjóðkirkjunni Viktor segir að hann hafi ekki fundið sinn stað í Þjóðkirkjunni og því sagt sig úr henni fyr- ir rúmum 20 árum. „Fyrst og fremst vegna þess að ég tilheyrði engum félagsskap og fannst því rangt að ég væri skráður í alvarlegan og margslunginn félagsskap án þess að hafa valið það eða væri á nokkurn hátt að taka þátt í starfinu. Mér fannst ég í raun hafa sýnt kirkjunni virðingu með því láta afmá mig af þeirra listum, að listi sóknarbarna ætti að sýna hverjir í raun hefðu ákveðið að vera þar. Þetta var rétt fyrir 1.000 ára afmæli kristni á Íslandi og bauðst til að hjálpa henni með það og förðunina en hún tekur dræmt í þær tillögur svo við höfum bókað Jóhönnu, hárgreiðslukonu hjá Ópus hér í Hveragerði, til að greiða henni og mætir hún eldsnemma til hennar á fermingardaginn svo allt verði fullkomið. Við eigum ennþá eftir að finna út með förðunina. Ásta fermist á hvítasunnudag sem er 23. maí. Laugardaginn á undan eigum við eftir að vera á fullu að elda og undirbúa á Hjarðarbóli í Ölfusi þar sem veislan mun fara fram.“ Viktor segir að þótt hann reyni að ala dóttur sína upp þá fari hún sínar eigin leiðir. „Þessi ferill með Ástu, frá því að hún ætlaði ekki að fermast og til þess að hún skírist og síð- an fermist, hefur verið áhugaverður. Ég hef ekki verið henni auðveldur, vildi aldrei leyfa henni að ákveða svona stóra breytingu án þess að hugsa allt sem best, en um leið hef ég minnt mig á að leyfa henni að hafa lokaorðið því hún hefur þroska til að ákveða þetta sjálf.“ „Hún hefur þroska til að ákveða þetta sjálf“ Viktor Sveinsson er ekki í Þjóðkirkjunni en á dóttur sem er að ganga í gegnum skírn og fermingu núna í vor. Hann styður ákvörðun hennar og tekur þátt í undirbúningi af fullum krafti. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Viktor Sveinsson hefur starfað í ferða- þjónustunni lengi. 64 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 Á sta Sawang er fædd í Bangkok í Taílandi og ólst upp fyrstu 6 ár æv- innar þar í landi en lengst af í strandbænum Hua Hin. Ásta á sjö systkin og er hún fimmta í röðinni. Í dag býr hún í Hveragerði ásamt föður sínum og þremur yngri systk- inum, tveimur yngri bræðrum og litlu systur sem er sex ára. Upphaflega stóð ekki til að Ásta yrði fermd þar sem foreldrar hennar eru utan þjóðkirkju og móðir hennar búddisti. Það hafði verið sam- komulag hennar og pabba hennar að í stað fermingar færu þau tvö saman í fermingarferð sem var áætluð á slóðir Anne with an E/Önnu í Grænuhlíð um Prince Edward-eyju í Kanada. Engin hefð fyrir fermingu í fjölskyldunni „Þegar ég byrjaði í 8. bekk og allir fé- lagarnir voru að hefja fermingarundirbúning ákvað ég að vilja einnig fermast en þar sem engin hefð er fyrir því í kjarnafjölskyldunni og við pabbi með önnur áform var þetta ekki auð- fengið. Pabbi var ekki auðveldur viðureignar með þessa nýju hugmynd og krafðist þess að ég gerði skýrt upp hug minn gagnvart trú, Jesú Kristi og kirkjunni og ef ég væri ekki sannfærð um að eiga erindi í kirkjuna ætti ég að velja borgaralega ferm- ingu. Ég viðurkenni að þetta var oft erfitt, pabbi vildi ræða þessi mál meira en ég hafði áhuga á og í raun vildi ég að þetta væri eins sjálfsagt hjá mér og vinkonum mínum en auð- vitað er það ekki þannig því fjölskylda mín er einfaldlega öðruvísi og bakgrunnur okkar ekki alveg íslenskur. En auðvitað hefur sterk áhrif á svona ákvörðun að vilja fylgja vinum sínum og svo er ekkert verra að fá flotta veislu og fullt af gjöf- um.“ Ásta segir að pabbi hennar hafi komið á sér- stökum fundum með Ninnu Sif, sóknarprest- inum. „Á fundunum ræddum við þetta vel og hún hvatti mig líka til að fá borgaralega fermingu ef ég væri ekki sannfærð um trúna. Þannig að þetta hefur verið svolítið flókið hjá mér til dæmis vegna þess að ég þarf fyrst að skírast.“ Mikið að gera hjá Ástu um þessar mundir Ásta tók skírn þann 7. mars í almennri messu í Hveragerðiskirkju. Við vinnslu við- talsins var Ásta enn þá að undirbúa skírnina. „Við pabbi höfum farið og undirbúið okkur með Ninnu Sif, fengið tilsögn um hvernig at- höfnin fer fram og hvað ég þarf að kunna. Það verður sunginn sérstakur skírnarsálmur og ég á að staðfesta nafn mitt. Ég hef sjálf valið mér skírnarvottana og er það næstaelsta systir mín Jintapat og Auður frænka mín. Eftir skírnina ætlum við að hafa laufléttan „Vonandi fæst einhver annar en pabbi í að farðamig“ Ásta Sawang er að ganga í gegnum skírn og fermingu um þessar mundir. Hún hefur þurft að hafa fyrir því að fá að fermast, því hún kemur úr fjölskyldu sem er utan þjóðkirkjunnar. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Ásta var skírð á þessu ári og mun nú fermast með vinum sínum í Hveragerði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.