Morgunblaðið - 12.03.2021, Blaðsíða 64
ég var með þá hugmynd að réttast væri fyrir
kirkjuna að brenna sína lista yfir sóknarbörn og
hefja trúboð og að einungis væru þeir skráðir
sem óskuðu þess. Það hefði verið magnað átak og
skilað fámennari en vonandi sterkari kirkju.“
Viktor er sáttur við ákvörðun Ástu um að
fermast og segir hann undirbúninginn nú þegar
hafinn.
„Ásta og ég ætlum sjálf að gera mest af veit-
ingunum fyrir veisluna. Ásta er mikill bakari
auk þess sem hún er lipur við matseld. Við erum
ekkert að fara að keppast við að hafa þessa
veislu með einhverjum instagram-lífsstíls-
matar-bloggara brag. Bara einfalt og gott.
Brauðtertur, kransakaka, rjómatertur og svo
eitthvað með asískum brag; salöt, vorrúllur,
grillpinnar og annað sem Jintapat, systir Ástu,
mun hjálpa okkur með.“
Hefur boðist til að aðstoða með förðunina
„Ásta hefur ákveðnar skoðanir varðandi útlit-
ið og hefur fyrir löngu valið sér hárgreiðslu. Ég
V
iktor Sveinsson er átta barna faðir
sem býr einn með fjórum yngstu
börnum sínum í Hveragerði. Fjöl-
skyldan á einn kött og tíu hænur og
fer vel um þau í bænum.
Síðastliðin 25 ár hefur hann unnið við ferða-
þjónustu en í dag vill hann titla sig heimavinn-
andi húsföður. Hann á fimm dætur, þrjá syni og
tvö barnabörn.
„Það stóð aldrei til að Ásta myndi fermast.
Ég hafði í raun unnið að því í mörg ár að Ásta
færi ekki þessa hefðbundnu leið því hvorki ég né
móðir hennar tilheyrðum kirkjunni og ég var
persónulega ekkert heillaður af fermingum yfir-
höfuð. Ég hafði reynt að styrkja ásetning Ástu
um að fermast ekki með því að heita henni
ferðalagi sem við tvö færum í á sama tíma og
vinir hennar væru að fermast. Í mörg ár stefnd-
um við að ferð til Parísar. Það var drauma-
staður Ástu en svo féllum við fyrir sjónvarps-
þáttaröðinni Anne with an E sem eru sömu
sögur og þekkjast sem Anna frá Grænuhlíð og
ákváðum að fermingarferðin hennar yrði til
Prince Edward-eyju við austurströnd Kanada.
Við vorum búin að plana flug til Boston og að
fara svo akandi norður til Kanada og enda ferð-
ina í Halifax þaðan sem flogið yrði heim. Vegna
kórónuveirunnar hafa flest flug fallið niður og í
raun er ómögulegt að plana nokkrar svona ferð-
ir en vonandi breytist það í lok ársins.“
Fann ekki sinn stað í Þjóðkirkjunni
Viktor segir að hann hafi ekki fundið sinn
stað í Þjóðkirkjunni og því sagt sig úr henni fyr-
ir rúmum 20 árum.
„Fyrst og fremst vegna þess að ég tilheyrði
engum félagsskap og fannst því rangt að ég væri
skráður í alvarlegan og margslunginn félagsskap
án þess að hafa valið það eða væri á nokkurn hátt
að taka þátt í starfinu. Mér fannst ég í raun hafa
sýnt kirkjunni virðingu með því láta afmá mig af
þeirra listum, að listi sóknarbarna ætti að sýna
hverjir í raun hefðu ákveðið að vera þar. Þetta
var rétt fyrir 1.000 ára afmæli kristni á Íslandi og
bauðst til að hjálpa henni með það og förðunina
en hún tekur dræmt í þær tillögur svo við höfum
bókað Jóhönnu, hárgreiðslukonu hjá Ópus hér í
Hveragerði, til að greiða henni og mætir hún
eldsnemma til hennar á fermingardaginn svo
allt verði fullkomið. Við eigum ennþá eftir að
finna út með förðunina.
Ásta fermist á hvítasunnudag sem er 23. maí.
Laugardaginn á undan eigum við eftir að vera á
fullu að elda og undirbúa á Hjarðarbóli í Ölfusi
þar sem veislan mun fara fram.“
Viktor segir að þótt hann reyni að ala dóttur
sína upp þá fari hún sínar eigin leiðir.
„Þessi ferill með Ástu, frá því að hún ætlaði
ekki að fermast og til þess að hún skírist og síð-
an fermist, hefur verið áhugaverður. Ég hef
ekki verið henni auðveldur, vildi aldrei leyfa
henni að ákveða svona stóra breytingu án þess
að hugsa allt sem best, en um leið hef ég minnt
mig á að leyfa henni að hafa lokaorðið því hún
hefur þroska til að ákveða þetta sjálf.“
„Hún hefur
þroska til að
ákveða þetta sjálf“
Viktor Sveinsson er ekki í Þjóðkirkjunni en á dóttur sem er að
ganga í gegnum skírn og fermingu núna í vor. Hann styður
ákvörðun hennar og tekur þátt í undirbúningi af fullum krafti.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Viktor Sveinsson
hefur starfað í ferða-
þjónustunni lengi.
64 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
Á
sta Sawang er fædd í Bangkok í
Taílandi og ólst upp fyrstu 6 ár æv-
innar þar í landi en lengst af í
strandbænum Hua Hin.
Ásta á sjö systkin og er hún
fimmta í röðinni. Í dag býr hún í Hveragerði
ásamt föður sínum og þremur yngri systk-
inum, tveimur yngri bræðrum og litlu systur
sem er sex ára.
Upphaflega stóð ekki til að Ásta yrði fermd
þar sem foreldrar hennar eru utan þjóðkirkju
og móðir hennar búddisti. Það hafði verið sam-
komulag hennar og pabba hennar að í stað
fermingar færu þau tvö saman í fermingarferð
sem var áætluð á slóðir Anne with an E/Önnu í
Grænuhlíð um Prince Edward-eyju í Kanada.
Engin hefð fyrir fermingu í fjölskyldunni
„Þegar ég byrjaði í 8. bekk og allir fé-
lagarnir voru að hefja fermingarundirbúning
ákvað ég að vilja einnig fermast en þar sem
engin hefð er fyrir því í kjarnafjölskyldunni og
við pabbi með önnur áform var þetta ekki auð-
fengið. Pabbi var ekki auðveldur viðureignar
með þessa nýju hugmynd og krafðist þess að
ég gerði
skýrt upp
hug minn
gagnvart trú,
Jesú Kristi og
kirkjunni og ef ég væri
ekki sannfærð um að eiga erindi í
kirkjuna ætti ég að velja borgaralega ferm-
ingu. Ég viðurkenni að þetta var oft erfitt,
pabbi vildi ræða þessi mál meira en ég hafði
áhuga á og í raun vildi ég að þetta væri eins
sjálfsagt hjá mér og vinkonum mínum en auð-
vitað er það ekki þannig því fjölskylda mín er
einfaldlega öðruvísi og bakgrunnur okkar ekki
alveg íslenskur.
En auðvitað hefur sterk áhrif á svona
ákvörðun að vilja fylgja vinum sínum og svo er
ekkert verra að fá flotta veislu og fullt af gjöf-
um.“
Ásta segir að pabbi hennar hafi komið á sér-
stökum fundum með Ninnu Sif, sóknarprest-
inum.
„Á fundunum ræddum við þetta vel og hún
hvatti mig líka til að fá borgaralega fermingu
ef ég væri ekki sannfærð um trúna. Þannig að
þetta hefur verið svolítið flókið hjá mér til
dæmis vegna þess að ég þarf fyrst að skírast.“
Mikið að gera hjá Ástu um
þessar mundir
Ásta tók skírn þann 7. mars í almennri
messu í Hveragerðiskirkju. Við vinnslu við-
talsins var Ásta enn þá að undirbúa skírnina.
„Við pabbi höfum farið og undirbúið okkur
með Ninnu Sif, fengið tilsögn um hvernig at-
höfnin fer fram og hvað ég þarf að kunna. Það
verður sunginn sérstakur skírnarsálmur og ég
á að staðfesta nafn mitt. Ég hef sjálf valið mér
skírnarvottana og er það næstaelsta systir mín
Jintapat og Auður frænka mín.
Eftir skírnina ætlum við að hafa laufléttan
„Vonandi fæst
einhver annar
en pabbi í að
farðamig“
Ásta Sawang er að ganga í gegnum
skírn og fermingu um þessar mundir.
Hún hefur þurft að hafa fyrir því að fá að
fermast, því hún kemur úr fjölskyldu sem
er utan þjóðkirkjunnar.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ásta var skírð á þessu ári
og mun nú fermast með
vinum sínum í Hveragerði.