Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 72
72 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
Skartgripur með táknræna merkingu, seldur til
styrktar blindum og sjónskertum á Íslandi.
Íslenskt handverk. Fæst um land allt.
Þríkrossinn
Stuðningur til sjálfstæðis
S
offía Eydís á tvö börn með eig-
inmanni sínum Bergþóri Júlíussyni
sem kallaður er Beggi. Tvíburar
þeirra, Björgvin og Sóldís Marja,
fermdust 30. ágúst í fyrra.
„Tvíburarnir Björgvin og Sóldís Marja eru
mikil kraftaverkabörn, þau fæddust tæpar fjór-
ar og fimm merkur hinn 27. júlí 2006, löngu fyr-
ir tímann. Það tók okkur mörg ár að komast á
þann stað að eignast þau. Það tók í raun tíu ár
með aðstoð frábærs heilbrigðisstarfsfólks sem
átti sinn þátt í að búa þau til, hjálpa mér að
ganga með þau og vaka svo yfir þeim á vöku-
deildinni.
Það var því nokkuð meðvituð ákvörðun að ég
ætlaði sko að tjalda öllu til þegar kæmi að ferm-
ingunni þeirra. Þetta átti að vera ferming-in
enda þyrfti ég bara að gera þetta einu sinni! Ég
ætlaði sko að leggja mig alla fram og þetta átti
að verða glæsileg fermingarveisla fyrir „ljónin“
eins og þau eru stundum kölluð.
Gerði ráð fyrir tvöföldum kostnaði í eina veislu
„Ég gerði ráð fyrir tvöföldum kostnaði í eina
veislu. Fylgdist nokkuð vel með straumum og
stefnum í gegnum hóp um fermingar á Face-
book og studdist við reynslu systra minna og
vinkvenna. Ég hugsaði með mér þegar ég sá
eitthvað sniðugt: já, ég ætla gera eitthvað
svona. Ég hugsaði mikið og byggði upp þó
nokkrar væntingar.
Systir mín á líka tvíbura og er tvíburi sjálf og
því fannst okkur stórsniðugt að slá saman veisl-
unum og vera með eina stóra veislu. Í raun fjór-
falda fermingarveislu fyrir þessi tvíburapör.
Beggi er lærður kokkur og hafði oftsinnis
eldað í fermingarveislum en hann ákvað að
hann ætlaði að fá að njóta þess að vera í gest-
gjafahlutverkinu án þess að hafa áhyggjur af
matnum. Þannig að fram undan var risaveisla,
með aðkeyptum mat og átti að halda í glæsi-
legum sal sem ég hafði aðgang að í gegnum
vinnuna mína. Þau áttu að fermast helgina fyrir
pálmasunnudag og undirbúningurinn gekk vel
þarna í janúar, að minnsta kosti í höfðinu á
mér.“
Soffía Eydís segir það hafa verið aðeins öðru-
vísi ferli að fara af stað með
allar áætlanir.
„Ég sá að það fór ótrúlega
mikill tími í þetta. Til dæmis
þurfti ég að marghugsa það
hvernig við myndum nú útfæra
gestabækur fyrir fjögur ferm-
ingarbörn og ég sá að ég hafði eig-
inlega engan tíma í allt umstangið.
Það var brjálað að gera í vinnunni og
ég stefndi í einhverja andlega örmögnun
við það eitt að hugsa um allt sem ég ætti
eftir að gera, ákveða, stússa og kaupa. Svo fóru
að berast fréttir af þessum faraldri og á örfáum
dögum voru boðskortin í veisluna – sem ég
hafði loksins haft tíma til þess að koma út – orð-
in úrelt og ég vansvefta af áhyggjum yfir því
hvort maður ætti að bjóða í veislu eða ekki og
stofna ættingjum og vinum í hættu.“
Léttir þegar fermingunni var frestað
Hún segir það hafa verið ákveðinn létti þegar
fermingunni var frestað.
„Þá tók við óvissutímabil, hvaða fermingar-
tími seinna um sumarið myndi henta okkur
systrum og hvort blessuð veiran yrði þá til
friðs. Á endanum gekk það ekki upp að vera
með sameiginlega veislu en ég var ekkert búin
að gefa það upp á bátinn að vera með veisluna í
salnum því ég satt að segja nennti ekki að setja
heimilið á hliðina. Það hafði eiginlega aldrei
komið til greina að hafa veisluna heima.
Farsóttarþreytan var á háu stigi þarna um
vorið, vinnan búin að vera nokkuð krefjandi því
sem stjórnandi var ég með áhyggjur af starfs-
fólkinu og verkefnunum, áhyggjur af veirunni
og svo var þessi fermingarveisla að verða að
föstum kvíðahnút í maganum á mér en það átti
sko bara ekkert að vera þannig! Fermingar-
veisla ársins, manstu! Ég staðfesti nýju dag-
setninguna við prestinn, tók frá salinn aftur,
talaði við listakokkinn hann Garðar Hall í
vinnunni minni og bað hann að elda matinn með
þeim fyrirvara að ég vissi ekkert hversu margir
yrðu í veislunni og skilaði sparifötum Björgvins
því þau voru bara orðin of lítil og fékk
inneignarnótu.
Sóldís Marja stækkaði ekki svo mikið þannig
að fallegi kjóllinn hennar passaði áfram, en í
staðinn kom hringl með hárgreiðsluna og ferm-
ingardagana. Ég uppgötvaði að það er ekkert
sjálfsagt að fá tíma í fermingargreiðslu ef mað-
ur er ekki nógu snemma í að panta svoleiðis.“
Nær ómögulegt að gera áætlanir
Þegar leið á sumarið segir hún að það eina
sem hægt var að gera hafi verið að ýta hlut-
unum á undan sér.
„Það var erfitt að plana nokkuð og panta eitt-
hvað þegar maður var ekkert viss um það hvort
það yrði af fermingu og hver einasti fréttatími í
ágúst olli mér kvíða eða vakti spurningar.“
Soffía Eydís átti nokkrar samræður við börn-
in þar sem alls konar sviðsmyndir voru ræddar
og mismunandi útgáfur af veislu voru krufnar í
þaula.
„Krakkarnir voru orðin hundleið á okkur,
mér þó sérstaklega, og ranghvolfdu bara aug-
unum. Þau voru samt ótrúlega róleg yfir þessu
öllu – enda mikið búið að ganga á hjá þeim í
skólahaldi, alls konar viðburðum slegið á frest,
meðal annars risastóru alþjóðlegu skátamóti í
Póllandi og öðrum minni viðburðum. Ferm-
ingin var alls ekkert það eina sem gjörbreyttist.
Þau ypptu bara öxlum og voru ekkert að æsa
sig yfir þessu.
Svo var ekki hægt að bíða lengur. Það varð
að hefja undirbúning á ný ef ske kynni að það
yrði nú af fermingunni, þá væri nú eins gott að
vera tilbúin. En daginn eftir að ég sendi út nýtt
facebook-invite tilkynnti sóttvarnalæknir nýjar
takmarkanir. Ég andaðist næstum því við að
fylgjast með þeim blaðamannafundi. Ég trúði
þessu ekki.“
Þá tók óvissan við
Hún segir að þá hafi tekið við plan C eða D.
„Ég man það ekki. Eftir nokkrar andvöku-
nætur var ég eflaust orðin óttaleg taugahrúga.
Átti ég að fresta veislunni og ferma börnin og
fara bara út að borða? Eða vera með tvískipta
veislu? Allir með grímu og hanska? Ég hring-
snerist bara um sjálfa mig og heilann í mér.
En svo fékk ég hugljómun um miðja nótt. Af
hverju væri ég að velta mér upp úr einhverju
sem svo skipti bara ekki máli? Það sem hlyti að
vera markmiðið væri að börnin myndu fermast
og vera sátt með daginn sinn, ekki hvað ég
myndi nú brillera í veisluundirbúningi. Ég fór í
allt annan gír eftir þessa uppgötvun. Spurði
krakkana reyndar enn einu sinni en núna setti
Sigraði í mjög
krefjandi þraut!
Litlu augnablikin í
lífinu skipta oft
mestu máli.
Soffía Eydís Björgvinsdóttir, sem stýrir skatta- og lögfræðiþjón-
ustu hjá KPMG Law, var nýbúin að bjóða gestum öðru sinni í
veislu þegar sóttvarnalæknir tilkynnti nýjar takmarkanir. Þórólfur
Guðnason sóttvarnalæknir er áhrifavaldur í lífi fjölskyldunnar
því hann var einn af þeim sem vöktu yfir börnunum á vöku-
deild á sínum tíma.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Heida HB ljósmyndari er
vinkona fjölskyldunnar.