Morgunblaðið - 12.03.2021, Síða 74
74 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021
Hagkaup Smáralind
Heilsuver
Sambúðin
Vistvera Grímsbæ
Vistvera Selfossi
Vonarstræti
án
eiturefna
Nikkelfrítt
Vegan og
áfyllanlegt
Náttúrulegar
og lífrænar
förðunarvörur
Fást hér
H
jörtur Magni segir mikið að gera
þessa dagana. Hann sinnir
prestsstörfum í tíu þúsund
manna söfnuði sem er dreifður
um allt landið. Það er mikið um
bókanir þessa dagana á athöfnum sem hefur
þurft að fresta vegna kórónuveirunnar.
Hvað er áætlað að margir fermist í kirkj-
unni í ár?
„Fjöldi fermingarbarna verður í kringum
sextíu talsins. Fyrirkomulagið hjá okkur er
mjög sveigjanlegt. Fjölskyldur velja ferming-
ardaginn og ungmenni eru að bætast við langt
fram á haustið. Fermingarbörnum hefur frek-
ar fjölgað en hitt.“
Mannréttindi skipta máli
Hjörtur Magni segir að nálgunin hjá þeim
sé að bjóða upp á víða og opna trúarlega nálg-
un.
„Mannréttindi og umhverfisvernd eru okk-
ur mikilvæg. Þessar áherslur hafa laðað ung-
menni og foreldra þeirra til okkar.“
Hvað leggur þú áherslu á í fermingar-
fræðslunni?
„Í fræðslunni leggjum við meðal annars
áherslu á víða og jákvæða kristna lífssýn, lífs-
leikni, náttúruvernd og mannréttindi í ríkum
mæli. Við leggjum áherslu á að þau viti að þau
eru elskuð af kærleiksríkum Guði nákvæm-
lega eins og þau eru. Þau þurfa ekkert að
breyta sér fyrir hann og hann þekkir þau jafn-
vel betur en þau gera sjálf. Við hvetjum ung-
mennin til að kynna sér málefni líðandi stund-
ar og í framhaldi af því að hugsa skapandi og
af ábyrgð því að þeirra er framtíðin! Við kenn-
um þeim auðvitað grundvallaratriði kristinnar
trúar og hvetjum þau um leið til að vera frjó
og skapandi en ekki þeir neytendur sem af-
þreyingar-iðnaðurinn vill þvinga þau til að
vera. Þau mega ekki og eiga ekki að vera
óvirkir og sljóir neytendur heldur miklu frem-
ur taka ábyrgð á sínu lífi og sinni framtíð sem
þau sjálf eiga að móta.“
Það gefur honum mikið að vinna með ferm-
ingarbörnum.
„Við höfum upplifað að ungmenni okkar eru
að verða mun meðvitaðri um sína eigin vel-
ferð, framtíð og það umhverfi sem þau fá í arf
frá okkur, þeim sem eldri erum og þykjumst
allt vita. Við eldri kynslóðin erum ekki að skila
góðu búi hvað náttúruna og umhverfið varðar.
Þau gera sér í æ ríkari mæli grein fyrir þessu
og það er dásamlegt. En nú er það okkar sem
eldri erum að efla þau og aga til að þau nái að
skila keflinu áfram til þar næstu kynslóðar.
Hér skiptir boðskapur Krists um náunga-
kærleikann verulegu máli og þar með sam-
félagsábyrgðin gagnvart öllum jarðarbúum og
ráðsmennskan gagnvart öllu lífríkinu.“
Andlega sinnaður en ekki bókstafstrúar
Hvað hafa þau fram að færa sem við ættum
að varðveita?
„Fermingarungmennin eru jú vissulega
ómótuð og á verulegum tímamótum á sinni
lífsvegferð. En þau hafa ómældan lífskraft til
að móta sína heilbrigðu lífssýn, þau hafa þor,
djörfung og þrótt til að búa mun betur að
sinni kynslóð en við, hin eldri, höfum gert. Við
hin eldri höfum klúðrað æði mörgu. Þau hafa
fyrirmyndir eins og umhverfisaktívistann hina
sænsku Gretu Thunberg sem hefur verið
fyrirmynd tugmilljóna ungmenna víða um
heim. Þau bera einfaldlega hag heimsins fyrir
brjósti því að framtíðin er jú þeirra.“
Hvað getur þú sagt mér um trú þína?
„Ég ólst upp í umhverfi bókstafstrúar en
þar var vissulega velviljað fólk. Ég kynntist af
eigin raun þeim neikvæðu hlutum sem komið
hafa óorði á trú og trúrækni. Ef einhver telur
sig trúaðan í dag, þá telst hann þröngsýnn og
einstrengingslegur. Ég tel mig eins og sirka
95% þjóðarinnar andlega sinnaðan en ekki eft-
ir uppskrift hefðbundinna trúarstofnana. Ég
tengi trú mína við þann víðsýna Jesú Krist
sem fór þvert gegn vilja ríkjandi trúarstofn-
ana. Í mínu hjarta er það að eiga trú að eiga
lífsvon. Það að eiga trú er að eiga sjálfum sér,
öllum börnum jarðar sem og lífríkinu í heild
sinni von um betri tíð. Það er í mínum huga að
vera trúaður. Lífsvon og trú er hið sama.“
Vitundin um æðri mátt kveikti trúna
Hefurðu alltaf verið trúaður, eða er eitt-
hvert atvik eða annað sem gerðist sem kveikti
trúna í þér?
„Líklegast var það réttlætiskenndin og vit-
undin um æðri mátt sem kveikti trú mína. Ég
ólst upp í umhverfi bókstafstrúar, en síðan
víkkaði mín trúarlega sýn og það sem betur
fer. Það gerðist einkum eftir að ég var rúm
tvö ár við háskólanám í trúarbragaðafræðum í
Jerúsalem, borginni helgu fyrir botni Miðjarð-
arhafs þar sem þrjár stóru eingyðistrúarhefð-
irnar samtengjast; gyðingdómur, kristni og
íslam. En víða í heiminum í dag er bókstafs-
hyggja og trúaröfgar ekki aðeins innan kristn-
innar heldur einnig innan annarra trúar-
bragða orðin að verulegu vandamáli í
samfélögum.“
Hann segir ekki hægt að skilgreina Guð eðli
sínu samkvæmt.
„Við notum orð og orðasambönd; Guð er hið
góða innra með þér, óháð kyni; hann, hún,
hán, þín æðri vitund, þitt innra sjálf, ljósið
sem lýsir gegnum allt myrkrið. Úr trúarhefð-
unum höfum við hugtök sem lýsa hans eðli svo
sem kærleikur, réttlæti, miskunnsemi, fyrir-
gefning og samhygð. Það er einmitt þegar
menn ætla að toga almættið niður á sitt plan
og nota til aðgreiningar, mismununar og
tengja við þröngsýna þjóðerniskennd sem
voðinn er vís. Sá Guð sem ég leitast við að
fylgja af veikum mætti er ofar öllum útilok-
andi múrum, ofar þröngsýnni þjóðerniskennd
og ofar trúarbrögðum þegar þau eru misnot-
uð. Svona hluti reynum við sem dæmi að ræða
í fermingarfræðslunni og þar þurfa alls ekki
allir að vera sammála.“
Að játast hinu góða
Hvaða texti í biblíunni talar til þín núna?
„Þeir eru tveir sem koma mér helst í hug.
Sá fyrri er úr fyrsta Jóhannesarbréfi, og er
ein mikilvægasta setning Biblíunnar: „Guð er
„Ímínu hjarta er
það að eiga trú
að eiga lífsvon“
Hjörtur Magni Jóhannsson, forstöðumaður og prestur
Fríkirkjunnar við Tjörnina, fær innsýn inn í líf ungmenna í gegn-
um fermingarfræðsluna. Hann segir unglingsárin ekki bara
spennandi heldur reynist þau mörgum verulega erfið líka.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Sr. Hjörtur Magni
Jóhannsson, forstöðu-
maður og prestur
Fríkirkjunnar við Tjörnina.
„Unglingsárin eru ekki bara
spennandi heldur reynast
þaumörgum verulega erfið.
Á fermingardaginn þegar
fermingarungmennið okkar
játar því að hafa Jesú Krist
að leiðtoga lífsins, þá erum
við öll að játast hinu góða,
uppbyggilega og fagra.“