Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 74

Morgunblaðið - 12.03.2021, Page 74
74 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARS 2021 Hagkaup Smáralind Heilsuver Sambúðin Vistvera Grímsbæ Vistvera Selfossi Vonarstræti án eiturefna Nikkelfrítt Vegan og áfyllanlegt Náttúrulegar og lífrænar förðunarvörur Fást hér H jörtur Magni segir mikið að gera þessa dagana. Hann sinnir prestsstörfum í tíu þúsund manna söfnuði sem er dreifður um allt landið. Það er mikið um bókanir þessa dagana á athöfnum sem hefur þurft að fresta vegna kórónuveirunnar. Hvað er áætlað að margir fermist í kirkj- unni í ár? „Fjöldi fermingarbarna verður í kringum sextíu talsins. Fyrirkomulagið hjá okkur er mjög sveigjanlegt. Fjölskyldur velja ferming- ardaginn og ungmenni eru að bætast við langt fram á haustið. Fermingarbörnum hefur frek- ar fjölgað en hitt.“ Mannréttindi skipta máli Hjörtur Magni segir að nálgunin hjá þeim sé að bjóða upp á víða og opna trúarlega nálg- un. „Mannréttindi og umhverfisvernd eru okk- ur mikilvæg. Þessar áherslur hafa laðað ung- menni og foreldra þeirra til okkar.“ Hvað leggur þú áherslu á í fermingar- fræðslunni? „Í fræðslunni leggjum við meðal annars áherslu á víða og jákvæða kristna lífssýn, lífs- leikni, náttúruvernd og mannréttindi í ríkum mæli. Við leggjum áherslu á að þau viti að þau eru elskuð af kærleiksríkum Guði nákvæm- lega eins og þau eru. Þau þurfa ekkert að breyta sér fyrir hann og hann þekkir þau jafn- vel betur en þau gera sjálf. Við hvetjum ung- mennin til að kynna sér málefni líðandi stund- ar og í framhaldi af því að hugsa skapandi og af ábyrgð því að þeirra er framtíðin! Við kenn- um þeim auðvitað grundvallaratriði kristinnar trúar og hvetjum þau um leið til að vera frjó og skapandi en ekki þeir neytendur sem af- þreyingar-iðnaðurinn vill þvinga þau til að vera. Þau mega ekki og eiga ekki að vera óvirkir og sljóir neytendur heldur miklu frem- ur taka ábyrgð á sínu lífi og sinni framtíð sem þau sjálf eiga að móta.“ Það gefur honum mikið að vinna með ferm- ingarbörnum. „Við höfum upplifað að ungmenni okkar eru að verða mun meðvitaðri um sína eigin vel- ferð, framtíð og það umhverfi sem þau fá í arf frá okkur, þeim sem eldri erum og þykjumst allt vita. Við eldri kynslóðin erum ekki að skila góðu búi hvað náttúruna og umhverfið varðar. Þau gera sér í æ ríkari mæli grein fyrir þessu og það er dásamlegt. En nú er það okkar sem eldri erum að efla þau og aga til að þau nái að skila keflinu áfram til þar næstu kynslóðar. Hér skiptir boðskapur Krists um náunga- kærleikann verulegu máli og þar með sam- félagsábyrgðin gagnvart öllum jarðarbúum og ráðsmennskan gagnvart öllu lífríkinu.“ Andlega sinnaður en ekki bókstafstrúar Hvað hafa þau fram að færa sem við ættum að varðveita? „Fermingarungmennin eru jú vissulega ómótuð og á verulegum tímamótum á sinni lífsvegferð. En þau hafa ómældan lífskraft til að móta sína heilbrigðu lífssýn, þau hafa þor, djörfung og þrótt til að búa mun betur að sinni kynslóð en við, hin eldri, höfum gert. Við hin eldri höfum klúðrað æði mörgu. Þau hafa fyrirmyndir eins og umhverfisaktívistann hina sænsku Gretu Thunberg sem hefur verið fyrirmynd tugmilljóna ungmenna víða um heim. Þau bera einfaldlega hag heimsins fyrir brjósti því að framtíðin er jú þeirra.“ Hvað getur þú sagt mér um trú þína? „Ég ólst upp í umhverfi bókstafstrúar en þar var vissulega velviljað fólk. Ég kynntist af eigin raun þeim neikvæðu hlutum sem komið hafa óorði á trú og trúrækni. Ef einhver telur sig trúaðan í dag, þá telst hann þröngsýnn og einstrengingslegur. Ég tel mig eins og sirka 95% þjóðarinnar andlega sinnaðan en ekki eft- ir uppskrift hefðbundinna trúarstofnana. Ég tengi trú mína við þann víðsýna Jesú Krist sem fór þvert gegn vilja ríkjandi trúarstofn- ana. Í mínu hjarta er það að eiga trú að eiga lífsvon. Það að eiga trú er að eiga sjálfum sér, öllum börnum jarðar sem og lífríkinu í heild sinni von um betri tíð. Það er í mínum huga að vera trúaður. Lífsvon og trú er hið sama.“ Vitundin um æðri mátt kveikti trúna Hefurðu alltaf verið trúaður, eða er eitt- hvert atvik eða annað sem gerðist sem kveikti trúna í þér? „Líklegast var það réttlætiskenndin og vit- undin um æðri mátt sem kveikti trú mína. Ég ólst upp í umhverfi bókstafstrúar, en síðan víkkaði mín trúarlega sýn og það sem betur fer. Það gerðist einkum eftir að ég var rúm tvö ár við háskólanám í trúarbragaðafræðum í Jerúsalem, borginni helgu fyrir botni Miðjarð- arhafs þar sem þrjár stóru eingyðistrúarhefð- irnar samtengjast; gyðingdómur, kristni og íslam. En víða í heiminum í dag er bókstafs- hyggja og trúaröfgar ekki aðeins innan kristn- innar heldur einnig innan annarra trúar- bragða orðin að verulegu vandamáli í samfélögum.“ Hann segir ekki hægt að skilgreina Guð eðli sínu samkvæmt. „Við notum orð og orðasambönd; Guð er hið góða innra með þér, óháð kyni; hann, hún, hán, þín æðri vitund, þitt innra sjálf, ljósið sem lýsir gegnum allt myrkrið. Úr trúarhefð- unum höfum við hugtök sem lýsa hans eðli svo sem kærleikur, réttlæti, miskunnsemi, fyrir- gefning og samhygð. Það er einmitt þegar menn ætla að toga almættið niður á sitt plan og nota til aðgreiningar, mismununar og tengja við þröngsýna þjóðerniskennd sem voðinn er vís. Sá Guð sem ég leitast við að fylgja af veikum mætti er ofar öllum útilok- andi múrum, ofar þröngsýnni þjóðerniskennd og ofar trúarbrögðum þegar þau eru misnot- uð. Svona hluti reynum við sem dæmi að ræða í fermingarfræðslunni og þar þurfa alls ekki allir að vera sammála.“ Að játast hinu góða Hvaða texti í biblíunni talar til þín núna? „Þeir eru tveir sem koma mér helst í hug. Sá fyrri er úr fyrsta Jóhannesarbréfi, og er ein mikilvægasta setning Biblíunnar: „Guð er „Ímínu hjarta er það að eiga trú að eiga lífsvon“ Hjörtur Magni Jóhannsson, forstöðumaður og prestur Fríkirkjunnar við Tjörnina, fær innsýn inn í líf ungmenna í gegn- um fermingarfræðsluna. Hann segir unglingsárin ekki bara spennandi heldur reynist þau mörgum verulega erfið líka. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Sr. Hjörtur Magni Jóhannsson, forstöðu- maður og prestur Fríkirkjunnar við Tjörnina. „Unglingsárin eru ekki bara spennandi heldur reynast þaumörgum verulega erfið. Á fermingardaginn þegar fermingarungmennið okkar játar því að hafa Jesú Krist að leiðtoga lífsins, þá erum við öll að játast hinu góða, uppbyggilega og fagra.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.