Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.09.2021, Qupperneq 17

Fréttablaðið - 08.09.2021, Qupperneq 17
Það eru svo ótrú- lega margir þættir sem hafa áhrif á heils- una. Það er vinnan, hvar við búum, menntun og samskipti við aðra. Allt í lífinu hefur áhrif. Erla Guðmundsdóttir íþróttafræðingur hefur alla tíð stundað hreyfingu og hugsað um heilsuna. Hún fór þó að finna fyrir heilsuleysi þegar hún starfaði sem flug- freyja sem varð til þess að hún lærði heilsumarkþjálfun og féll fyrir faginu. sandragudrun@frettabladid.is Erla var mikið í íþróttum sem barn og unglingur og lærði íþróttfræði á Laugarvatni og lauk námi í íþrótta­ vísindum og þjálfun frá Háskól­ anum í Reykjavík. „Ég hef alltaf haft áhuga á íþróttum og hugsað um heilsuna á vissan hátt. Það var ekki fyrr en ég var búin að vinna sem flugfreyja í fimm ár sem ég fann í fyrsta sinn á ævinni fyrir heilsuleysi,“ segir Erla. „Ég var síþreytt en það var samt ekki fyrr en eftir langan tíma í starfi sem ég áttaði mig á hvað var að. Það var engin rútína, óreglu­ legur vinnutími þar sem ég vann stundum á nóttunni, stundum á morgnana og stundum á daginn og ég var að borða á öllum tímum sólarhringsins. Ég var þess vegna byrjuð að líta í aðrar áttir og farin að hugsa um að byrja að vinna aftur sem íþróttakennari.“ Erla frétti síðan af flugfreyju sem hafði lært heilsumarkþjálfun og ákvað að láta slag standa og skráði sig í námið. „Þetta var eins árs nám og ég algjörlega féll fyrir þessu. Svo vatt þetta upp á sig og ég er farin að halda fyrirlestra og get líka nýtt mér þessa markþjálfun í kennslu og bara í lífinu sjálfu,“ segir Erla sem kennir íþróttir í MH samhliða markþjálfuninni. Erla útskýrir að heilsumark­ þjálfun gangi út á að einblína á alla heilsuþætti. Ekki bara mataræði, hreyfingu og svefn. „Það eru svo ótrúlega margir þættir sem hafa áhrif á heilsuna. Það er vinnan, hvar við búum, menntun og samskipti við aðra. Allt í lífinu hefur áhrif,“ segir hún. Hún segir mikilvægt að koma því til skila til unglinga sérstak­ lega að heilsa er ekki útlit. Einhver sem þau sjá á samfélagsmiðlum lítur kannski rosa hraustur út, en við vitum ekkert hvort hann er við góða heilsu. „Heilsa er líka andleg og félags­ leg. Ef fólk er í einhverjum rosa öfgum til að líta hraust út þá er kannski félagslega og andlega heilsan í vaskinum af því það setur sér svo strangar reglur. Það er mikilvægt að finna jafnvægi á milli allra þátta heilsunnar.“ Vinnur með hænuskref Grunnur markþjálfunar að sögn Erlu er að spyrja djúpra góðra spurninga og reyna að fá viðkom­ andi til að koma með svarið sjálf. „Maður veit svarið nefnilega oft best sjálfur. Ef einhver segir þér að gera eitthvað þá er ekki víst að þú gerir það. En ef þú ákveður að gera eitthvað sjálf þá er líklegra að þú standir við það,“ segir hún. „Þetta er ekki beint ráðgjöf heldur þjálfun. Ég kem auðvitað oft með ráðleggingar um hvað fólk getur gert til að bæta heilsuna því fólk hefur kannski ekki þekking­ una. En þau átta sig kannski á því sjálf að það er svefninn sem þarf að taka í gegn, eða eitthvað annað, og ég ráðlegg þá út frá því.“ Erla heldur úti bloggi á síðunni heilsuerla.is þar sem hún skrifar heilsupistla og ræðir við fólk um ýmislegt heilsutengt. Á Instagram­ síðu hennar heilsuerla_heilsu­ markþjálfun er einnig að finna ýmsan fróðleik um heilsu, mark­ miðasetningu og fleira. „Ég hef nýtt það sem ég hef lært í mínu lífi. Ég vinn með hænuskref, að taka einn dag í einu, eitt skref í einu og breyta bara einni venju í einu en ekki umturna öllu lífinu á einum degi. Það er aldrei vænlegt til árangurs. Ég brenn fyrir að sýna fólki að það þarf ekki öfga. Mér finnst samfélagið ganga svo mikið út á öfga í báðar áttir, það er annað hvort allt eða ekkert. En rann­ sóknir hafa sýnt að það eina sem virkar er að vera með góðan lífsstíl og breyta venjum sínum smám saman til góðs,“ segir hún. „Þannig ertu heilbrigð alla ævina. Það þarf að horfa til fram­ tíðar og hugsa að ákvörðum sem þú tekur í dag, hún hefur ekki bara áhrif á morgun heldur alla ævi. Mig langar til dæmis að verða hraust gamalmenni. Það er mitt mottó, mig langar að geta staðið á höndum þegar ég verð níræð.“ n Langar að standa á höndum þegar hún er níræð Erla leggur áherslu á að útlitið segir ekki til um heilsu fólks. MYND/AÐSEND Gunnlaugur Helgi Gunn- laugsson hefur tekið inn Íslensk fjallagrös frá ICE- HERBS nánast daglega frá árinu 2014. Hann segir áhrifin hafa komið sér á óvart, enda prófaði hann fjallagrösin fyrst hálfpartinn af rælni. „Ég byrjaði að kynna mér fæðu­ bótarefnin frá ICEHERBS þegar ég rakst á gamlan félaga úr hand­ boltanum 2014. Ég spilaði lengi vel handbolta á mínum yngri árum og var þá markmaður hjá Haukum og síðar FH. Við tókum að spjalla og ég spurði hvað hann væri að garfa í dag. Hann sagðist vinna að því að koma fyrirtækinu ICEHERBS af stað. Mig langaði auðvitað að styðja hann í þessu framtaki og byrjaði að taka Íslensk fjallagrös, sem þá voru kölluð Flóra. Einnig prófaði ég að taka inn Meiri orku sem inniheldur fjallagrös og burnirót. Ég las mér svo sem ekki mikið til um hvað þetta ætti að gera fyrir mig og því kom það mér nokkuð á óvart að eftir að ég byrjaði reglu­ lega að taka þetta inn, þá hafa hægðirnar hjá mér bara verið eins og klukka. Ég tek hvort tveggja inn á morgnana svona á virkum dögum og þegar ég man eftir því, og um hálftíma síðar fer ég á sal­ ernið bara eins og eftir klukku. Þá er ég orðinn tilbúinn í daginn.“ Gunnlaugur starfar sem dúkari. „Sjálfur er ég ekkert feiminn við að þurfa á klósettið í vinnunni, en ég þekki marga sem finnst það óþægilegt og jafnvel ómögulegt að hafa hægðir á vinnustaðnum. Ég sé alveg fyrir mér að fjallagrösin geti gagnast því fólki sérstaklega vel. Tengdamamma mín, sem er 86 ára, tekur líka inn fjallagrös og segir þetta allt annað líf, eftir að hún bætti þeim við mataræðið. Sjálfur er ég jafnaðarmaður í öllu sem ég geri, hvort sem það er hreyf­ ing eða inntaka bætiefna. Þetta tvennt, Fjallagrös og Meiri orka, hef ég fundið að gerir mér gott og það nægir mér. Svo er það mikill bónus að vita til þess að þetta sé fyrsta flokks íslensk framleiðsla þar sem hreinar náttúruafurðir eru í fyrirrúmi,“ segir Gunnlaugur. Fjallagrös: leyndardómsfullt undraefni náttúrunnar Fjallagrös eru afar sérstakt fyrirbæri. Þetta er hvorki jurt né sveppur heldur samlífi þörunga og sveppa, sem nefnist flétta. Fléttur eru eitt elsta líffyrirbæri jarðar og vaxa á steinum og utan á trjáberki. Fjallagrös eru rík af trefjum og steinefnum, einkum járni og kalsíum. Þá bera þau í sér fléttuefni sem hindra óæskilegar bakteríur. Íslensk fjallagrös frá ICE­ HERBS eru ætluð fyrir magaflóru líkamans og stuðla að heilbrigðri meltingu með náttúrulegum hætti. Fjallagrös ICEHERBS eru tínd víða um land, í kjölfarið eru þau þurrkuð og mulin til neyslu. Fjallagrös eru þekkt lækningar­ jurt og hafa ýmsa góða eiginleika sem nýtast vel til að bæta líðan. Öldum saman hafa þau verið notuð til lækninga á Íslandi. Víða annars staðar í heimininum hafa þau um aldir einnig verið nýtt til lækninga, þá sérstaklega vegna óþæginda í öndunarfærum og meltingartruflana. Fjallagrös innihalda leysanlegar trefjar, sem mynda mýkjandi himnu á slímhúð í meltingarvegi sem bætir melt­ inguna. Þá eru þau einnig talin hafa mýkjandi og græðandi áhrif á slímhúð í öndunarfærum. Rannsóknir sem gerðar hafa verið á fjallagrösum benda til að efni í þeim styrki ónæmiskerfið. Þá hafa rannsóknir einnig sýnt fram á að í þeim séu efni sem virka rotverjandi, hindra bakteríuvöxt, eru mýkjandi fyrir háls, mýkjandi fyrir hægðir og bæta meltingu, allt í samræmi við gamla trú og notkun. Fjallagrös hafa að auki reynst vel þeim sem vilja draga úr bjúg. Hrein náttúruafurð Markmið ICEHERBS er að nýta náttúruauðlindir sem tengjast íslenskri hefð og sögu og vinna í hreina neytendavæna vöru fyrir viðskiptavini. Við hjá ICEHERBS leggjum áherslu á að framleiða hrein og náttúruleg bætiefni sem byggja á sjálfbærri nýtingu náttúruauðlinda. Við viljum að vörurnar okkar nýtist viðskipta­ vinum okkar, að virkni skili sér í réttum blöndum og að eiginleikar efnanna viðhaldi sér að fullu. Þá notum við enn fremur engin óþörf fylliefni. n ICEHERBS fæst í öllum betri mat- vöruverslunum, apótekum og heilsuvöruverslunum og í nýrri vefverslun iceherbs.is. Fjallagrösin koma meltingunni í enn betra form Fjallagrös hafa verið notuð frá örófi alda við meltingarvandamálum. Gunnlaugur hefur tekið inn fjallagrös frá árinu 2014 og finnur mikinn mun á meltingunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR ALLT kynningarblað 3MIÐVIKUDAGUR 8. september 2021

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.