Fréttablaðið - 08.09.2021, Blaðsíða 22
Þetta eru ólíkir lista-
menn sem vinna í
ólíka miðla og túlka
hluti á mismunandi
hátt.
Wiola Ujazdowska.
kolbrunb@frettabladid.is
Tvær sýningar á verkum eftir Stein-
unni Þórarinsdóttur voru nýlega
opnaðar í Danmörku. Önnur þeirra,
Armors, er sett upp í hjarta Kaup-
mannahafnar á Kongens Nytorv.
Hin sýningin er Connections í
Óðinsvéum og er unnin með háskól-
anum þar. Þetta eru ekki einu verk
Steinunnar sem sjá má í Danmörku,
þau má til dæmis sjá við kirkju í
Østerbrogade og við f lugvöllinn í
Kaupmannahöfn.
Verk Steinunnar hafa verið sýnd
víða um heim; í Evrópu, Japan,
Bandaríkjunum og Ástralíu og
vakið mikla athygli og hrifningu. n
Verk Steinunnar í Danmörku
Verk Steinunnar
á Kongens
Nytorv í Kaup-
mannahöfn.
Haustsýning Hafnarborgar
er Samfélag skynjandi vera.
Sýningarstjórn er í höndum
Huberts Gromny og Wiolu
Ujazdowska en þau eru bæði
frá Póllandi.
kolbrunb@frettabladid.is
„Þema sýningarinnar er heimurinn
sem samfélag skynjandi vera sem
tjá sig á mismunandi hátt. Lögð er
áhersla á tíma, ferli og f lutning,“
segir Wiola. „Rúmlega tuttugu lista-
mönnum var boðið að taka þátt og
við sýningarstjórarnir ræddum
við þá um samfélag, tilfinningar
og sambönd. Listamennirnir, sem
eru af ólíkum þjóðernum, hafa allir
einhvers konar tengingu við Ísland,
þeir búa hér, hafa lært hér eða unnið
hér. Þetta eru ólíkir listamenn sem
vinna í ólíka miðla og túlka hluti
á mismunandi hátt. Á sýningunni
eru alls kyns verk, eins og málverk,
teikningar, vídeó, innsetningar og
textílverk.“
Hún segir að það hafi verið mikil
vinna að koma sýningunni saman
en ákaflega skemmtilegt.
Bara lítil peð
Melanie Ubaldo er einn af lista-
mönnunum sem eiga verk á sýn-
ingunni. Hún er meistaranemi á
öðru ári í Listaháskólanum. Verk
hennar er gyllt neyðarskýli sem
hún byggði. „Í listsköpun minni
hef ég verið að skapa eða byggja
eins konar minnisvarða um það að
tilheyra ekki. Ég fann á netinu hjá
Sameinuðu þjóðunum nákvæmar
leiðbeiningar um það hvernig ætti
að byggja neyðarskýli. Verk mitt
er minnsta gerðin af neyðarskýli
sem ég byggði í réttum hlutföllum.
Það er gert úr timbri og er húðað að
innan og utan með svokölluðum
neyðarteppum, sem eru silfruð
eða gyllt. Ég valdi gyllta litinn. Inni
í húsinu er svo sandur, sem tengir
verkið við ströndina.“
Spurð hvernig tilfinningar hún
vilji vekja hjá áhor fandanum
segir Melanie: „Ég vil vekja samúð
með þeim sem neyðast til að búa í
skýlum eins og þessum. Ég vil líka
vekja áhorfandann til umhugsunar
um það að maður á ekki stöðugt að
vera að hugsa um sjálfan sig. Við
erum bara lítil peð í þessum stóra
heimi.“
Það tók hana tvo daga að smíða
húsið en nokkuð lengri tíma að
húða það. „Neyðarskýli eins og
þetta er mjög lítið en er þó heimili
margra sem vita ekki hvað tekur
við næst í lífinu.“
Samstarf við ólíkt fólk
Melanie segir mjög gaman og
áhugavert að taka þátt í stórri sýn-
ingu eins og þessari. „Í myndlistinni
fær maður að vera í samstarfi við
ólíkt fólk og kynnist mismunandi
menningarheimum. Þannig kemur
maður auga á alls kyns nýja f leti í
myndlistinni.“
Sýningin er ellefta sýningin í
haustsýningaröð Hafnarborgar sem
er verkefni sem hefur það að mark-
miði að gefa sýningarstjórum sem
ekki eiga langan feril að baki kost
á að senda inn tillögu að sýningu.
Listráð Hafnarborgar ásamt for-
stöðumanni velur síðan vinningstil-
löguna en nú er opið fyrir umsóknir
um sýningu næsta árs. Sýningin
stendur til 31. október. n
Alls kyns nýir fletir
Wiola og Melanie standa í innsetningu eftir Kathy Clark og í bakgrunni má sjá verk Melanie. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓTTAR
Þetta eru ekki einu
verk Steinunnar sem
sjá má í Danmörku.
kolbrunb@frettabladid.is
Bókmenntahátíð í Reykjavík hefst
í dag, miðvikudaginn 8. septem-
ber, og stendur til laugardagsins
11. september og er þetta í fimm-
tánda sinn sem hún fer fram. Fjöldi
íslenskra og erlendra höfunda tekur
þátt í hátíðinni. Hin tyrkneska Elif
Shafak mæti á hátíðina, en bók
hennar 10 mínútur og 38 sekúndur
í þessari undarlegu veröld kom
nýlega út á íslensku. Þar verður
einnig bandaríski blaðamaður-
inn Barbara Demick, höfundur
hinnar frábæru bókar Engan þarf
að öfunda, en nýjasta bók hennar
Að borða Búdda er komin út á
íslensku. Saša Stanišić, höfundur
bókarinnar Uppruni, er líka meðal
gesta. Fjölmarga aðra mætti nefna,
eins og Moniku Fagerholm sem er
nýjasti verðlaunahafi Bókmennta-
verðlauna Norðurlandaráðs, Leïlu
Slimani og Vigdis Hjorth.
Fræðast má um hátíðina á bok-
menntahatid.is. n
Bókmenntahátíð
verður sett í dag
Rithöfundurinn Saša Stanišić frá
Bosníu verður á hátíðinni.
kolbrunb@frettabladid.is
Í dag, miðvikudaginn 8. september,
frá klukkan 11.00-15.00 verður sýn-
ingin Lesið og skrifað með Múm-
ínálfunum opnuð í barnabókasafni
Norræna hússins. Á sýningunni er
boðið upp á gagnvirka leið til að
kynnast stafrófinu um leið og farið
er í skoðunarferð um hinn töfrandi
Múmíndal.
Klukkan 16.00 verður alþjóðleg
lestrarstund í tónleikasal Norræna
hússins, sagan Ósýnilega barnið
verður lesin á mörgum tungu-
málum. Meðal lesenda verður Eliza
Reid forsetafrú. Lestrarstundin
hefst með samtali á milli Gerðar
Kristnýjar og Sophiu Jansson, sem
er bróðurdóttir Tove Jansson. Við-
burðurinn verður einnig í beinu
streymi.
Föstudaginn 10. september
klukkan 20.00 verður heimildar-
myndin Haru, The Island of the
Solitary, sýnd í tónleikasal Nor-
ræna hússins. Sophia Jansson opnar
sýninguna ásamt Roleff Kråkström,
framkvæmdastjóra Moomin Chara-
racters. Skráning er á tix.is. n
Múmínálfar í
Norræna húsinu
Hinir dásamlegu múmínálfar eru
mættir til leiks í Norræna húsinu.
18 Menning 8. september 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐMENNING FRÉTTABLAÐIÐ 8. september 2021 MIÐVIKUDAGUR