Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.08.2021, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 14.08.2021, Qupperneq 4
Breskur stangveiðiunnandi fór í sínar hinstu veiðiferðir á Íslandi, eftir að hafa greinst með krabbamein. thorgrimur@frettabladid.is SAMFÉLAG Breski stangveiðiáhuga- maðurinn Colin McKenzie segir eftirlaunaár sín ekki hafa farið á þann veg sem hann vonaðist eftir. Fyrir um ári greindist hann með krabbamein, aðeins um viku áður en hann átti að setjast í helgan stein. „Ég fór í meiriháttar aðgerð en æxlið hafði breitt úr sér og mér var sagt að ég ætti í mesta lagi tólf til átján mánuði ólifaða.“ „Ég ákvað að reyna að verja árinu sem ég átti eftir í hluti sem mér finn- ast skemmtilegir,“ segir Colin. „Ég hef mjög gaman af því að veiða en ég gat ekki ferðast of langt í burtu. Þess vegna hafði ég samband við fyrirtæki á Íslandi sem kallast Fish Partner og kom fyrst til landsins til að veiða bleikju í júlí í fyrra. Ég skemmti mér svo vel að mér leið mun betur eftir á. Ég kom síðan aftur í ágúst og september.“ Colin segist hafa veitt meira á fyrsta deginum sínum á Íslandi en öll þau ár sem hann hefur stundað fiskveiðar í Skotlandi. „Það var ótrú- legt. Þetta er búið að vera frábært og ég er gífurlega þakklátur, því hreyfi- geta mín hefur skerst æ meira með hverri ferðinni. Ég get varla hreyft mig án hjálpar núna, en þeir hafa hugsað fyrir öllu hjá Fish Partner og gert ráðstafanir til að koma mér inn og út úr farartækjunum og að ánum svo ég geti veitt. Þeir eru orðnir nánir vinir mínir.“ Kristján Páll Rafnsson, eigandi Fish Partner, segir það vera hverrar mínútu virði að hjálpa Colin að veiða. Í einni ferð hans til Íslands hafi hann verið of slappur til að veiða mikið, en Kristján hafi þá komið honum í nudd og í heitan pott og gert hvað hann gat til að hressa hann við. „Læknunum hans fannst ekki góð hugmynd að hann væri að koma hingað,“ segir Kristján. „Hann átti bara að liggja á dánar beðinum þar til hann dæi. Hann sagði við mig að þetta væri hans líf og að hann ætlaði ekki að verja síðustu ævidögunum niður- brotinn á spítalanum. Við erum sammála um að við séum tilbúnir til að taka það á okkur þótt hann myndi deyja á bakkanum.“ Colin áætlar að snúa heim til Bretlands á sunnudaginn, til þess að ganga frá málefnum sínum. „Þetta er síðasta veiðiferðin mín. Ég á aðeins um einn mánuð ólifaðan. Ég vildi njóta náttúrufegurðarinnar, hitta þetta góða fólk á Íslandi og veiða einu sinni enn. Þetta er mín saga.“ ■ Fór í síðustu veiðiferðirnar á Íslandi Colin rennir fyrir fisk, hann vildi ekki eyða síðustu ævidögunum á spítala. Mynd/Kristján Páll Rafnsson Hann sagði við mig að þetta væri hans líf og hann ætlaði ekki að verja síðustu ævidög- unum niðurbrotinn á spítalanum. Kristján Páll Rafnsson. Ég vildi njóta náttúru- fegurðarinnar, hitta þetta góða fólk á Íslandi og veiða einu sinni enn. Colin McKenzie. ■ Tölur vikunnar 8.000 ferkílómetrar af jöklum hafa glatast frá árinu 2000. 436 íbúðir í byggingu eru í hættu vegna bótakröfu Fasteigna- félagsins Reita vegna smáhýsa í Laugardal. 34 prósenta fjölgun hefur orðið á starfsfólki forsætisráðu- neytisins frá árinu 2017. 20 prósenta fjölgun leigubíla er áætluð í Árborg. 1.335 sæta nú einangrun vegna Covid-19 á Íslandi. Persía mottur Parki býður upp á sérvaldar handhnýttar mottur og vandaðar vélofnar mottur úr hæsta gæðaflokki. Yfir 300 mottur til á lager og sérpantanir í boði. Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi | 595 0570Finndu okkur á Facebook!facebook.com/Parki.interiors Páll Matthíasson, forstjóri Land- spítalans, segir unnið að lausn mála. lovisa@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Páll Matthíasson, forstjóri Landspítalans, segir að enn sé leitað leiða til að bregðast við þungri stöðu á gjörgæslu spítalans. Páll fundaði með Þórólfi Guðnasyni sóttvarnalækni og Svandísi Svavars- dóttur heilbrigðisráðherra í gær. Páll segir að það hafi tekist að bregðast við vandanum sem heil- brigðiskerfið standi frammi fyrir hvað varðar almenn legurými og þau sem eru á hefðbundinni bráða- deild. „En þetta er f lóknara með gjör- gæsluna því þar er sérhæft starfs- fólk. En það er verið að vinna í þessu,“ segir Páll. Alls eru 32 sjúklingar með Covid- 19 á Landspítala, þar af eru fimm í öndunarvél. Meðalaldur innlagðra er 65 ára. Þórólfur segir að 2,5 prósent þeirra sem hafi smitast hafi þurft á innlögn að halda vegna alvarlegra veikinda. „Þetta er al var leg staða finnst mér,“ segir Þór ólfur. Varðandi hvort hann muni leggja til harðari takmarkanir þá velti það á Land- spítalanum. „Það eru margir að tjá sig um það en maður hlustar ekki á það, heldur á þau sem að þar vinna og stýra spítalanum. Ég bíð bara eftir því,“ segir hann. ■ Staðan þung á gjörgæsludeild 4 Fréttir 14. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.