Fréttablaðið - 14.08.2021, Page 18
Páll Magnússon kveður
Alþingi eftir fimm ára dvöl og
segist sáttur við sitt fram
lag. Sjálfstæðisflokkurinn
eigi hins vegar við vanda að
stríða. Páll ræðir stjórnmálin
á landi og í Eyjum, baráttuna
við áfengi, arfleifð föður
síns og hvernig hann kemst í
tengsl við almættið.
Eftir að ég tók þá ákvörðun að hætta á þingi líður mér sífellt betur með hana. Áhuginn hefur að miklu leyti dofnað og neistinn
kulnað,“ segir Páll Magnússon,
þingmaður Sjálfstæðisflokksins, á
þessum tímamótum.
Ákvörðunin um framboð, fyrir
rúmum fimm árum, var nokkuð
brött. Þá lá á borði Páls tilboð um
spennandi fjölmiðlastarf sem hann
ætlaði að taka. Á síðustu stundu,
örfáum klukkustundum áður en
framboðsfresturinn í próf kjör
inu rann út, snerist honum hugur
og vann að lokum oddvitasætið í
Suðurkjördæmi.
„Þegar fór að líða að próf kjör
inu núna í maí fann ég að sú ögrun
sem var upphaflega fyrir hendi var
farin,“ segir Páll. Margir litlir hlutir
hafi komið saman og þetta var
niður staðan. „Það væri of djúpt í
árina tekið að segja að þingmanns
starfið hafi valdið vonbrigðum, því
margt fannst mér skemmtilegt og
ýmislegt gat ég lagt til málanna. Ég
hætti ekki í neinni biturð heldur
kveð ég þingið nokkuð sáttur.“
Flokkurinn í tilvistarkreppu
Fyrr í sumar skrifaði Páll grein,
sem birt var í Morgunblaðinu, um
stöðu Sjálfstæðisflokksins og þann
vanda sem hann standi frammi
fyrir. Greiningu á því hvers vegna
flokkurinn hafi verið fastur í fylgi í
kringum 25 prósentin frá hruni.
Samkvæmt Páli skýrist þetta að
stórum hluta af afstöðuleysi. Það er
að f lokkurinn þori hvorki að vera
frjálslyndur né íhaldssamur, af ótta
við að missa fólk yfir til Viðreisnar
og Miðf lokksins, sem séu þeir
f lokkar sem tekið hafa af honum
fylgi. Þá sé forysta f lokksins ekki
kölluð til ábyrgðar gagnvart fylgis
missinum og engin raunveruleg
umræða innan flokksins um hann,
heldur aðeins tuð og pískur í þröng
um hópum. Að lokum hafi það ekki
tekist að hrista af sér grunsemdir
um hagsmunaárekstur.
„Stundum finnst mér að Sjálf
stæðisflokkurinn sé orðinn nokk
urs konar f ramk væmdastjór i
Íslands. Hann hefur verið lengi í
ríkisstjórn og formaðurinn lengi í
fjármálaráðuneytinu,“ segir Páll.
Þetta orsaki það að hugsjónir og
raunveruleg stjórnmál víki fyrir
skriffinnsku og embættisræði.
„Árið 1929 runnu Íhaldsf lokk
urinn og Frjálslyndi f lokkurinn
saman í Sjálfstæðisf lokkinn og
f lestar götur síðan bar hann gæfu
til að vera breiðfylking borgaralegra
afla,“ segir Páll. „Nú hefur brotnað
úr f lokknum í báða enda og flokk
urinn er í dálítilli tilvistarkreppu.“
Þegar Páll er beðinn að staðsetja
sjálfan sig á ásnum segist hann vera
helst til íhaldsmegin. Það myndu
að minnsta kosti f lestir samflokks
menn hans segja. „Þegar kemur að
menningarlegum og þjóðlegum
gildum er ég íhaldsmaður,“ segir
hann og nefnir frumvarp dóms
málaráðherra um mannanöfn og
afnám mannanafnanefndar sem
lítið dæmi. „Ég tel íslenska nafna
hefð órjúfanlegan hluta af íslenskri
málstefnu, tungu og sögu og engin
ástæða til að höggva á þá tengingu
og gefa mannanöfn algerlega frjáls.“
Hollusta verði ekki meðvirkni
Aðspurður segir Páll atvinnumálin
hafa skipt hann mestu og þá eink
um sjávarútvegurinn. Lengi hafi
verið ósætti um fiskveiðistjórn
unarkerfið, sem sé ekki hjálplegt.
Sjálfur lagði hann fram frumvarp í
vetur sem átti að stemma stigu við
Fyrst og fremst Eyjamaður
Páll telur eðli-
legt að Sjálf-
stæðismenn
spyrji spurninga
um forystuna
þegar illa gangi
í kosningum
og opin um-
ræða sé lífblóð
flokksins.
Fréttablaðið/
Valli
of mikilli samþjöppun á eignar
haldinu.
„Mér finnst að Sjálfstæðisflokk
urinn ætti að taka frumkvæðið í að
laga agnúa á fiskveiðistjórnunar
kerfinu, sem í grundvallaratriðum
er gott“ segir Páll. Hingað til hafi
f lokkurinn staðið vörð um óbreytt
kerfi, sem sé ekki til þess að minnka
grunsemdirnar um hagsmuna
árekstur. Sérstaklega ekki þegar
sjávarútvegsráðherra hafi sterk
tengsl við stærstu útgerðina.
„Þegar kemur að grundvallar
atvinnuvegi þjóðarinnar á Sjálf
stæðisflokkurinn ekki að sitja hjá
aðgerðalaus,“ segir Páll.
Páll bendir á að samkvæmt nýj
asta Þjóðarpúlsi Gallup sé flokkur
inn á sama stað og hann var í kosn
ingunum eftir hrunið, sínu lægsta
fylgi í sögunni. Flokksmenn hafi þá
trúað að leiðin gæti ekki legið nema
upp á við. Það hafi hins vegar ekki
gerst, þrátt fyrir mikla uppgangs
tíma í efnahags og atvinnumálum
fram að faraldrinum.
„Í Sjálfstæðisf lokknum hefur
skapast andrými fyrir þá skoðun að
þú sért að bregðast flokknum með
því að gagnrýna forystuna,“ segir
Páll. „Ég vil hins vegar meina að þú
sért að bregðast með því að gera það
ekki þegar þörf er á, eins og nú er.“
Páll segist ekkert endilega vera á
þeirri skoðun að forysta f lokksins
eigi að víkja en umræðan væri líf
blóð f lokksins. „Hollusta við for
mann má ekki breytast í meðvirkni,
því þá er hún skaðleg,“ segir hann.
„Sjálfstæðismenn hljóta að ræða
hvort það sé fullreynt að ná árangri
með núverandi formanni og for
ystu.“
Viðbrögðin við greininni létu
ekki á sér standa og Páll segir flesta
sem höfðu samband hafa verið sam
mála. Sumir hafi þó verið ósáttir við
birtinguna, jafnvel þó að þeir væru
sammála efninu. Fæstir hafi verið
ósammála því.
Þó Páll hafi hrist upp í Sjálfstæðis
f lokknum á sinni útleið af þingi
segist hann ekki hættur í f lokkn
um. Það geti vel komið til greina
að bjóða kraftana fram á öðru stigi
stjórnmálanna ef svo bæri undir.
Páll jánkar því að rætt hafi verið við
sig um sveitarstjórnarkosningarnar,
sem fram fara næsta vor. „Já, já, það
er ýmislegt skrafað og skeggrætt en
ég er ekkert að pæla í því núna.“
Meirihlutinn féll fyrir eigin hendi
Róstusamt hefur verið í Sjálf
stæðisf lokknum í Eyjum undan
farin ár og var Páll dreginn inn í
þær deilur. Rótin að þessu voru
deilur um hvort halda ætti prófkjör
fyrir bæjarstjórnarkosningarnar
2018, sem lauk með því að stór hluti
f lokksmanna fylkti sér á bak við
listann Fyrir Heimaey, með Írisi
Róbertsdóttur í fararbroddi. Páll
var sakaður um að styðja ekki við
Dlistann í kosningunum og var
að lokum vikið úr fulltrúaráðinu í
Vestmannaeyjum.
„Fyrir mér snerist þetta um prin
sipp,“ segir Páll og rifjar upp að
tillaga um uppstillingu hafi verið
Kristinn Haukur
Guðnason
kristinnhaukur
@frettabladid.is
Í Sjálf-
stæðis-
flokknum
hefur
skapast
andrými
fyrir þá
skoðun að
þú sért að
bregðast
flokknum
með því að
gagnrýna
forystuna.
18 Helgin 14. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ