Fréttablaðið - 14.08.2021, Qupperneq 22
Kannski er
ég af sein-
ustu kyn-
slóð
manna
sem veiða
villtan lax.
Bubbi Mort-
hens, tónlistar-
maður og stang-
veiðimaður.
Myndbönd sem kajak-
ræðarinn Veiga Grétarsdóttir
tók af illa förnum eldislaxi
sýna að fiskeldið hér á Íslandi
glímir við sömu vandamál og
erlendis. Stangveiðimaður-
inn Bubbi Morthens harmar
undanlátssemi eftirlitsstofn-
ana við fyrirtækin, sem maki
hér krókinn.
Eldislax í kvíum gengur í gegnum alls konar við-bjóð. Hann er ug ga-skemmdur, særður og sýktur. Í hann er dælt
sýklalyfjum og hann þarf að synda
hring eftir hring. Þetta hefur verið
vitað lengi og þess vegna eru æ
fleiri lönd að banna laxeldi í opnum
kvíum og æ fleiri fyrirtæki að færa
eldið upp á land,“ segir Bubbi Mort-
hens, tónlistarmaður, stangveiði-
maður og náttúruunnandi.
Fyrir skemmstu voru birt mynd-
bönd á RÚV af illa förnum eldislaxi
í sjókvíum á Vestfjörðum. Var hálf-
ur haus þeirra farinn af og slæm sár
á hliðum þeirra.
Bubbi og f leiri laxveiðimenn
hafa lengi talað gegn sjókvíaeldi,
sem og Verndarsjóður villtra laxa-
stofna og Icelandic Wildlife Fund.
Engu að síður hefur iðnaðurinn
aðeins stækkað hér á Íslandi og það
mjög hratt.
Það er ekki aðeins velferð eldis-
laxanna sjálfra sem er undir, að
mati Bubba, heldur umhverfisins
og annars lífríkis. „Mengunin sem
fylgir laxeldinu er á við tugþúsunda
manna byggð. Bæði dauðir og lifandi
laxar skila af sér úrgangi og fóðrið
sekkur niður á botn. Þetta er að eyða
öllu lífríki langt út fyrir kvíarnar
sjálfar,“ segir hann. „Í Noregi eru
rækjumiðin í kringum stöðvarnar
að hverfa og firðirnir að deyja.“
Geta hagað sér að vild
Ein hættan er að eldislax sleppi
ú r sjók v íu nu m og bla nd i st
v i l l t u m í s l e n s k u m l öx u m
í ánum. Samkvæmt Verndarsjóðn-
um eru villtir laxar aðeins um 50 til
80 þúsund, miðað við tæplega 16
milljónir eldislaxa, sem gætu farið
upp í 45 milljónir.
Rannsóknir á Vestfjörðum sýna
þegar erfðablöndun vegna slysa-
sleppinga.
Bubbi hefur ekki aðeins áhyggjur
af erfðablönduninni heldur einnig
þeirri lús sem eldislax ber með sér
í árnar og smitar villta laxa af. „Þeir
lifa það ekkert af. Kannski er ég af
seinustu kynslóð manna sem veiða
villtan lax,“ segir Bubbi.
Bubbi bendir á að eigendur eldis-
stöðvanna séu að stærstum hluta
Norðmenn sem hafi komið hingað
vegna þess að þrengt hafi verið að
þeim í heimalandinu. „Hér sáu þeir
tækifæri til þess að hala inn gígan-
tískar peningaupphæðir og geta
hagað sér að vild,“ segir hann.
Aðspurður segir Bubbi þá eftir-
litsaðila sem til eru, Umhverfis-
stof nu n, Mat væla stof nu n og
Fiskistofu, algerlega hafa brugðist
hlutverki sínu. Sú undanlátssemi
sem eldisfyrirtækjunum sé sýnd
skýrist af pólitík. „Á landsbyggð-
inni eru vandamál og fólk þarf að
hafa vinnu,“ segir hann.
Séð sveimara í hverri kví
„Ég var að róa fram hjá kví þegar
ég sá dauðan skarf í neti. Þegar ég
réri nær sá ég dauða fiska f ljótandi
á yfirborðinu,“ segir Veiga Grétars-
dóttir kajakræðari, sem tók mynd-
efnið upp. Í kjölfarið fór hún í f leiri
kvíar í Arnarfirði og Dýrafirði til
þess að skoða hvort þar væri sama
sagan.
Talsmenn eldisfyrirtækjanna,
Arctic Fish og Arnarlax, hafa sagt
þetta undantekningar og sá fyrr-
nefndi lýst efasemdum um að
myndefnið sem Veiga tók upp komi
úr þeirra kvíum.
„Ég hef séð þetta í hverri einustu
kví sem ég hef komið að, þó ég hafi
ekki myndað í öll skiptin,“ segir
Veiga.
Eldið ekkert skárra
á Íslandi en
annars staðar
Sárin á eldislaxinum ná ekki að gróa og hann blindast loks og drepst. MYND/VEIGA GRÉTARSDÓTTIR
Bubba er um-
hugað um
náttúruna og
villta íslenska
laxastofninn.
Veiga Grétarsdóttir kajakræðari skoðaði og myndaði margar opnar sjókvíar eftir að hún fann illa farna og dauða laxa. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Kristinn Haukur
Guðnason
kristinnhaukur
@frettabladid.is
Þessir fiskar eru kallaðir sveim-
arar, þar sem þeir sveima á yfir-
borði kvíanna, blindir af sárum
sem ná ekki að gróa. Sár sem
myndast vegna nudds við netið og
þrengsla í kvínni.
Byggðirnar verða háðar
Elvar Ör n Friðrik sson, f ram-
kvæmdastjóri Verndarsjóðsins,
segir myndefni Veigu sýna að
fiskeldið hér á landi sé að stefna
í nákvæmlega sömu átt og það
hefur gert víða erlendis. Með til-
heyrandi áhrifum á villta stofna,
svo sem lax, urriða og bleikju og
mengun umhverfisins. „Þetta sýnir
að ástandið hér er ekkert skárra en
annars staðar,“ segir hann.
Samkvæmt Elvari er ein helsta
hættan sú að ótraustum kvíum
fjölgi og fjölgi. Sleppi mikið magn
í einu gæti það orðið stórslys fyrir
íslenska náttúru, sem hafi verið í
þróun um þúsundir ára.
„Ég er mjög hræddur um að þetta
aukist til til muna. Það er búið að
gefa út heimildir fyrir töluvert
mikla stækkun og eldisiðnaður-
inn hefur gefið það sterklega í ljós
að hann vill enn meira en búið er
að heimila,“ segir Elvar. Heimildin
nær upp á um 100 þúsund tonn en
framleiðslan er um 40 í dag.
Elvar harmar það hvað stjórn-
völd hafa tekið lítið mark á þessari
hættu þrátt fyrir háværar gagnrýn-
israddir. Þegar fiskeldislöggjöfin
fór í gegnum Alþingi fyrir tveimur
árum síðan beitti Verndarsjóður-
inn sér fyrir því að fá vitnisburði
óháðra erlenda vísindamanna. „Því
miður var lítið sem ekkert tekið
mark á því og nánast ekkert rataði
inn í löggjöfina,“ segir Elvar.
Elvar beinir spjótum sínum að
Guðmundi Inga Guðbrandssyni
umhverfisráðherra, Vinstri græn-
um og öðrum stjórnmálamönnum
sem telja sig bera hagsmuni náttúr-
unnar fyrir brjósti.
„Þeir f lokkar sem eiga að standa
fyrir umhverfið eru ekki að beita
sér í þessum málum,“ segir Elvar.
„Þetta verður líka sífellt erfiðara
því byggðir fyrir vestan og austan
eru byrjaðar að treysta á þennan
iðnað.“
Vilja eldið upp á land
Bubbi, Veiga og Elvar eru öll sam-
mála um að það að færa eldið upp
á land sé eina leiðin. En fiskeldis-
stöðvar hafa borið fyrir sig að því
fylgi aukinn kostnaður.
„Ég styð landeldi heilshugar,“
segir Bubbi. „Það er dýrara, en að
sama skapi færðu betri afurð og
fólk getur haft betri samvisku að
kaupa hana. Ég hvet alla til að fara
með laxeldið upp á land.“
Elvar bendir á að sjókvíaeldi sé
ódýrasta aðferðin til að framleiða
lax en munurinn sé langt því frá
óyfirstíganlegur.
„Munurinn í startkostnaðinum er
töluverður en þegar þetta er komið
á legg er kostnaðurinn svipaður.
Þess vegna eiga stjórnvöld að skapa
hvata fyrir landeldi,“ segir hann, um
hvernig hægt sé að bregðast við.
„Að færa eldið upp á land myndi
valda því að það væri engin laxalús,
engar slysasleppingar og erfða-
blöndun við villta íslenska stofna.
Það væri líka hægt að stjórna öllum
úrganginum frá eldinu og endur-
vinna hann í bíódísel eða áburð.“ n
22 Helgin 14. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ