Fréttablaðið - 14.08.2021, Page 24

Fréttablaðið - 14.08.2021, Page 24
Hartmann hefur stundað hjól- reiðar markvisst í nokkur ár en hnévandamál hafa sett strik í reikninginn. „Ég er með léleg hné og er búinn að fara í nokkrar aðgerðir,“ segir Hartmann. „En ég hef verið að nota Active Joints núna í dálítinn tíma og það hefur gert mér kleift að hjóla verkjalaus. Ég var alltaf að drepast úr verkjum áður, bæði meðan ég hjólaði og eftir álag, en núna finn ég varla fyrir því.“ Hartmann segist einnig hafa fundið fyrir óvæntum jákvæðum áhrifum eftir hann fór að taka inn Active Joints. „Ég var lengi búinn að vera frekar slæmur af brjóstsviða en hann hefur minnkað eftir að ég fór að taka inn þessi bætiefni, það var alveg óvænt. Þetta hefur líka haft jákvæð áhrif á gigt í höndunum. Ég var oft að fá verki í hendurnar undir álagi, en það er lítið um það núna. Þetta virkar náttúrulega á alla liðina. Ég upplifi þetta eins og verið sé að smyrja liðina“ segir Hartmann, sem er alls ekki á því að hætta að nota Active Joints. „Það er alls ekki á dagskrá, maður er orðinn alveg húkkt á þessu,“ segir hann og hlær. Hartmann tekur þrjú hylki á dag, yfirleitt á morgnana og segir að ef hann verði uppiskroppa með bætiefnið þá líði kannski vika þar til hann byrjar að finna fyrir verkjum aftur. Hartmann hefur keppt í hjól- reiðum í aldurshópnum 60 plús en í júlí keppti hann í KIA gullhringn- um og vann fyrstu verðlaun. „Það voru 15 sem tóku þátt í 60 plús flokknum, sumir mjög öflugir svo ég var mjög ánægður með sigur- inn. Um helgina hjólaði ég svo 205 kílómetra og fann ekki fyrir neinu eftir það. Þetta hefði ekki verið séns áður en ég fór að taka inn Active Joints,“ segir Hartmann ánægður. n Hartmann hefur keppt í hjólreiðum í aldurshópnum 60 plús en í júlí keppti hann í KIA gullhringnum og vann fyrstu verðlaun. Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is, s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Hreinar íslenskar vörur Active Joints bætiefnið frá Eylíf er sérhönnuð blanda sem inni- heldur kalkþörunga, smáþör- unga, Geo Silica kísil og birkilauf. Margra ára rannsóknir sýna fram á jákvæð áhrif næringarefnanna á bein, liði, meltingu og húð. Auk þess inniheldur bætiefnið C- og D3-vítamín. Fyrirtækið Eylíf fram- leiðir fæðubótarefni úr hágæða íslenskum hráefnum. Auk Active Joints framleiðir Eylíf Stronger Bones, Smoother Skin & Hair og Happier Guts. Ólöf Rún Tryggva- dóttir, stofnandi fyrirtækisins, leggur áherslu á að nota hrein hráefni frá sjálf bærum auð- lindum. Vörurnar eru fram- leiddar á Grenivík en þróun þeirra er unnin í samstarfi við sérfræðinga hjá Matís. „Ég sæki hráefnið í lífið á eyjunni okkar fögru, bæði frá sjó og landi. Þangað sæki ég líka nafnið á fyrirtækinu, það táknar lífið á eyjunni til eilífðar. Ég er að auðvelda almenningi aðgengi að þessum frábæru hráefnum sem til eru hér heima. Ég kem með aðeins aðra nálgun að hráefn- unum en margir aðrir. Ég blanda til dæmis saman efnum sem aðrir hafa ekki verið að blanda saman eins og kalkþörungum og GeoSil- ica kísli sem kemur frá heita- vatnsaffallinu á Hellisheiði, og geri með því virkni þeirra jafnvel ennþá öflugri,“ segir Ólöf Rún. „En svo kemur Matís að borð- inu og stillir upp blöndunni. Þau benda á hvað þarf að fara út og hvað getur komið í staðinn, svo setja þau upp allt næringargildið enda eru það þau sem eru sér- fræðingarnir. Auk náttúrulegra hráefna sem vaxa hér á landi styrki ég blönduna með til dæmis C- og D-vítamíni. En hugsunin er að nota þessi hreinu, íslensku, frábæru hráefni frá sjálfbærum auðlindum til að bæta heilsu fólks. Öll hráefnin hafa staðfesta verkun. Þess vegna vel ég þau.“ Eylíf vörurnar fást í öllum apótekum, Fjarðarkaup, Hagkaup, Heilsuhúsinu, Melabúðinni og Nettó. Ókeypis heimsending af www.eylif.is Bætiefnalínan frá Eylíf samanstendur af Happier Guts, Active Joints, Stronger Bones og Smoother Skin & Hair. Fæðubótarefni kemur ekki í stað- inn fyrir fjölbreytta fæðu. Ekki ætlað börn- um eða barnshafandi konum. Ekki er ráðlagt að taka meira en ráð- lagður dagskammtur segir til um. Geymist þar sem börn ná ekki til. 2 kynningarblað A L LT 14. ágúst 2021 LAUGARDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.