Fréttablaðið - 14.08.2021, Page 27

Fréttablaðið - 14.08.2021, Page 27
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is. Sótt er um störfin á hagvangur.is. Umsóknarfrestur er til og með 29. ágúst. Framkvæmdastjórar hjá Landsbankanum Öflug áhættustýring er grundvöllur að traustum rekstri Landsbankans og leggjum við áherslu á skilvirkni og gagnadrifna áhættustýringu. Framkvæmdastjóri Áhættustýringar þarf að hafa víðtæka reynslu af banka starfsemi, haldgóða þekkingu á helstu áhættu­ þáttum í rekstri bankans og yfirburða greiningar­ og samskiptahæfni. Samfélag er nýtt svið sem er leiðandi í að móta menningu bankans. Við viljum vera virkur þátttakandi í samfélaginu, bæði innan og utan bankans, vera í góðum samskiptum við viðskiptavini og starfsfólk, þróast og fræða. Í Samfélagi koma saman mann­ auðsmál, markaðsmál, fræðsla, samskipti, sjálfbærni og greiningar á efnahagsmálum. Framkvæmdastjóri Áhættustýringar Framkvæmdastjóri Samfélags Landsbankinn leitar að öflugu og framsýnu fólki sem vill koma í kraftmikinn hóp starfsfólks bankans. Við viljum liðs­ félaga sem hafa brennandi áhuga á að móta nýja tíma í fjármálaþjónustu fyrir fyrirtæki og einstaklinga, þar sem ánægðir viðskiptavinir, stöðug framför og árangur skipta máli. Framkvæmdastjórar bera í sameiningu ábyrgð á að ná markmiðum bankans og sinna daglegum rekstri sinna sviða. Starfsánægja hefur aldrei mælst meiri og er Landsbankinn meðal topp 10 fyrirtækja á Íslandi í kjarnaspurningum Gallups. Landsbankinn er jafnlaunavottaður vinnustaður. Landsbankinn mælist efstur banka í Íslensku ánægjuvoginni. Ný stefna bankans, Landsbanki nýrra tíma, var kynnt í lok síðasta árs. Markmið okkar er að einfalda viðskiptavinum lífið. Bankinn hefur í tvö ár mælst efstur banka í Íslensku ánægjuvoginni og yfir 40 nýjungar í stafrænni bankaþjónustu hafa verið kynntar á síðustu misserum. Við erum í 1. sæti í UFS­áhættumati Sustainalytics af 423 bönkum sem fyrir­ tækið hefur metið í Evrópu. Um 40% landsmanna eru í viðskiptum við bankann og þriðjungur allra fyrirtækja á landinu. Traust er undirstaða stefnunnar og er jafnframt gildi bankans. LANDSBANKINN. IS Mest lesna atvinnublað Íslands* Atvinnublaðið Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Arna Rut Kristinsdóttir, arnarut@frettabladid.is 550 5621 *Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.