Fréttablaðið - 14.08.2021, Qupperneq 60
Harmageddon-
bræður, Frosti
Logason og
Máni Pétursson,
eru tilbúnir í
tímabilið.
Jón Atli og sonur
hans Friðrik
horfa saman á
boltann.
Enska úrvalsdeildin í knatt-
spyrnu er loksins hafin.
Eftirvæntingin hefur verið
mikil, enda búist við jafnari
titilbaráttu en undanfarin
ár. Oft er sagt að sá enski sé
þjóðarsport Íslendinga, að
minnsta kosti er hann helsta
þjóðarsófasportið.
Fréttablaðið ræddi við dygga stuðn-
ingsmenn átta mismunandi liða úr
úrvalsdeildinni sem búist er við að
verði í eldlínunni í vetur. Það eru
Manchester United, Manchester
City, Liverpool, Everton, Arsenal,
Chelsea, Tottenham og Leeds.
Sumir þeirra hafa ástæðu til bjart-
sýni fyrir tímabilið en aðrir stilla
væntingum sínum í hóf.
Aðdáendur enska boltans munu
strax taka eftir stórri breytu í upp-
hafi tímabilsins, sem er endurkoma
áhorfendanna.
En vegna faraldursins hefur fjöldi
þeirra verið takmarkaður og um
langan tíma var spilað á tómum
leikvöngum. ■
Sá enski rúllar af stað
Tekur þrjú ár að vinna deildina
Það var ekki sigurleikur sem kveikti Leeds-bakteríuna hjá Þorkeli Mána Péturssyni
útvarpsmanni, heldur tap. Nánar tiltekið hetjulegt 4-5 tap liðsins gegn þáverandi
meisturum Liverpool fyrir 30 árum síðan.
„Ég ákvað að halda með Leeds í þessum leik til þess að pirra frænda minn. Ég varð
síðan heillaður af attitjúdinu í þessu liði, þeir voru nýliðar í deildinni þarna,“ segir Máni.
„Þegar menn byrja að kynna sér Leeds er ekkert aftur snúið.“
Leeds heillaði marga á síðasta tímabili með djörfum leik eftir að hafa dvalið í neðri
deildunum í sextán ár. Máni man hins vegar eftir Leeds sem enskum meistara, árið
1992. „Það tók Leeds tvö ár að verða meistarar þegar þeir komu upp síðast. Ég verð
nú seint sakaður um að vera sá bjartsýnasti en ég segi að það taki þá þrjú ár að vinna
deildina núna,“ segir Máni.
Aðspurður um uppáhaldsleikmanninn nefnir Máni suður-afríska varnarmanninn
Lucas Radebe. „Hann var svo tryggur félaginu og drap allan rasisma í borginni,“ segir
hann.
„Árangurinn er alltaf annað hvort eða,“ segir Máni, um þetta tímabil sem er að hefj-
ast. „Annað hvort fara þeir í Evrópubaráttu eða að þeir gera tímabilið mjög erfitt og
stuðningsmennirnir verði með í maganum. Mér er alveg sama hverjir verða meistarar
… svo lengi sem það er ekki Manchester United.“
Aldrei séð eftir að skipta yfir í City
Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, er einn af dyggustu stuðningsmönnum
Manchester City á Íslandi til þrjátíu ára. Hann hefur þrívegis séð liðið falla, þar á meðal
niður í þriðju deild, og vinna fimm Englandsmeistaratitla. En þar á undan hélt hann
reyndar með Liverpool í tæp tuttugu ár.
„Ég var alveg búinn að fá nóg af Liverpool, það voru alltaf svo miklar væntingar. Því
ákvað ég að skipta yfir í City, sem var lið fólksins og væntingarnar talsvert minni,“ segir
Jón Atli. „Ég hef aldrei séð eftir því.“
Jón Atli segir það hafa verið mjög gefandi að fylgjast með City í gegnum árin, meira
að segja þau erfiðu í kringum aldamótin. Hann bjóst aldrei við yfirtökunni og vel-
gengninni sem hefur einkennt síðustu ár.
Af leikmönnum liðsins er Fernandinho, hinn 36 ára brasilíski miðjumaður, í mestum
metum hjá Jóni Atla. „Hann er bæði góður leikmaður og hefur verið kjölfestan í liðinu
um langa hríð,“ segir Jón Atli. Sá leikur sem situr hvað fastast í minninu er vitaskuld
hinn dramatíski leikur gegn QPR árið 2012 þegar City tryggði sér titilinn með tveimur
mörkum í uppbótartíma, þar af öðru á lokasekúndunum.
Jón Atli er bjartsýnn fyrir komandi tímabil, enda City ríkjandi meistari og hefur
styrkt sig í sumar. „Ég held að tímabilið byrji rólega og það væri gott að kaupa fram-
herja. En þessi hópur og þessi þjálfari geta unnið Englandsmeistaratitilinn aftur og
verið mjög framarlega í Evrópu,“ segir hann. Það er einmitt meistaradeildartitillinn
sem vantar í skápinn.
Kristinn Haukur
Guðnason
kristinnhaukur
@frettabladid.is
Liverpool vinnur sinn tuttugasta titil
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er einn þekktasti stuðningsmaður Liverpool á
Íslandi. Hún hefur stutt liðið síðan hún var fimm ára gömul. „Þá sat ég með pabba á
laugardögum og hlustaði á Bjarna Fel og hreifst af rauðu búningunum og markmann-
inum, Bruce Grobbelaar, sem mér fannst alveg geggjuð týpa,“ segir Katrín um þennan
tíma.
„Það var enginn annar á heimilinu í þessu liði þannig að þetta var sjálfstæð ákvörð-
un,“ segir Katrín, um það val að styðja Liverpool. „Þetta byrjaði kannski fyrir alvöru
1984 þegar ég fór með pabba að sjá KR mæta Liverpool á Laugardalsvellinum, þar sem
eitt sterkasta lið sem Liverpool hefur átt mætti til leiks. Leiknum lauk með jafntefli en
þarna sá ég leikmenn eins og Kenny Dalglish, Ian Rush, Alan Hansen og Bruce Grobb-
e laar sem áttu eftir að sópa til sín bikurum. Að sjá þetta lið með berum augum var
magnað og lengi vel átti ég úrklippu úr dagblaði með mynd af Liverpool.“
Katrín segir þennan leik einn þann minnisstæðasta auk 4-0 sigurs í undanúrslitum
meistaradeildarinnar á Barcelona árið 2019. Liverpool hafði tapað fyrri leiknum 3-0 og
komst því í úrslitaleikinn sem liðið vann.
Að velja sinn uppáhaldsleikmann segir Katrín eins og að velja milli barnanna sinna
en skoski framherjinn Kenny Dalglish tróni á toppnum. Hann hafi bæði verið stór-
kostlegur leikmaður og áhrifamikill knattspyrnustjóri hjá liðinu. Framgangan eftir
Hillsbrough-slysið árið 1989 hafi gert hann að goðsögn.
„Ég er auðvitað bjartsýn að eðlisfari eins og allir alvöru Púllarar og ég er viss um að
liðið verður í baráttu um titilinn á þessu tímabili,“ segir Katrín um komandi tímabil.
Hún hefur mikla trú á þjálfaranum Jürgen Klopp, hans stjórnunarstíl og viðhorfum til
lífsins. Það er að taka sig ekki of hátíðlega, leggja hart að sér en gleyma ekki húm-
ornum.
„Við vorum alveg einstaklega óheppin með meiðsli í fyrra þegar mestöll varnarlínan
datt út stærstan hluta tímabilsins. En nú er bara að krossa fingur og vona að Klopp hafi
styrkt þetta vel og leyfa sér að hlakka til tímabilsins,“ segir Katrín. „Liverpool er að fara
að vinna sinn tuttugasta Englandsmeistaratitil. Lásuð það fyrst hér. YNWA.“
Katrín hefur
stutt Liverpool
frá fimm ára
aldri.
24 Helgin 14. ágúst 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ