Fréttablaðið - 06.08.2021, Page 2
Mótmæltu bólusetningum barna
Tugir söfnuðust saman fyrir framan heilbrigðisráðuneytið í gær og mótmæltu bólusetningum barna með skilaboð um þau væru ekki tilraunadýr.
FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Aðalfundur Samtaka lungnasjúklinga verður haldinn
mánudaginn 23. ágúst klukkan 17:00
í Sal 4 á Hotel Natura (Hótel Loftleiðum)
Nauthólsvegi 52, 102 Reykjavík
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf, samkvæmt lögum samtakanna.
2. Tillaga að breytingu á heiti samtakanna.
3. Lagabreytingar.
4. Önnur mál.
Vonumst til að sjá ykkur sem flest.
Stjórnin.
Aðalfundur
Samtaka lungnasjúklinga
Með fyrirvara um ástandið á covidfaraldrinum.
Úlfar Lúðvíks-
son, lögreglu-
stjóri á Suður-
nesjum.
arnartomas@frettabladid.is
ELDGOS Lögreglan á Suðurnesjum
hefur að undanförnu ítrekað á
Facebook-síðu sinni hve hættu-
legt það sé að stíga á hraunið á gos-
svæðinu. Úlfar Lúðvíksson, lög-
reglustjóri á Suðurnesjum, segir
lítið hægt að gera til að koma í veg
fyrir það.
„Það eru alltaf einhverjir sem
fara út á hraunið. Það verður seint
komið alveg í veg fyrir það,“ segir
hann. „Það eru kannski helst þeir
sem eru næst vettvangi sem þurfa
að hafa afskipti af þeim, en það
hefur svo sem ekkert farið úrskeið-
is.“
Úlfar telur að algengara sé að
ferðamenn hætti sér út á hraunið
en heimamenn en lítið sé við því
að gera. „Við erum ekki að sekta
fólk,“ segir hann. „Þetta tekur yfir-
leitt hratt af og ef einhver verður
vitni að þessu þá er viðkomandi
einfaldlega beðinn um að fara af
hrauninu.“ ■
Ekki sektað fyrir
að stíga á hraunið
thorvaldur@frettabladid.is
ÍSLENSKA Kynhlutlausa persónufor-
nafninu hán verður bætt við orða-
bækur Stofnunar Árna Magnús-
sonar í íslenskum fræðum en það
hefur hingað til ekki verið að finna í
orðabókum stofnunarinnar. Þórdís
Úlfarsdóttir, rit stjóri vef orða bóka,
staðfestir þetta og segir málið vera
í vinnslu.
Þórdís segist ekki geta svarað því
hvenær hán muni bætast við orða-
bækur Árnastofnunar enda taki
þau inn ný orð í holskeflum, oftast
á bilinu 20 til 100 orð í einu.
Þórdís segir að ákvörðunin um að
taka inn nýtt persónufornafn hafi
ekki verið auðveld.
„Við vitum að þetta er umdeilt
ekki bara hjá stofnuninni heldur
víða í samfélaginu. Af því að fornöfn
eru svokölluð kerfisorð í málinu og
maður leikur sér ekki að því að bæta
við kerfisorðum bara einn góðan
veðurdag,“ segir hún.
Árnastofnun heldur úti ýmsum
orðabókum og orðasöfnum á
netinu og má þar til dæmis nefna
Beygingarlýsingu íslensks nútíma-
máls, Íslenska nútímamálsorðabók
og Íslenskt orðanet. Gera má ráð
fyrir því að persónufornafnið hán
muni bætast við þessar orðabækur
á næstu misserum. ■
Hán skráð í orðabækur Árnastofnunar
Þórdís Úlfars-
dóttir, rit stjóri
vef orða bóka hjá
Stofnun Árna
Magnús sonar.
Skipulags- og umhverfisnefnd
hefur veitt leyfi fyrir eld-
flaugaskoti frá Brimnesi. Atli
Þór Fanndal hjá Geimvísinda-
og tækniskrifstofu Íslands
vonast til þess að eldflauga-
geirinn hefji varanlegt starf á
Íslandi.
thorgrimur@frettabladid.is
VÍSINDI Undirbúningur fyrir annað
eldflaugaskot frá Brimnesi stendur
nú yfir, en heimild þess efnis var
veitt af skipulags- og umhverfis-
nefnd Langanesbyggðar í júlí.
Eldf laugin tilheyrir fyrirtækinu
Skyrora, sem vinnur með Geim-
vísinda- og tækniskrifstofu Íslands,
eða Space Iceland, við eldflaugaskot
frá Íslandi.
Skyrora skaut síðustu flaug sinni
af Langanesi í ágúst í fyrra. Líkt og
þá er nú um að ræða tilraunaskot
en lokamarkmiðið með eldflaug-
unum er að bera gervihnetti á spor-
baug. „Við erum núna farin í f laug
sem heitir Skylark L,“ segir Atli Þór
Fanndal hjá Geimvísinda- og tækni-
skrifstofunni. „Hún er tólf metrar á
hæð og getur flutt farm, sem hin gat
ekki.“
Atli Þór segir að þrátt fyrir vinda-
samt veðurfar geri ýmsir þættir
Ísland ákjósanlegt fyrir eldflauga-
skot. „Þegar maður er að velja skot-
stað fyrir eldf laug þarf að hugsa
um milljón hluti. Hér er auðvelt að
finna staði sem eru með tiltölulega
góða innviði en eru samt ekki inni í
byggð. Loftrýmislöggjöf er líka til-
tölulega þróuð og góð. Veðráttan
hérna er náttúrlega eins og hún
er. Það sem kemur á móti er að við
eigum rosalega góð veðurgögn á
Íslandi – bæði söguleg og erum með
góða veðurþjónustu.“
Að sögn Atla áætlar Skyrora að
skjóta flaugum nokkuð reglulega á
loft að loknum tilraunaskotum en
óljóst er hvort það verður á Íslandi.
„Þess vegna erum við í Space Iceland
með þessum aðilum, til þess að þeir
komi með viðvarandi starfsemi
hingað. Það er ákvörðun sem yfir-
völd verða að taka og hvort þau vilji
hafa svona starfsemi til frambúðar.“
„Ég held að yfirvöld séu hvorki
mótfallin né virk í að laða þennan
geira að,“ bætir Atli við. „Okkar
upplifun hefur verið sú að þær
stofnanir sem við vinnum með séu
mjög hjálpsamar, en nýsköpunar-
og atvinnustefnan á Íslandi er yfir-
valda að ákveða.“
Atli segir eldflaugarnar umhverf-
isvænar og leggur fram að gervi-
hnettirnir verði nýttir í þágu
umhverfisverndar. „Eldflaugarnar
nota umhverfisvænt eldsneyti úr
endurunnu plasti. Þær nota þotu-
eldsneyti að einhverju leyti og
nokkuð sem kallast HTP. Eldflaug-
arnar eru úr evrópskum iðnaði, en
ekki amerískar sem skilja eftir sig
eiturský. Bíll eyðir meira á einu ári
en svona eldflaug. Þær eru notaðar
til að koma gervihnöttum á spor-
baug sem við notum í baráttunni
gegn loftslagsbreytingum og eiga að
veita okkur gögn um loftslagsbreyt-
ingar, súrnun sjávar og þannig.“ ■
Út í geim frá Langanesbyggð
Síðustu tilraunaeldflaug Skyrora var skotið frá Langanesi í ágúst árið 2020.
Næsta eldflaugaskot er einnig í tilraunaskyni en í þetta sinn mun eldflaugin
geta borið farm. MYND/AÐSEND
Ég held að yfirvöld séu
hvorki mótfallin né
virk í að laða þennan
geira að.
Atli Þór Fanndal
hjá Geimvísnda
og tækniskrif-
stofunni.
2 Fréttir 6. ágúst 2021 FÖSTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ