Fréttablaðið - 06.08.2021, Page 10
n Halldór
n Frá degi til dags
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is,
FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Eftir bólu-
setningu
lands-
manna á
ekki lengur
að einblína
á smit.
Stefna
Íslands er
einföld:
Allir eiga
að njóta
mann-
réttinda
og frelsis,
óháð kyni,
kynhneigð,
kynvitund,
kynein-
kennum
og kyntján-
ingu.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb
@frettabladid.is
Sóttvarnayfirvöld og stjórnmálamenn verða að gæta þess að tala ekki niður bólusetningar við Covid. Of oft hafa heyrst setningar eins og: „Við höfum orðið fyrir vonbrigðum með bólusetningarnar,“ og: „Bólsetningar hafa því
miður ekki skilað því sem við bjuggumst við.“
Þessi orð eru eins og hunang á vörum andstæðinga
bólusetninga sem margsmjatta á þeim. „Bólusetningar
virka ekki, sjáið bara öll smitin,“ gelta afneitunarsinn-
arnir. Margir þeirra halda því síðan fram, rétt eins og
það sé hver önnur staðreynd, að bóluefnin hafi valdið
meiri skaða en Covid.
Í símatíma útvarpsstöðvar hélt einn hlustandi því
fram, og sagðist hafa eftir erlendum lækni, að innan
sex ára yrðu allir þeir sem fengið hefðu bólsetningu
látnir. Þetta hljómar eins og krassandi söguþráður
í metsölubók eftir meistara hryllingsins, Stephen
King, en í raunveruleikanum ganga svona full-
yrðingar engan veginn upp. Hlustandinn á útvarps-
stöðinni var samt sannfærður, en rétt er að taka fram
að umsjónarmaður þáttarins tók ekki undir þessa
skoðun hans. Annar hlustandi hélt því síðan fram að
erlendis hefðu bólusettar ófrískar konur í stórum stíl
hnigið örendar niður.
Sú sem þetta skrifar heyrði á dögunum konu fullyrða
staðfastlega að í bólusetningu í Laugardalshöllinni
hefði þríeykinu og Kára Stefánssyni verið gefin lyf-
leysa. Kenningin er sú að Kári og þríeykið geri sér fulla
grein fyrir því að bóluefnin séu stórhættuleg og því
ekki látið sér detta í hug að láta sprauta sig með þeim
og hætta eigin lífi. Ekki fylgdi þessari sömu sögu af
hverju þessar þjóðhetjur væru svo miskunnarlausar
að þær væru reiðubúnar að teyma þjóð sína nánast út í
opinn dauðann.
Og nú berast fréttir af nýjasta útspili andstæðinga
bólusetninga, en þeir halda því fram að til standi að
eitra fyrir börnum með því að bólusetja þau.
Bólusetningarnar eru leið út úr Covid. Eftir bólu-
setningu landsmanna á ekki lengur að einblína á smit
heldur skoða alvarleg veikindi og dauða. Þarna er valt
að treysta á mat fjölmiðla því þeir hafa unun af hasar
og því fleiri smit sem greinast dag hvern, því meira
áberandi verður fréttin um þau. Þá er ekki skrýtið að
fólk fái á tilfinninguna að stórhætta sé á ferðum, þótt
svo sé ekki.
Enn á ný skal svo minnt á að við erum dauðlegar
verur. Við veikjumst á ævinni, mismikið þó, en öll
deyjum við á endanum. Það er vissulega hægt að vera í
stöðugu tilfinningauppnámi vegna þeirrar staðreynd-
ar, en það breytir engu um hina endanlegu niðurstöðu.
Bólusetningarnar eru mikil blessun því þótt bólu-
sett fólk smitist þá fær það vægari einkenni en ella og
afar litlar líkur eru á andláti. Þessari staðreynd eiga
sóttvarnayfirvöld að halda á lofti. Hún er öflugt vopn
í baráttunni við hinn glórulausa en um leið hættu-
lega áróður andstæðinga bólusetninga.
Svo væri einnig ráð að sóttvarnayfirvöld og einstaka
stjórnmálamenn létu af þeim hræðsluáróðri sem verið
er að demba yfir þjóðina þessa dagana. Það er ekki
innistæða fyrir honum, þótt almenningur sé farinn að
trúa öðru. Enn á ný sannast hversu auðvelt er að hræða
fólk. ■
Bólusetningar
Brautirnar
eru
fáanlegar
með
mjúklokun
Mikið úrval
rennihurðabrauta frá
Þýsk gæðavara.
Skútuvogi 1h - Sími 585 8900
www.jarngler.is
Hinsegin dagar á Íslandi eru lifandi vitnisburður um
baráttu framsýnna eldhuga hér á landi og þá sigra sem
unnist hafa í okkar heimshluta. Þar hefur Ísland verið
í fremstu röð, þótt enn sé verk að vinna.
Sums staðar í nálægum löndum á sér hins vegar
stað hrein öfugþróun og höfum við ítrekað varað við
henni. Það er hreinlega sorglegt að fylgjast með vest-
rænum lýðræðisríkjum taka slík skref til baka þegar
kemur að mannréttindum fólks.
Í starfi mínu sem utanríkis- og þróunarsam-
vinnuráðherra hef ég lagt ríka áherslu á að Ísland
láti ekki sitt eftir liggja í baráttunni fyrir mannrétt-
indum hinsegin fólks á alþjóðavettvangi. Við gerum
afdráttarlausar kröfur um að hvarvetna skuli virða
réttindi hinsegin fólks. Við fylgjumst náið með og
greinum það sem okkur þykir ábótavant og notum
öll tækifæri til að koma að aðfinnslum. Því miður
er ekki vanþörf á því, en í yfir sjötíu aðildarríkjum
Sameinuðu þjóðanna er enn litið á samkynhneigð
sem glæp.
Þegar Ísland tók sæti í mannréttindaráði Sam-
einuðu þjóðanna árið 2018 voru málefni hinsegin
fólks sett á oddinn. Ísland er stofnfélagi í vinahópi
um vernd gegn ofbeldi og mismunun á grundvelli
kynhneigðar og kynvitundar. Á yfirstandandi mann-
réttindaráðsþingi munu þrjár mikilvægar yfirlýsingar
koma frá hópnum, þar á meðal um réttindi trans-
kvenna.
Ísland vinnur sömuleiðis náið með frjálsum félaga-
samtökum við að standa vörð um mannréttindi
hinsegin fólks, til dæmis í Equal Rights Coalition,
bandalagi ríkja sem beitir sér fyrir réttindum hinsegin
fólks. Á þessu ári verður beinn stuðningur Íslands til
slíkra samtaka aukinn, en þau starfa meðal annars í
samstarfslöndum okkar í þróunarsamvinnu þar sem
mannréttindi hinsegin fólks eru víða fótum troðin,
þar á meðal í Úganda og Palestínu.
Stefna Íslands er einföld: Allir eiga að njóta mann-
réttinda og frelsis, óháð kyni, kynhneigð, kynvitund,
kyneinkennum og kyntjáningu. Því fjölbreytni er
styrkur og allir litir regnbogans eiga að fá að ljóma. ■
Allir litir regnbogans
Guðlaugur Þór
Þórðarson
utanríkis- og
þróunarmála-
ráðherra.
RÚV-samningurinn góði
Bogi Ágústsson, fréttamaður á
RÚV, upplýsti í vefþætti mbl.is
að hann hefði fengið drauma-
samning eftir að hafa verið
rekinn sem framkvæmdastjóri.
Páll Magnússon hafði nýtekið
við sem útvarpsstjóri og byrjað
að taka til á ríkisfjölmiðlinum.
Hann rak alla framkvæmda-
stjóra en samningur þulsins geð-
þekka hljómaði þannig að hann
mætti bara gera það sem hann
vildi. Ef hann vildi skrifa fréttir
væri það frábært en ef ekki væri
það líka frábært. Ef hann mætti
og gerði ekki neitt. Frábært. RÚV
fær 4,5 milljarða á ári en tapaði
samt 209 milljónum á síðasta
ári. Spurning hvort margir séu
enn á þessum samningum þar
sem starfsmenn mega bara ráða
því hvað þeir gera í vinnunni.
Velkomin, Devos
Betsy Devos, fyrrverandi
menntamálaráðherra Banda-
ríkjanna, hefst nú við á glæsi-
snekkju sinni utan Akureyrar
og lætur líða úr sér eftir stritið
í ríkisstjórn Donalds Trump.
Ólíkt ríkjandi stjórnvöldum í
Bandaríkjunum, sem keppast
nú við að afmá öll ummerki um
Devos í menntakerfinu, er hún
aufúsugestur hér á landi, enda
stefnan að laða að eins auðuga
ferðamenn og kostur er. Skiptir
þá engu þótt hún ferðist á eigin
samgöngutæki og hóteli, hafi
sinn einkakokk og þjón og komi
aldrei í land. ■
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 6. ágúst 2021 FÖSTUDAGUR