Fréttablaðið - 06.08.2021, Page 11
n Í dag
Árni
Helgason
Það eru líklega um 25 ár síðan for-
eldrar mínir hleyptu mér í fyrsta
sinn á internetið. Í upphafi var þetta
krúttlega frumstætt, nettengingin
var í gegnum hávært módem sem var
tengt við heimasímann. Vandinn var
að síminn var upptekinn á meðan
módemið mallaði með tilheyrandi
núningi milli heimilismanna. Ég
og faðir minn höfðum ólíkt hags-
munamat að þessu leyti, hann beið
eftir mikilvægum vinnusímtölum,
ég vildi klára að lesa grein um gengi
Liverpool þann veturinn.
Þótt tæknin hafi verið skammt á
veg komin fann fólk lausnir. Vinur
minn sem bjó úti sendi mér stund-
um tölvupósta, reyndar á netfang
móður minnar því ég var ekki með
netfang sjálfur. Mamma prentaði svo
tölvupóstana út og afhenti mér til
lestrar. Virkaði bara vel. Ég hef talað
fyrir því að taka upp sama verklag á
mínu heimili, til dæmis að TikTok-
myndbönd og Snapchat-skilaboð til
barnanna fari til mín, ég prenti þau
svo út og afhendi í framhaldinu.
Hugmyndin hefur ekki náð flugi,
aftur er hagsmunamatið ólíkt.
Óendanlegur
Þegar ég var 15 ára fór ég í fyrsta sinn
á Ircið. Þetta var hrátt spjallborð,
vísir að því sem koma skyldi. Maður
valdi sér nafn og var svo kominn í
hrókasamræður við einhvern um
eitthvað. Þetta var fyrir tíma mynd-
birtinga á netinu þannig að samtölin
hófust á eins konar vottunarferli þar
sem maður krafði viðmælandann
um „ask“ (aldur/staður/kyn). Þegar
það lá fyrir var hægt að meta hvort
tilefni væri til að halda samtalinu
áfram. Irc-nafnið mitt var „Infinite“
sem er í lauslegri þýðingu „unglingur
í tilvistarkreppu að reyna að hljóma
djúpur“ eða þá „óendanlegt“ ef
maður vill bókstaflegu þýðinguna.
Bítlarnir
Framan af voru skoðanaskipti ekki
helsta aðdráttaraf lið á netinu.
Maður fór frekar á netið til að skoða
einhvern fróðleik, las kannski grein
um Bítlana, hvenær fyrsta platan
kom út og í hve mörgum eintökum
hún seldist en ekkert endilega mikið
meira. Það var enginn sem sagðist
hata Bítlana, hafði fengið þúsundir
annarra til að deila þeirri skoðun og
stóð svo í hatrömmum deilum við þá
sem voru ekki sammála.
Langt og hægt
Einhverjir skrifuðu vissulega póli-
tískar greinar og þá í löngu máli, einn
vildi lága skatta og öflugt atvinnulíf
og skrifaði kannski 800 orða grein
um það, sá næsti svaraði með 1.200
orðum um hærri skatta og sterkt vel-
ferðarkerfi. Umræðan einskorðaðist
að mestu við stjórnmálamenn og
álitsgjafa, hinn almenni maður var
lítið að tjá sig. Þetta var frekar leiðin-
legt og framvindan hæg, eins og að
fylgjast með skák í sjónvarpi. Bloggið
breytti þessu aðeins, þar gátu allir
skrifað langhunda um þjóðfélags-
mál sjálfir. En á endanum voru það
samfélagsmiðlarnir sem brutu niður
alla veggi, valdefldu okkur og gáfu
öllum sem vildu rödd og vettvang
til að taka afstöðu til alls sem gerist
í heiminum.
Að tagga heiminn
Þetta er ein stærsta bylting okkar
tíma, hefur fært okkur stóraukið
aðgengi að upplýsingum og sett
mál á dagskrá sem hefðu annars
Þetta byrjaði allt saman með módemi
ekki fengið athygli. En þeir hafa
líka gefið okkur óheft aðgengi til að
vaða í annað fólk. Ég get taggað for-
seta Bandaríkjanna og kallað hann
fávita. Eða formann húsfélagsins.
Allt eftir því í hvaða stuði ég er hverju
sinni, bara partur af leiknum.
Ef gamla internetið var eins og
sjónvörpuð skák er það nýja líkara
tölvuleik, hröðum og agressívum
skotleik þar sem allir geta vígbúist
og tekið þátt, kommentað og sagt
einhverjum að grjóthalda kjafti,
fengið nokkur læk fyrir. Ekki málið.
Listin að rökræða og setja sig í spor
hins hefur gefið eftir fyrir því sjónar-
miði að gagnstæðar skoðanir séu svo
óæskilegar að það þurfi beinlínis að
berjast gegn útbreiðslu þeirra.
Ólaunaðar vaktir
Ég velti því stundum fyrir mér
hver græðir mest á þessum löngu,
ólaunuðu vöktum okkar við skjáinn
í sífelldum átakaham með tilheyr-
andi smánunum, niðurlægingum
og ásökunum. Getur verið að þetta
taki toll af okkur?
Fyrirtækin sem reka miðlana og
framleiða tækin græða hins vegar
vel. Ekki bara hafa þau forritað græj-
urnar þannig að við séum þar sem
mest, heldur nýttu þau tækifærið
og greindu þetta stórfljót af skoð-
unum og tilfinningum og kortlögðu
okkur sem neytendur, kjósendur
og þjóðfélagshópa. Til varð verð-
mætasta markaðstæki heimsins.
Mark Zucker bergerar heimsins
gáfu okkur vissulega vettvanginn
en sjálfboðavinna milljarða manns
um heim allan gerði þá ofurríka.
Úthúðað í þágu réttlætis
Við vitum að baráttan er streitu-
valdandi. En það breytir því ekki
að við mætum samt áfram dag eftir
dag.
Á meðan við trúum hugmyndinni
um að tvær manneskjur, hvor við
sinn skjáinn, að úthúða hvor ann-
arri í þágu einhvers málstaðar geti
breytt heiminum, mun þessi snjó-
bolti rúlla áfram með tilheyrandi
stressi og kvíða.
Eitt er víst, á meðan munu ein-
hverjir aðrir hagnast á streðinu. n
fjölskylduna“
„Ég kem með
Á ferdalag.is getur þú fundið allt það helsta
um ævintýrin sem Ísland hefur upp á að bjóða.
Komdu með í ferðalag!
FÖSTUDAGUR 6. ágúst 2021 Skoðun 11FRÉTTABLAÐIÐ