Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.07.2021, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 14.07.2021, Qupperneq 8
Strand- veiðar upp- hefja karl- mennsk- una í nútíma sem hefur gert óþarfan hinn öldu- stígandi, íslenska sjómann. ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is n Halldór n Frá degi til dags Trú á fólk, frelsi og framfarir. Þannig byggjum við saman enn sterk- ara Ísland. Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur @frettabladid.is www.lyfsalinn.is OPIÐ 9.00 - 17.30 virka daga Verið hjartanlega velkomin GLÆSILEGT APÓTEK Í ORKUHÚSINU URÐARHVARFI 8 Það ríki er vandfundið þar sem jöfnuður er meiri en á Íslandi. Þetta kemur skýrt fram í alþjóðlegum mælingum, þar sem lágtekjuhlutfall hefur mælst hvað lægst hér af evrópskum samanburðarríkjum og jöfnuður einna mestur. Ekki er nóg með að jöfnuður sé meiri hér en í samanburðarríkjum, heldur sýna álagningarskrár að bilið milli þeirra sem eiga mest og minnst verður sífellt minna. Í svari við nýlegri fyrirspurn frá for- manni Samfylkingarinnar kemur fram að hlutfall eigna efnuðustu prósenta landsmanna af heildar- kökunni fer minnkandi. Þessi þróun hefur verið nokkuð stöðug undanfarin ár, en nú hefur hlutur þeirra ríkustu ekki verið lægri frá því í kringum síðustu aldamót. Með þessu er ekki sagt að „réttu hlutfalli“ sé náð eða ekki þurfi að vinna áfram að bættum kjörum þeirra sem minnst hafa. Alltént er þó orðræða þeirra sem stöðugt tala um séríslenska misskiptingu og óréttlæti nokkuð sérkennileg þegar staðreyndir málsins eru skoðaðar. Það hefur verið keppikefli okkar Íslendinga um ára- bil að byggja hér samfélag þar sem allir geta freistað gæfunnar og náð árangri á eigin forsendum, en halda á sama tíma úti þéttu velferðarneti sem grípur þá sem þurfa. Við viljum virkja kraftinn í einstaklingnum og skapa jarðveg þar sem fólk með góðar hugmyndir og framtakssemi að vopni getur blómstrað. Mark- miðið er að stækka sífellt kökuna, frekar en að hugsa bara um hvernig á að sneiða hana niður. Við aukum ekki hagsæld með því að jafna alla niður með hærri sköttum og útþenslu hins opinbera, eins og sumir flokkar tala ítrekað fyrir. Við siglum nú út úr tímabili heimsfaraldurs sem hefur sett mark sitt á flest svið samfélagsins. Það er samdóma álit f lestra að hér hafi náðst afburða góður árangur, bæði heilsufars- og efnahagslega. Ísland stóðst COVID-storminn betur en flestar þjóðir. Næstu misseri þurfum við að halda áfram fast við sömu gildi. Jöfn tækifæri umfram jafna útkomu. Trú á fólk, frelsi og framfarir. Þannig byggjum við saman enn sterkara Ísland. n Jöfn tækifæri  Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðis- f lokksins toti@frettabladid.is X-faktorinn Gunnar Smári Egilsson efndi til „samkvæmisleiks“ í Facebook- hópi flokksins með spurningu um hvaða flokka fólk vilji sjá í næstu ríkisstjórn? Af níu svarmöguleikum þarf varla að koma á óvart að Sósíalistar hafi fengið flesta smelli, 323. Píratar virðast höfða ágætlega til þeirra sem venja komur sínar í hópinn og fengu 237 stig. Eðli málsins samkvæmt ráku Miðflokkur og Sjálfstæðisflokkur lestina og náðu hvorugur tíu stigum. Stærsti x-faktorinn í óvísinda- legri rannsókninni er síðan Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn hans Guðmundar Franklíns sem var skilinn útundan. Línan er laus Gunnar Smári hjó þarna í sama knérunn og Gallup, MMR og Maskína, sem Guðmundur hefur þegar æðrast yfir að hafi „ekki fyrir því að bæta einni línu við lista stjórnmálaflokkanna“ og gefa Frjálslynda lýðræðisflokk- inn upp sem valkost. Guð- mundur segir þetta dæmigert fyrir vinnubrögð þeirra sem vilja hafa stjórn á skoðunum fólks og vísar í „okkar innri kannanir“ sem mæli flokk hans í 7% og virðist alveg óbrenndur af vefkönnunum Útvarps Sögu þar sem hann komst meðal annars upp í 75,2% daginn fyrir forseta- kjördag 2020. n ?Sum fyrirbæri eru þannig að þótt öllu hugsandi fólki hljóti að vera ljóst að um fullkomna vitleysu sé að ræða, dettur fáum í hug að færa þann sannleika í orð. Eitt þessara fyrirbæra eru strandveiðar. Þær eru rómantískar og upphefja karlmennskuna í nútíma sem hefur gert óþarfan hinn raunverulega, öldustígandi, íslenska sjómann. Eða hvor er meiri holdgervingur karlmennskunnar: skeggjaði trillukarlinn eða hipsterinn sem stýrir hvalaskoðunarbátnum? Hið sanna er að viðskipta- vinur hipsterans er margfalt verðmætari fyrir íslenskt samfélag. Ekki aðeins í krónum talið, því á meðan við- skiptavinur hipstersins yfirgefur landið uppnuminn af því sem landið okkar hefur upp á að bjóða – sem hvergi er fegurra en undan ströndum landsins – fær viðskipta- vinur trillukarlsins ormétinn þorsktitt og skilur ekkert í upphafningunni á íslenskum sjávarafurðum. Strandveiðar komust í tísku meðal íslenskra stjórn- málaflokka þegar fólkið í landinu fór að krefjast upp- stokkunar á kvótakerfinu. Sumir flokkar virðast halda í þá von að kjósendur trúi að strandveiðiflotinn geti tekið yfir allar fiskveiðar við landið og það sé beinlínis ákjósanlegt vegna þess hve vondar stórútgerðirnar eru. Aðrir halda því enn fram að strandveiðar séu lífæð hinna dreifðu strandbyggða, þrátt fyrir að veita örfáum atvinnu yfir blásumarið. Sannleikurinn um strandveiðar hefur hins vegar verið flestum kunnur lengi. Fyrir áratug lýstu nokkrir hagfræðingar strandveiðum sem ólympskum veiðum sem leiddu til kapphlaups um afla sem hækki sóknar- kostnað, lækki verðmæti afla og hvetji til brottkasts. Síðan þessi greining birtist árið 2011 hefur lítið farið fyrir vönduðum rannsóknum á strandveiðum, hver raunverulegur ávinningur þeirra sé fyrir atvinnu- líf á þeim landsvæðum þar sem þær eru stundaðar, á gæðum og verðmætum aflans og hvort strandveiðar séu í raun jafn umhverfisvænar og margir halda fram. Með uppgangi ferðaþjónustunnar hafa hinar dreifðu byggðir fengið vettvang sem þéttbýlið keppir ekki við. Austurvöllur selur ekki kaffi við heimskautsbaug og enginn stenst staðkunnugum snúning við að fylgja ferðamönnum um náttúruperlur í sinni heimabyggð. Fyrir framtíðina er svo miklu meira vit í að byggja öflugri innviði fyrir ferðaþjónustu um allt land en að viðhalda trúarbrögðum um úreltan atvinnurekstur sem enginn trúir á í raun og veru. Önnur bylting styður einnig þessa ályktun. Sú kyn- slóð sem nýtir kosningarétt sinn í fyrsta skipti næsta haust hefur mun sterkari ábyrgðartilfinningu gagnvart umhverfinu en eldri kynslóðir. Hún er margfalt líklegri til að taka afstöðu með umhverfinu í öllum neyslu- háttum. Æ fleiri munu gerast vegan á næstu árum og neytendum fisks og kjöts mun halda áfram að fækka. Þessi þróun mun augljóslega hafa áhrif á landbúnað og sjávarútveg og þar með atvinnuvegi á landsbyggð- inni og byggðaþróun í landinu. Stjórnmálaflokkar verða að horfast í augu við þetta við útfærslu stefnu- mála sinna fyrir komandi kosningar. Sóknarfæri landsbyggðarinnar liggja í fegurðinni og sérstöðunni sem gestir okkar sækja í. Þar á lands- byggðin framtíðina, enda óumdeilt að flestir staðir landsins eru fegurri en Reykjavík. n Strandveiðar SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 14. júlí 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.