Fréttablaðið - 14.07.2021, Page 22

Fréttablaðið - 14.07.2021, Page 22
Einar Ásgeirsson tekur inn blöndurnar Kollagen og Liði frá Protis. Hann er alsæll með árangurinn og segir vörurnar gera sér kleift að stunda hreyfingu án verkja. Áður en Einar hóf inntöku á Kolla- geni og Liðum var hann farinn að finna fyrir verkjum sem voru farnir að hafa neikvæð áhrif á getu hans til að hreyfa sig og þar af leiðandi á lífsgæði hans. „Ég var með liðverki í öxlum og hnjám, svona eins og gengur og gerist en svo var ég líka sárþjáður af vefja- og vöðvaverkjum. Ég var farinn að ímynda mér að ég væri kominn með vefjagigt eða eitthvað í þeim dúr.“ Einar segir kynni sín af vörunum hafa verið hálfgerða tilviljun. „Ég var búinn að prófa ýmislegt og prófaði þetta af rælni. Þetta reyndist síðan virka svona rosalega vel. Ég er orðinn mjög góður í dag.“ Áþreifanlegur munur Einar er búinn að nota vörurnar í tæp tvö ár og hafa komið upp tíma- bil þar sem hann hefur ekki tekið þær inn. „Ég er búinn að prófa að sleppa þessu og þá fer ekkert á milli mála hvað þetta virkar vel. Ég hef svo fundið áþreifanlegan mun þegar ég byrja aftur.“ Þá hefur hann enn fremur reynslu af því að taka inn bara aðra hvora vöruna og þær saman. „Ég hef líka bara átt Liði eða bara átt Kollagen en ég finn að þetta virkar ennþá betur saman. Þetta er frábær blanda. Ég þarf að taka þetta með mat til að styðja við upptökuna þannig að ég tek þetta með sjúss af ólífuolíu,“ segir Einar og hlær. Einar hefur einnig prófað aðrar sambærilegar vörur, bæði erlendar og innlendar, og segir hann Protis hafa reynst sér best. „Þetta erlenda virkaði ekki neitt og þetta innlenda virkaði ágætlega en var bara alltof dýrt.“ Eins og þegar maður var yngri Einar stundar ýmsa hreyfingu sér til ánægju og segir blöndurnar nú orðnar ómissandi. „Ef ég ætla að vera góður, njóta lífsins og geta hreyft mig þá finnst mér algjört lykilatriði að taka þetta inn. Þetta styður alla hreyfingu, hvort sem það er skokk, hlaup eða ganga á fell og fjöll.“ Einar segir ávinninginn ekki síst felast í því hversu jákvæð áhrif þetta hafi á endurheimt vöðva þegar búið er að taka á því. „Þetta verður svolítið eins og þegar maður var yngri og fékk ekki harðsperrur eða annað vesen. Líðanin batnar og þá er auðveldara að virkja sig betur í hreyfingu. Þannig kemur þetta allt.“ Einar mælir heilshugar með vörunum. „Ég hugsaði með mér hvort maður ætti nokkuð að vera að tjá sig en síðan er ég alltaf að lesa um fólk sem þjáist til dæmis af vefjagigt og ef það getur lagað það með þessu í staðinn fyrir að þjást, þá væri algjör synd að koma því ekki á framfæri. Mér er því ljúft og skylt að deila þessu með fólki ef þetta skyldi vera eitthvað sem gæti hjálpað þeim,“ segir Einar. „Ég hélt að ég væri kominn með vefjagigt en það lagaðist eftir að ég fór að taka þetta inn. Það eru svo mikil lífsgæði sem fylgja því að vera í formi.“ Verndar liði, bein og brjósk Protis Liðir er unnið úr kollagen- ríkum skrápi sæbjúgna með viðbættu vatnsrofnu þorskprótíni fyrir viðhald vöðva og túrmeriki fyrir bólgueyðandi áhrif. Blandan inniheldur einnig mangan og nauð- synleg vítamín fyrir heilbrigð bein, brjósk og liðvökva. Fyrir húð, hár og neglur Kollagen frá Protis er einstök blanda úr hágæða innihaldsefnum sem styðja við styrkingu á húð, hári og nöglum. Kollagenið er framleitt úr íslensku fiskroði og inniheldur einstakt innihaldsefni – SeaCol, sem er blanda af vatnsrofnu kolla- geni úr íslensku fiskroði og vatns- rofnu þorskprótíni úr íslenskum þorski. SeaCol tekur þátt í að styrkja vefi líkamans og viðhalda teygjanleika. Einnig er sérvalin blanda af vítamínum og stein- efnum sem öll styðja við styrkingu á húð, hári og nöglum. n Protis Liðir og Protis Kollagen fæst í flestum matvöruverslunum, apó- tekum og Heilsuhúsinu. Mikil lífsgæði sem fylgja því að vera í formi Einar Ásgeirs- son segist mun fljótari að ná sér eftir hreyfingu þegar hann tekur inn bæði Kollagen og Liði frá Protis. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI Ef ég ætla að vera góður, njóta lífsins og geta hreyft mig þá finnst mér algjört lykil- atriði að taka þetta inn. sjofn@frettabladid.is María Gomez, matar- og lífstíls- bloggari, með meiru hefur adeilis smitað út frá sér til barnanna og það sýndi sig um helgina þegar ilmurinn af bakkelsinu hennar Maríu teygði sig út um götur í Garðabænum. Syni Maríu, Reyni Leo, sem einungis er 8 ára hafði dreymt um það síðan í vetur að fá að smíða kofa á smíðanámskeiði skáta í sumar og gera úr honum bakarí. „Auðvitað gladdi það bloggaramömmuna mikið að sonurinn deildi áhuga- máli hennar í bakstrinum og ákvað ég því strax að ég myndi hjálpa honum að láta þennan langþráða draum sinn rætast,“ segir María. Elskuðu að vera búðarfólk Kofinn var kominn í hús og nú var ekkert eftir nema að henda í nokkr- ar góðar uppskriftir sem teknar voru af bloggsíðu móðurinnar. „Dagurinn var yndislegur, fjöl- margir mættu og voru langar raðir allan tímann. Bakkelsið kláraðist fyrr en vonast var til og þurftu því nokkrir að hörfa frá tómhentir, því miður, þrátt fyrir mikið magn sem var í boði,“ segir María. „Fólk er svo yndislegt að sýna samhug og styðja við draum lítils drengs og gera sér ferð til að taka þátt og kaupa af honum og systkinum hans sem stóðu vaktina og elskuðu að fá að vera búðarfólk í einn dag. Börnin voru búin að leggja á sig ómælda vinnu fyrir þennan dag, bræðurnir smíðuðu saman kofann á smíðanámskeiði Vífils og búið er að sitja við og perla til að skreyta kofann, negla og smíða enn meira til að laga kofann og allt þeirra líf hefur snúist um þetta síðustu daga, gleðin og spennan var því mikil og var stóri dagurinn hreint út sagt dásamlegur.“ Bakkelsi og kræsingar fyrir alla Boðið var upp á Brauð og Co snúða replicu, djúsí pizzasnúða, gömlu góðu skúffukökuna með glassúr og kókos, mjúkar Pretzel saltkringlur, Oreo- og súkkulaðibitasmákökur og æðislega hafraklatta. „Margir höfðu orð á því hversu gaman væri að sjá börn framkvæma óskir sínar. Þetta minnti fólk á hvernig börn léku sér í gamla daga þegar haldnar voru tombólur fyrir tíma tölvuleikja. Börnin voru alsæl og útkeyrð eftir daginn og erum við foreldrarnir þakklát fyrir allt það yndislega fólk sem gaf sér tíma til að koma og taka þátt í draumnum.“ Minnsta og sætasta bakarí landsins Systkinin kát með litla bakaríið sitt. MYNDIR/AÐSENDAR Baksturinn var vel heppnaður enda kláraðist allt saman. Ekki amalegt að kaupa bakkelsi í minnsta bakaríi landsins. 6 kynningarblað A L LT 14. júlí 2021 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.