Fréttablaðið - 14.07.2021, Síða 28
MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is
MIÐVIKUDAGUR 14. júlí 2021FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL |
Þórður
Gunnarsson
n Skoðun
Vatnagörðum 14 104 Reykjavík
litrof@litrof.is 563 6000
Sterkari saman
í sátt við umhverfið
Mik il vægt er að gjalda
var hug við mál flutn
ingi stjórn mála manna
sem segja að ríkið eitt
geti átt og rekið alla
skapaða hluti.
Bjarni Benediktsson,
fjármálaráðherra.
malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær
VIÐ ERUM SÉRFRÆÐINGAR Í
MALBIKUN
Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að
okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar
sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem
svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband.
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Fagverk_heilsia_255x390_print_ok.pdf 5 17/04/2020 18:20
malbikstodin.is | 864 1220 | Flugumýri 26 | Mosfellsbær
VIÐ ERUM SÉRFRÆÐINGAR Í
MALBIKUN
Malbikunarframkvæmdir eru okkar sérsvið. Við tökum að
okkur malbikun á bílastæðum, stígum, götum, vegum og hvar
sem þarf að malbika. Við tryggjum fyrirtaks þjónustu sem
svarar ýtrustu gæða- og öryggiskröfum. Hafðu samband.
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
Fagverk_heilsia_255x390_print_ok.pdf 5 17/04/2020 18:20
Fagverk_heilsia_255x390_print_ok.pdf 5 17/04/2020 18:20
Við erum stolt
af því að vera
Að undanförnu hefur verið
óvenju athyglisvert að fylgjast
með hinni endalausu deilu um
skattlagningu sjávarútvegsins.
Hin svokallaða samningaleið
hefur enn á ný verið lögð til, en
hún felur í sér að samið verði um
nýtingu fiskistofna til ákveðins
tíma í senn. Á þetta kerfi að
koma í stað þess veiðigjalds sem
nú er lagt á íslenskar útgerðir.
Veiðigjaldið hefur marga
galla. Til dæmis leggst það þungt
á annars vegar smærri útgerðir
og hins vegar útgerðir sem veiða
hlutfallslega mikinn bolfisk.
Eins gallað og veiðigjaldið er þá
er það í það minnsta tengt fram-
legð af veiðum. Það er að segja,
hefur einhvers konar tengingu
við afkomu nýtingar á fiski-
stofnum.
Nýlega hefur verið fjallað um
í fréttum að uppsjávarveiði og
-vinnsla sé um þessar mundir
helsti drifkraftur arðsemi
íslensks sjávarútvegs. Hvernig
er hægt að semja um nýtingar-
rétt á loðnu til 10 ára þegar hún
getur látið sig hverfa fyrirvara-
laust um tveggja eða þriggja ára
skeið?
Hvernig ætti svo að semja
um nýtingarrétt á makríl? Á
fyrri hluta síðasta áratugar
þurfti aðeins tveggja til þriggja
klukkutíma stím frá landi til að
sækja hann. Í dag þarf að sigla
tvo til þrjá sólarhringa lang-
leiðina til Noregs til að ná í sama
fisk. Kostnaður við veiðarnar
hefur því aukist og þegar þarf
að sigla svo langa leið til hafnar
með aflann eru líkur á að verð-
mæti hans verði lægra fyrir
vikið.
Er hægt að gera ráð fyrir svipt-
ingum, eins og við sjáum í loðnu
og makríl, í tíu ára löngum
nýtingarsamningi, án þess að
afkomutengja þá? Hæpið.
Þeir sem tala fyrir samninga-
leiðinni segja að lítið mál sé að
stilla samningana þannig af að
þeir muni ekki kosta sjávarút-
vegsfyrirtæki meira en veiði-
gjaldið gerir í dag. Ef að mark-
miðið er ekki að auka tekjur
ríkissjóðs þá hljóta margir að
spyrja sjálfa sig hver sé eigin-
lega tilgangur þeirrar vegferðar
að vilja semja um nýtingarrétt
frekar en að innheimta veiði-
gjald eins og gert er í dag? Það
dregur sannarlega ekki úr óvissu
í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja,
sem er þó eðli máls samkvæmt
nú þegar töluverð. n
Virði auðlindar
thorsteinn@frettabladid.is
Brottfarir frá Keflavíkurflugvelli í júlí verða
orðnar fleiri, þegar mánuðurinn er rétt rúmlega
hálfnaður, en þær voru allan júnímánuð. Þetta
má lesa úr tölum ISAVIA.
Í júní komu rétt rúmlega 65 þúsund manns til
landsins og var aukningin um 183 prósent á milli
mánaða. Yfir sama tímabil jókst fjöldi brottfara
frá Keflavík um 165 prósent.
Nú þegar júlí er tæplega hálfnaður styttist í að
fjöldi brottfara verði orðinn meiri en hann var
allan júnímánuð miðað við áætlanir ISAVIA um
brottfarir næstu daga. Ef tíðni brottfara seinni
hluta mánaðarins verður sú sama og hingað til
í júlí má ætla að þær verði um 1.277 talsins sem
væri um 90 prósenta aukning milli mánaða.
Spár stjórnvalda og greinenda um fjölda
ferðamanna á þessu ári hafa verið á bilinu 6-800
þúsund. Ef sami taktur heldur áfram má ætla að
fjöldinn fari fram úr spá Seðlabankans um 700
þúsund ferðamenn. n
Útlit fyrir að fjöldi brottfara í júlí tvöfaldist