Fréttablaðið - 26.06.2021, Blaðsíða 4
n Tölur vikunnar
150
tonn af bændaplasti eru föst í mót-
tökustöð Flokku á Sauðárkróki.
30
prósenta hærri húsnæðiskostn-
aður er hér á landi að meðaltali en
í ESB- og EFTA-ríkjum.
21
prósents aukning hefur orðið á
heimilisofbeldismálum það sem
af er ári, miðað við síðustu þrjú ár.
2
lönd bættust á gráan lista FATF í
vikunni, Malta og Rúmenía.
177.540
einstaklingar eru nú fullbólusettir
á Íslandi.
Þorbjörg
Þorvaldsdóttir
formaður
Samtakanna '78
Fólkið sem stend-
ur að baki öllum
þessum atlögum
að tilverurétti
hinsegin fólks á það sammerkt að
gera það í nafni barnaverndar og
jafnvel kvenréttinda. Þau nýta sér
í öllum tilvikum ótta fólks við það
sem er öðruvísi til þess að troða
eigin afturhaldssemi upp á sam-
félögin sem þau stjórna, eða hafa
vettvang til að hafa áhrif á.
Benóný
Ægisson
íbúi í miðborginni
Ég skil þá vel sem
hafa gaman af
því að djamma
öðru hvoru um
helgar og ganga
öskrandi um götur miðbæjarins
til að fá nauðsynlega útrás, eða
bara af því að maður öskrar þegar
maður er fullur, en hins vegar á
ég erfitt með þá nágranna mína
sem búa fjarri tundurduflabeltinu
„og verða aldrei varir við neitt“ og
finnst að ég ætti að flytja eitthvað
annað ef ég þoli ekki ástandið.
Ole Anton
Bieltvedt
formaður Jarðarvina
Í raun og veru
var og er það
með algjörum
ólíkindum, að
Katrín Jakobs-
dóttir skyldi láta sér detta í hug
að hún fengi einhverjum stefnu-
málum Vinstri grænna framgengt í
samstarfi við Bjarna Benediktsson
og Sigurð Inga, eins og ofannefnd
dæmi sýna, og það, að hún sé nú
tilbúin til að endurtaka þetta
samstarf, með væntingar um betri
árangur, er, samkvæmt Einstein,
hrein klikkun eða brjálæði. n
n Þetta sögðu þau
BJÓÐUM UPP Á 37” - 40” BREYTINGAPAKKA
BREYTINGAVERKSTÆÐI ÍSBAND,
SMIÐSHÖFÐA 5, SÉRHÆFIR SIG Í
BREYTINGUM Á RAM PALLBIFREIÐUM.
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
RAM 3500
BÍLL Á MYND RAM 3500 LARAMIE SPORT MEGACAB MEÐ 35” BREYTINGU
VERÐ FRÁ 7.421.210 KR. ÁN VSK.
9.202.300 KR. M/VSK.
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18
Ríkissaksóknari telur nýjan
dóm til marks um að Hæsti-
réttur hallist að þyngri refs-
ingum í nauðgunarmálum.
Dómurinn setji fram skýr
sjónarmið um áhrif tafa á
málsmeðferð, á ákvörðun
refsingar.
adalheidur@frettabladid.is
DÓMSMÁL Hæstiréttur er að færa sig
í átt að þyngri refsingum í alvarleg-
um nauðgunarmálum, að mati Sig-
ríðar Friðjónsdóttur ríkissaksókn-
ara. Þetta kemur fram í svari hennar
við fyrirspurn Fréttablaðsins. Til-
efnið er dómur sem féll í Hæstarétti
í síðustu viku í máli tveggja manna
sem dæmdir voru í þriggja og hálfs
árs fangelsi fyrir að nauðga sextán
ára stúlku í kjallaraíbúð í Reykjavík
í febrúar árið 2019.
Í dóminum er fjallað ítarlega um
ákvörðun refsingar fyrir nauðgun.
Hún skuli ekki vera skemmri en
eitt ár og allt að sextán árum. Dóm-
stólar hafi svigrúm til ákvörðunar
refsingar innan refsirammans og
beri að taka mið af sérstökum refsi-
þyngingarástæðum vegna nauðg-
ana, sem fest voru í 195. gr. hegn-
ingarlaganna árið 2007. Vísað er til
greinargerðar með lögunum þar
sem fram kemur að ungir þolendur
hafi lítinn sálfræðilegan og líkam-
legan styrk til þess að verjast nauðg-
unum og því beri að virða til þyng-
ingar ef þolandi er barn yngra en 18
ára. Einnig horfi til þyngri refsingar
ef of beldi geranda er stórfellt og ef
brotið er framið á sérstaklega sárs-
aukafullan eða meiðandi hátt.
Í umræddu máli áttu öll þessi
sjónarmið við, að mati Hæstarétt-
ar. Brotin hafi verið alvarleg og
beinst að ungri stúlku, sem var nítj-
án árum yngri en eldri gerandinn.
Brot mannanna fólust jafnframt
í samræði við stúlkuna gegn vilja
hennar og fellur það undir fyrr-
greint ákvæði sem sérlega meiðandi
aðferð og sársaukafull þegar um
barn er að ræða.
Hæstiréttur hefur einu sinni áður
fjallað um ákvörðun refsingar í kyn-
ferðisbrotamáli frá því hann tók við
nýju hlutverki fordæmisgefandi
dómstóls með tilkomu Landsréttar
sem áfrýjunardómstóls.
Í dómi sem kveðinn var upp í
september í fyrra var fjallað um
ákvörðun refsingar fyrir nauðgun,
blygðunarsemisbrot gegn barni
og brot gegn nálgunarbanni.
Ákærði hafði fengið þriggja ára
dóm í Landsrétti en var dæmdur
í sex ára fangelsi í Hæstarétti. Mat
Hæstiréttur það til refsiþyngingar
að brotaþolarnir voru nákomin
gerandanum, eiginkona hans og
sonur. Þá hafi nauðgunarbrot gegn
konunni verið framið með sérstak-
lega meiðandi hætti.
Í fréttaskýringu sem birtist í
Fréttablaðinu í janúar kom fram að
Landsréttur hafi ítrekað mildað refs-
ingar í nauðgunarmálum vegna tafa
á málsmeðferð. Í dómi Hæstarétt-
ar í síðustu viku er vikið að þessu.
Nokkrar tafir hafi verið á rannsókn
málsins hjá lögreglu sem líta beri til
að nokkru leyti, en þó verði að líta
til þess að ákærðu hafi hvorki sætt
gæsluvarðhaldi né farbanni á tíma-
bilinu, eða öðrum þungbærum tak-
mörkunum á réttindum sínum. Sá
tími sem leið frá því að málið barst
héraðssaksóknara þar til ákæra var
gefin út, hafi ekki verið úr hófi og
eðlilegur gangur hafi verið í með-
ferð málsins á þremur dómstigum.
Þrátt fyrir að taka mið af töfum
á lögreglurannsókninni ákærðu til
hagsbóta, þyngir Hæstiréttur dóm
Landsréttar um eitt og hálft ár, en
Landsréttur hafði mildað þriggja
ára refsingu héraðsdóms um heilt
ár vegna tafanna.
Aðspurð segir Sigríður Friðjóns-
dóttir dóminn setja fram skýr sjón-
armið um hvenær og hvernig megi
taka mið af töfum á málsmeðferð
við ákvörðun refsingar. Nánar er
fjallað um málið á vef Fréttablaðs-
ins, frettabladid.is n
Refsingar fyrir nauðgun að þyngjast
Hæstiréttur hefur kveðið upp fjóra dóma í kynferðisbrotamálum frá því dómstólaskipan breyttist. Í tveimur þeirra
er fjallað um ákvörðun refsingar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Ríkissaksóknari telur
dómaframkvæmd
Hæstaréttar í átt að
þyngri refsingum.
Sigríður Frið-
jónsdóttir, ríkis-
saksóknari.
4 Fréttir 26. júní 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ