Fréttablaðið - 26.06.2021, Síða 6
Skammdegisþung-
lyndi mældist óalgengt
meðal Íslendinga.
Við lofum þeim ekki
neinu.
Jóhann Snorri
Sigurbergsson,
upplýsingafull-
trúi HS Orku.
Parket
Gríðarlegt úrval af viðarparketi ásamt vatnsþolnu harðparketi
og vínylparketi má finna í sýningarsal okkar á Dalvegi 10-14.
Komdu við og ræddu við sérfræðinga
Parka og fáðu faglega ráðgjöf
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi • 595 0570
Eftir að Kínverjar hófu að
úthýsa fyrirtækjum sem grafa
upp rafmyntir hefur áhugi
stóraukist á að reisa gagnaver
fyrir rafmyntir á Íslandi. Hér
er hins vegar engin umfram
orka til þess að setja í þannig
starfsemi og enginn áhugi á
að reisa virkjanir fyrir hana.
kristinnhaukur@frettabladid.is
ORKUMÁL Erlend rafmyntafyrirtæki
hafa falast eftir meiri orku til náma
graftar hér á landi eftir að kínverska
ríkisstjórnin ákvað að úthýsa þeim.
Hér er þó ekki til næg umframorka
að bjóða þeim.
Kínverska ríkisstjórnin hefur
snúist mjög harkalega gegn raf
myntum, bæði gegn viðskiptum
með þær og námagreftinum sem er
afskaplega orkufrekur. Alls 65 pró
sent af grefti heimsins fara fram í
Kína og nú eru fyrirtækin að leita
sér að nýjum heimkynnum.
„Við finnum fyrir stórauknum
áhuga á uppbyggingu gagnavera
sem eru eingöngu fyrir rafmyntir,“
segir Jóhann Snorri Sigurbergsson,
upplýsingafulltrúi HS Orku. „Við
heyrum að það sé vegna þess sem
er að gerast í Kína og gerum ráð
fyrir því að verið sé að leita annars
staðar líka.“
Flestar námurnar eru í fjórum
héruðum, Sichuan og Yunnan, þar
sem vatnsafl er nægt, og í kolahér
uðunum Xianjiang og InnriMong
ólíu. Rafmyntagröftur er hvort
tveggja farinn að taka toll af lofts
lagsmarkmiðum Kínverja og ríkis
stjórnin er ekki hrifin af myntum
sem hún hefur litla stjórn yfir.
Sum ríki eða svæði hafa boðist
til að taka við námafyrirtækjum.
Til dæmis Flórída og Texasríki
í Bandaríkjunum og Kasakstan.
Þetta eru þó síður umhverfisvænir
kostir því í Flórída er aðallega keyrt
á kjarnorku, gasi í Texas og kolum í
Kasakstan. Kanada þykir umhverf
isvænn kostur en þar er orkan of
dýr fyrir námagröft og Evrópa hefur
ekki mikla orku til skiptanna.
„Fólk er að athuga hvort það sé
til rafmagn og sjá hvert verðið er.
Þessi gröftur eltir ódýrasta raforku
verðið,“ segir Jóhann. Þessi áhugi, að
byggja upp ný gagnaver fyrir náma
gröft, komi að utan. Íslensku gagna
verin leggi áherslu á aðra hluti og
til lengri tíma þó að þau hafi einnig
boðið upp á námagröft.
„Við lofum þeim ekki neinu. Við
höfum litið svo á að þessi hluti
gagnaveranna, það er námagröft
urinn, sé leið til að losa út umfram
orku,“ segir Jóhann. Enginn vilji
sé til að reisa virkjanir fyrir þetta.
„Eins og staðan er núna eigum við
enga umframorku. Þeir eru einn
ig að leita eftir ódýrari orku en er í
boði hjá okkur.“
Orkunotkun gagnaveranna marg
faldaðist árin 2014 til 2019 en sam
kvæmt orkuspá þess árs er gert ráð
fyrir að notkunin haldist nokkuð
stöðug næsta áratug. Um það leyti
var varað við orkuskorti í landinu en
orkunotkun stórnotenda hríðféll í
faraldrinum vegna minnkandi eftir
spurnar eftir áli og kísil. Nú er eftir
spurnin á uppleið og orkunotkun
stórnotenda sömuleiðis. n
Rafmyntafyrirtæki á flótta frá Kína
koma að tómum kofunum á Íslandi
Mikill áhugi
er á að reisa
gagnaver sem
eingöngu hýsa
rafmyntagröft.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
thorgrimur@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Háskólinn á Akur
eyri er nú í þann mund að hefja
verkefni þar sem fylgni er rann
sökuð milli matarhegðunar og árs
tíðabundinna skapsveif lna. Ætl
unin er að skoða ýmis tengsl milli
mataræðis og hegðunar og líðanar
fólks með könnunum sem teknar
verði yfir árið.
„Við vitum að það er fylgni milli
tiltekinnar matarhegðunar og
þunglyndis, til dæmis sykurneyslu,“
segir Yvonne Höller, sálfræðipró
fessor við HA. „Það er þó ekki alveg
ljóst hvort matarvenjurnar leiða
til þunglyndis eða hvort þunglynt
fólk er líklegra til að neyta sæl
gætis. Ef við komumst að því að
tiltekin átmynstur að hausti valdi
síðan verri líðan en önnur á veturna
gætum við leiðbeint fólki fram í
tímann þannig að það borði rétt.“
Í kynningu á verkefninu kemur
fram að skammdegisþunglyndi sé
tiltölulega óalgengt á Íslandi miðað
við hin Norðurlöndin, þrátt fyrir
langa og dimma vetur sem landið
er þekkt fyrir. „Þetta kemur úr
gögnum frá tíunda áratugnum,“
segir Yvonne. „Þar kom fram að
3,8 prósent Íslendinga væru haldin
skammdegisþunglyndi, en á hinum
Norðurlöndunum var tíðnin allt að
tíu prósent. Hlutfallið var svipað
meðal Íslendinga sem bjuggu í
Manitoba, sem bendir til þess að
þetta sé einkenni Íslendinga fremur
en þess að búa á Íslandi. Í upphafi
voru kenningar um að þetta væri
erfðatengt, að Íslendingar hefðu
þróað með sér viðnám við skamm
degisþunglyndi. En það getur líka
verið að þetta sé menningartengt,
að ákveðin jákvæðni sé fólgin í
íslenska hugsunarhættinum „þetta
reddast“.“
Þar sem gögnin eru rúmlega tutt
ugu ára gömul segir Yvonne að ef
til vill hafi aðstæðurnar þó breyst.
Nokkur merki séu um að skamm
degisþunglyndi meðal Íslendinga sé
algengara nú en þegar eldri kannan
irnar voru gerðar. n
Kanna tengsl milli matar og árstíðabundinna skapsveiflna
Yvonne Höller,
sálfræðipró-
fessor við HA.
benediktboas@frettabladid.is
DÓMSMÁL „Þetta er fyrst og fremst
að koma niður á þeim fjölmörgu
rafbílaeigendum sem geta ekki haft
eigin bílastæði við heimili sín til að
setja upp heimahleðslur eða hafa
einfaldlega ekki efni á því,“ segir
Berglind Rán Ólafsdóttir, fram
kvæmdastýra Orku náttúrunnar
(ON), um þá stöðu sem er komin
upp, að ON þurfi að taka strauminn
af þeim 156 götuhleðslum á mánu
daginn sem fyrirtækið hefur sett
upp víðs vegar í Reykjavík. Er það
gert í kjölfar þess að Ísorka kvart
aði yfir að hleðslurnar væru opnar
hverjum sem er gjaldfrjálst. Óvíst
er hvenær hægt verður að hleypa
straumi á þær að nýju.
Ísorka beindi því til kærunefnd
ar útboðsmála að Reykjavíkur
borg yrði beitt dagsektum meðan
beiðnin væri til meðferðar og bað
borgin því ON að slökkva á hleðslu
stöðvunum á meðan beðið er eftir
niðurstöðu. Borgin hefur óskað
eftir frestun réttaráhrifa vegna
úrskurðarins.
Borgin bauð út uppsetningu og
rekstur götuhleðslna og tók tilboði
frá ON sem bauð lægst. Úrskurðar
nefndin komst síðan að þeirri nið
urstöðu eftir kæru Ísorku að Reykja
víkurborg hefði átt að bjóða verkið
út á Evrópska efnahagssvæðinu. n
Slæm staða fyrir
rafbílaeigendur
Slökkt verður á 156 hleðslustöðvum
í borginni á mánudag.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
6 Fréttir 26. júní 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ