Fréttablaðið - 26.06.2021, Qupperneq 12
Þannig er
ekki tekið
tillit til
ástands
eignar-
innar sem
skattlögð
er, hvort
sem það er
yfir meðal-
lagi eða
undir því.
Dæmi voru
um að
Íslendingar
hreiðruðu
um sig á
hótellobbí-
um með
sínar eigin
áfengis-
birgðir,
djömmuðu
fram í roða
og virtu
að vettugi
öll tilmæli
starfsfólks.
Jón
Þórisson
jon@frettabladid.is
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is
Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í
stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is
HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Sif
Sigmarsdóttir
n Mín skoðun
n Gunnar
Snar þáttur í tekjuöflun sveitarfélaga er skatttekjur af húsnæði, hvort sem er atvinnuhúsnæði eða íbúðareignum.Undanfarin ár hafa einkennst af hækkandi fasteignaverði, einkum íbúðarhúsnæðis. Á for
síðu Fréttablaðsins á fimmtudag var greint frá athugun
á þróun fasteignaskatta sem Samtök iðnaðarins stóðu
að. Þar er leitt í ljós að á áratug hafi skattar á atvinnu
húsnæði tvöfaldast, langt umfram þróun verðmæta
sköpunar í hagkerfinu. Jafnframt kemur fram að þessi
þróun leggist þungt á fyrirtæki í öllum greinum sem
þurfa húsnæði og hafni á endanum á heimilunum sem
greiða fyrir með hærra verðlagi á vöru og þjónustu.
Þá segir í fréttinni að sveitarfélög landsins innheimti
á yfirstandandi ári rúmlega 28 milljarða króna með
þessari skattlagningu á atvinnuhúsnæði. Til saman
burðar hafi þessi tekjupóstur sveitarfélaganna numið
14 milljörðum króna árið 2012.
Það vekur sérstaka athygli að þessi þróun hér á landi
er úr takti við þróun þessara mála í öðrum löndum.
Löndum sem teljast vera samkeppnislönd okkar.
En þetta er aðeins sá hluti fasteignaskatta sem lýtur
að atvinnueignum. Innan við fimmtungur húsnæðis er
þess konar. Íbúðareignir eru á hinn bóginn áttatíu pró
sent allra fasteigna í landinu.
Nýlega var gefið út nýtt fasteignamat sem gilda á
fyrir næsta ár. Það er kunnara en frá þurfi að segja að
undanfarin misseri hefur íbúðaverð, í hvaða formi
íbúða sem er, hækkað umtalsvert. Og það er ekki
hægðarleikur að leita út á fasteignamarkaðinn eftir
hentugri eign, ekki síst ef um minni eign er að ræða sem
hentar þeim sem eru að kaupa í fyrsta sinn. Slík er eftir
spurnin um þessar mundir.
Fasteignamat byggir á fasteignaverði eins og það
kemur fram í þinglýstum kaupsamningum og vísar
því til rauntalna. Og það er mikilvægt að á einum stað
liggi fyrir verðmat fasteigna sem uppfært er reglulega
og nýtist við hagtölugerð. En að gera það að grundvelli
skattlagningar er verulega brogað.
En það er hins vegar hin hliðin á peningnum sem er
gagnrýniverð. Að skattleggja fasteignir eftir fasteigna
mati sem fundið er út með því að taka söluverð þeirra
eigna sem taldar eru sambærilegar.
Þannig er ekki tekið tillit til ástands eignarinnar sem
skattlögð er, hvort sem það er yfir meðallagi eða undir
því.
Ein meginregla skattaréttar er að skattlagning sé
fyrirsjáanleg og gagnsæ. Hækkun fasteignaverðs sem
kallar á auknar skattaálögur á fasteignaeigendur fellur
ekki að þeirri reglu, hvað þá að fasteignamatið endur
spegli ekki verðmæti eignarinnar sem skattlögð er.
Fasteignareigandi sem átt hefur eign sína um árabil
og ætlar sér ekki að selja hana í bráð, á ekki að þurfa
að búa við – þótt aðrir selji eign sína, sem að einhverju
leyti kann að teljast sambærileg – að þá séu álögur
auknar á hann.
Þrýstingur á sveitarfélög að breyta skatthlutfallinu til
að mæta hækkandi fasteignaverði skilar sér ekki nema
að hluta. Einhver sveitarfélaganna hafa lækkað hlut
fallið – önnur ekki.
Skattlagning fasteigna hér á landi er ógagnsæ, ófyrir
sjáanleg og óréttlát. Því þarf að breyta. n
Ógagnsæi
Nýverið stóð Reykjavíkurborg fyrir nýyrðasamkeppni. Óskað var eftir þýðingu á enska hugtakinu „stay
cation“ sem merkir sumarfrí á heimaslóðum.
Vinningstillagan var „sporlof“. Orðið er sam
sett úr „spor“ og „orlof“; það þarf aðeins örfá
spor til að komast í orlof í nærumhverfi sínu.
Vegna kórónaveirunnar hefur „sporlof“
verið örlög margra framan af sumri. Gríski
heimspekingurinn Sókrates hefði verið sáttur
við sporlof. „Hvers vegna furðar þú þig á því
að heimshornaflakk hjálpi þér ekki, þegar
ljóst er að þú ert alltaf sjálfur með í för?“ á
hann að hafa sagt. „Ástæðan fyrir því að þú
fórst á flæking er alltaf á hælunum á þér.“
Sagt er að ferðalög víkki hugann. Sókrates,
einn mesti hugsuður sögunnar, varði hins
vegar ævinni í Aþenu og trúði því að hann
gæti lært allt í bókum sem hann þyrfti að
læra. Sókrates var ekki eini heimakæri heim
spekingurinn.
Þýski upplýsingarmaðurinn Immanuel
Kant ferðaðist aldrei lengra en 100 mílur frá
fæðingarstað sínum, Königsberg. Hann fór
í sama göngutúrinn á hverjum degi á sama
tíma og segir sagan að íbúar borgarinnar hafi
stillt klukkur sínar eftir ferðum hans.
Stóuspekingar vöruðu við ferðalögum sem
tilraun til að öðlast sálarró. Rómverski heim
spekingurinn Seneca sagði lítið gagn í að
„hrekjast frá einum stað til annars“ því „það
sem við leitum að – að lifa vel – er að finna alls
staðar.“
En er þá öllum fyrir bestu að fara að ráðum
Birtíngs í bók Voltaire og „rækta garðinn
sinn“ í sumar?
Garður breskra bænda hefur beðið skaða
af sporlofi heimamanna. Í vikunni bárust
fréttir af því að andlegri heilsu bænda hefði
hrakað vegna ónæðis og eignatjóns sem þeir
verða nú fyrir vegna vinsælda sporlofsferða.
Ferðalangar arka um einkaland, slá upp
tjöldum og kveikja eld; ekið er á búfé; vinnu
fólk verður fyrir aðkasti; rusl þekur beitiland
og bifreiðum er lagt úti á miðjum vegum.
Tilfinningar okkar Íslendinga í garð
sporlofsins virðast ekki síður blendnar, ef
marka má pistil sem birtist í Vikublaðinu
nýverið. Egill Páll Egilsson, Húsvíkingur og
blaðamaður, segir starfsfólk í ferðamennsku
margt hvert óttast annað íslenskt ferða
sumar í anda sumarsins 2020. Ástæðuna
segir hann þá að stór hluti Íslendinga gleymi
öllum mannasiðum um leið og þeir pakki
niður í ferðatösku. „Yfirmenn hótela og veit
ingastaða þurftu ítrekað að veita grátandi
starfsfólki sínu áfallahjálp eftir vaktir,“
segir Egill Páll. „Verst var framkoman í garð
erlends starfsfólks. Dæmi voru um að Íslend
ingar hreiðruðu um sig á hótellobbíum með
sínar eigin áfengisbirgðir, djömmuðu fram
í roða og virtu að vettugi öll tilmæli starfs
fólks.“
Fegurðin í því hversdagslega
Fyrrnefndur Seneca sagði okkur heldur
þarfnast „tilbreytingar í sálinni en til
breytingar í umhverfi“. Við sem höfum gert
okkur nærumhverfið að góðu frá því að
heimsfaraldurinn hófst og leitast við að finna
fegurðina í því hversdagslega – fuglasöng, súr
deigsbrauði, Klambratúni – kunnum að and
mæla slíkri visku. Við gerum það með réttu.
Tilbreytingarleysi síðustu missera ógnar
heilbrigði heilans. „Þegar heilinn kemst í
kynni við umhverfi sem er nýtt og flókið
bregst hann við,“ segir Paul Nussbaum,
taugasálfræðingur við Háskólann í Pitts
burgh. Nýjar aðstæður valda því að tauga
griplur við enda taugafrumnanna fara að
vaxa. „Heilinn í okkur verður eins og frum
skógur.“ Nussbaum segir ferðalög vinna gegn
Alzheimer og þunglyndi, minnka streitu og
kvíða og ýta undir sköpunargáfu.
Tíminn mun leiða í ljós hvort nýyrðið
sporlof festi sig í sessi. Flest getum við þó sam
einast um þá ósk að sporlofið sjálft geri það
ekki. n
Heimakærir heimspekingar
Vörn sem virkar
Mygga er áhrifarík mýflugnafæla sem veitir
allt að 9 klukkustunda vörn gegn flugnabiti.
Fæst á völdum
sölustöðum um land allt.
mygga.is
9,5% DEET sprey
2 ára & eldri
20% DEET roll-on
12 ára & eldri
50% DEET sprey
18 ára & eldri
After bite
Vertu í fríi
frá mýi
SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 26. júní 2021 LAUGARDAGUR