Fréttablaðið - 26.06.2021, Side 60
Ég tek ekki blóm sem
vaxa bara á stangli og hef
líka bara vissan tíma-
glugga til að sækja liti í
ákveðnar plöntur.
Kær frænka okkar,
Eva Ólafsdóttir
lést föstudaginn 28. maí á
Landspítalanum. Jarðarförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Margrét Ákadóttir
Merete Sveistrup
Vikar Pétursson
Jakob Jakobsson
Ásmundur Jakobsson
Aðalbjörg Jakobsdóttir
Steinunn Jakobsdóttir
Þökkum samúð og hlýhug við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu,
móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
Aðalheiðar Sigvaldadóttur
Mánatúni 9.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Hlíðabæjar,
Vitatorgs og Sóltúns, fyrir einstaka fagmennsku og alúð.
Gunnar Heiðar Guðjónsson
Anna Guðbjörg Gunnarsdóttir Daði Björnsson
Guðmundur Ingi Gunnarsson Patrizia Cipriani
Elín Heiður Gunnarsdóttir Davíð Jens Guðlaugsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Auðbrekku 1, Kópavogi
Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir
síðan 1996
Símar allan sólarhringinn:
581 3300 & 896 8242
www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og
ræðum skipulag útfarar ef óskað er
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Móðir mín, tengdamóðir,
amma okkar og langamma,
Guðrún Ólafsdóttir
Víðilundi 20,
Akureyri,
lést þann 6. júní. Útförin fór fram í
kyrrþey 22. júní síðastliðinn.
Heiða Hrönn Hreiðarsdóttir Arnar Eyfjörð
Erika Mist Arnarsdóttir
Urður Ylfa Arnarsdóttir Viktor Samúelsson
Ýmir Hugi Arnarsson
Klara Fanndís Sonjudóttir
Tinna Lind Helgadóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jónas Blöndal
lést á heimili sínu þann 19. júní.
Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju
þann 1. júlí kl. 11. Vefstreymi frá athöfninni verður
aðgengilegt á slóðinni www.arbaejarkirkja.is.
Sigríður Guðráðsdóttir Blöndal
Magnús Blöndal Bryndís Magnadóttir
Hjörtur Blöndal Eyrún Þórðardóttir
Hjálmar Diego Haðarson Sigrún Fossberg
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku besta Solla okkar,
Sólveig Katrín
Hallgrímsdóttir
Akurgerði 21, Akranesi,
lést af slysförum á gjörgæsludeild
Landspítalans þann 17. júní.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju fimmtudaginn 1. júlí
kl. 13. Athöfninni verður streymt á www.akraneskirkja.is
Sölvi Jón Sævarsson Rachel Emily Cooper
Hallgrímur V. Jónsson Supannee Runarun
Ása Arnfinnsdóttir Gylfi Jónsson
Tinna Hallgrímsdóttir
Erla Arnbjarnardóttir
Ólafur Lárus Gylfason
Einar Ágúst Gylfason
fjölskyldur og vinir.
Litir jurtaríkisins eru helsta við-
fangsefni Viktors Péturs Hannes-
sonar myndlistarmanns. Hann
opnar í dag sýninguna Borgar-
fjarðarblómi í Hallsteinssal, í
Safnahúsinu í Borgarnesi.
gun@frettabladid.is
„Ég er loks búinn að ramma inn. Þetta
eru 50 verk af öllum stærðum og gerðum.
Það minnsta er 20x30 en það stærsta 2,5
metrar á lengd, það er aðallega byggt á
rabarbarastilkum og einu bláberi,“ segir
Viktor Pétur Hannesson myndlistar-
maður, rétt áður en hann byrjar að stilla
upp verkum sínum í Safnahúsinu í Borg-
arnesi. Sýningin Borgarfjarðarblómi er
opnuð þar í dag.
Viktor segist oft hafa haft viðkomu
í Borgarfirði á undanförnum árum á
ferðavinnustofu sinni, Afleggjaranum,
– sem er húsbíll. „Í öllu sem ég geri í
myndlistarmálum er keppikefli að sækja
efnivið í umhverfið og ég byrjaði að fikta
með plöntur 2017.“ Áður hafi hann feng-
ist við matargerð úr íslenskum jurtum
með félaga sínum. Við undirbúning að
hátíð til heiðurs njóla hafi hann viljað
gleðja félagann með mynd af þurrkuðum
njólablöðum á kartoni en tímaskortur
orðið til þess að hann tók hitapressu í
þjónustu sína. „Þegar ég opnaði pressuna
eftir hálftíma var blaðið soðið í sundur
en undir var eiturgult prent, miklu fal-
legra en myndin mín hefði getað orðið.
Ég hef verið í grafíktilraunum síðan og
litapallettan farið sístækkandi.“
Viktor Pétur útskrifaðist af myndlist-
arbraut Listaháskólans árið 2012 og lýkur
námi við listfræðideild HÍ í haust. Hann
segir námið gefa honum sjálfsöryggi til
að fara eigin leiðir í listsköpuninni og
þessi aðferð henti honum vel. „Á þennan
hátt kynnist ég flórunni og eignast gott
samband við jurtirnar. Efniviður minn
getur verið allt frá bronsgulum njólarót-
um að vori til dimmblárra krækiberja á
hausti. Hvatinn er liturinn og magnið, ég
tek ekki jurtir sem vaxa bara á stangli.
Hef líka bara vissan tímaglugga til að
sækja liti í ákveðnar plöntur. Ekki get
ég farið út í búð að kaupa þá heldur verð
að bíða í tæpt ár.“
Sýningin verður opin milli 13 og 18
virka daga og 13 til 17 um helgar. ■
Bronsgular rætur, dimmblá ber
Söfnunin tekur á sig ýmsar myndir. Hér er Viktor Pétur með risahvönn. MYND AÐSEND
w
1823 Kötlugos hefst með stórhlaupi úr Mýrdalsjökli sem
skemmir jarðir í Mýrdal og Álftaveri.
1921 Kristján X.,
konungur Íslands
og Danmerkur,
kemur í heim-
sókn til landsins.
1928 Boranir hefjast
eftir heitu vatni
í Laugardal í
Reykjavík.
1977 Elvis Presley
kemur í síðasta
sinn fram á tón-
leikum.
1992 Danmörk vinnur
Evrópukeppni
karla í knatt-
spyrnu með 2-0
sigri á Þýskalandi.
Merkisatburðir
TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 26. júní 2021 LAUGARDAGUR