Fréttablaðið - 26.06.2021, Side 80
RITSTJÓRN
ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD
auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN
Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 550 5000
Margrétar
Kristmannsdóttur
n Bakþankar
Þegar ein kunningjakona mín
ákvað að hella sér út í pólitík fyrir
nokkrum árum ákvað hún að
heimsækja foreldra sína áður en
ákvörðunin yrði gerð opinber.
Ástæða heimsóknarinnar var
að búa gömlu hjónin undir þær
umræður sem myndu fylgja henni
þegar hún yrði orðin opinber per-
sóna. Og eitt brýndi hún sérstak-
lega fyrir foreldrunum – aldrei
nokkurn tíma mættu þau fara inn
á kommentakerfi fjölmiðlanna eða
fylgja eftir spjallþráðum, þar sem
búast mætti við að dóttir þeirra
væri til umræðu. Með þessu vildi
hún verja foreldra sína fyrir þeim
skrifum sem hún vissi að biðu
hennar handan við hornið.
Og það þarf ekki að vera opin-
ber persóna til að vekja nettröllin.
Eftir síðustu bakþanka var ég sögð
„haugruglað eintak og veruleika-
firrt„ og fólk hvatt til að sniðganga
fyrirtækið sem ég rek. Við verðum
seint sammála um allt, en það eru
svona skrif sem ég vil gagnrýna
– þar sem rökræðan er engin og
eingöngu hjólað í manninn. Við
hljótum að geta rætt málin og sýnt
hvert öðru gagnkvæma virðingu.
Því það er gott að búa á Íslandi,
en við getum gert svo miklu betur
á mörgum sviðum. Og í dag eru of
margir sem veigra sér við að taka
þátt í umræðunni því þeir óttast
að lenda í hakkavélinni sem fylgir
því að láta skoðun sína í ljós. En við
þurfum okkar öflugasta fólk upp á
dekk í þeim verkefnum sem fram
undan eru og fúkyrðaflaumurinn
má ekki verða til þess að draga úr
okkur kjark.
Auðvitað segjum við stundum
eitthvað sem við sjáum eftir en
þegar kemur að rituðu máli er ágæt-
is mælikvarði að birta eingöngu
það sem við værum sæmilega sátt
við að birtist t.d. á baksíðu Frétta-
blaðsins undir nafni og mynd. n
Haugruglað eintak
VEITINGASTAÐURINN
Á matseðli í júní
Verslun opin 11-20 – IKEA.is – Veitingasvið opið 10:30-20
©
Inter IKEA System
s B.V. 2021
ENRUM
lukt 1.490,-
1.095,- 1.195,-
Svínaskanki
með BBQ-sósu
frönskum og maís
Lambasteik
með bakaðri kartöflu
og hunangsbakaðri
gulrót
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
TILBOÐ
RÅVAROR
teppi 7.990,-
TILBOÐ
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING
á Hringbraut
44%
18-80 ára lesa Fréttablaðið
daglega að meðaltali*
*Samkvæmt prentmælingum Gallup
20ÁRA— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —
Sími: 550 5050
soludeild@frettabladid.is
NÁÐU TIL
FJÖLDANS!