Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.06.2021, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 16.06.2021, Qupperneq 2
Á vef TM-mótsins má finna dagsetningar mótsins fram til ársins 2030, svo það er vel passað upp á að dag- setningarnar séu tilbúnar langt fram í tímann. Sigríður Inga Kristmanns- dóttir, móts- stjóri TM- og Orkumótsins. Á fljúgandi siglingu yfir Öskjuhlíðinni Spennufíklar fá nýtt tæki til að koma púlsinum af stað á næstu vikum þegar aparóla (e. zip line) opnar í Öskjuhlíð. Borgarráð Reykjavíkurborgar samþykkti í vor að veita hugmyndinni eins árs aðstöðuleyfi. Generalprufa stóð yfir í gær og hefst ferðin í Perlunni með borgina í bakgrunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Uppbókað er í gistingu víða í Vestmannaeyjum þegar þar á að fara fram TM-mótið í fótbolta á næsta ári. Starfs- maður Hótels Vestmannaeyja segir fólk panta gistingu strax fyrir næsta ár þegar móti ársins lýkur. Um 1.200 kepp- endur tóku þátt á mótinu í ár sem lauk á sunnudag. birnadrofn@frettabladid.is VE STMANNAEYJAR Star fsmaður á Hótel Vestmannaeyjum segir nánast öll gistirými hótelsins upp bókuð helgina 9.-11. júní á næsta ári en þá fer fram í bænum TM-mótið í fótbolta. Síðastliðinn sunnudag lauk TM-móti þessa árs og segir starfsmaður hótelsins það ekki óvanalegt að þegar mótinu ljúki sé fólk þegar farið að bóka gistingu fyrir næsta mót. „Stelpurnar koma flestar hingað tvö ár í röð og foreldrarnir panta bara strax aftur fyrir næsta ár,“ segir starfsmaður hótelsins og bætir við að það sama sé upp á ten- ingnum varðandi Orkumótið sem haldið er í sama mánuði og þar eru strákarnir keppendur. „Þar á ég tvö einstaklingsherbergi eftir árið 2022 og fyrir bæði stráka og stelpumótin er ég farin að fá bókanir inn í árið 2023.“ Sama sagan virðist vera á fjölda annarra gististaða í Vestmanna- eyjum í kringum TM-mótið á næsta ári en ef leitað er eftir gistingu á svæðinu dagana 8.-11. júní árið 2022 á bókunarvefnum booking. com kemur í ljós að þar eru engin gistipláss laus umrædda helgi. Sigríður Inga Kristmannsdóttir, mótsstjóri TM- og Orkumótsins, segir bæinn fyllast af fólki þegar mótin séu. Aldrei fyrr hafi TM- mótið verið jafn stórt og í ár þegar um 1.200 þátttakendur frá 34 liðum tóku þátt. Strax fullbókað á hótelið fyrir mótið á næsta ári TM-mótið í Vestmannaeyjum hefur farið fram á hverju ári frá árinu 1990. FRÉTTABLAÐIÐ/ERLA „Það má svo gera ráð fyrir að hverri stelpu fylgi að lágmarki einn fjölskyldumeðlimur en með sumum kemur öll fjölskyldan svo það má áætla allavega tvö þúsund manns fyrir utan þátttakendur,“ segir Sigríður aðspurð um fjölda fólks sem flykkist til Eyja á meðan á mótinu stendur. Hún segir mótið hafa gengið vel þrátt fyrir að margt hafi verið með breyttu sniði vegna sóttvarna- reglna. „Allt sem átti að vera inni í íþróttahúsinu var til að mynda fært út, hæfileikakeppnin var rafræn og kvöldvökunni var skipt upp í sótt- varnahólf,“ segir Sigríður. Þá segir hún að nú standi yfir lokaundirbúningur Orkumótsins sem fram fari í næstu viku, skipu- lagning við mót sem þessi skipti höfuðmáli, til að mynda svo allir geti fundið sér gistingu fram í tím- ann. „Á vef TM-mótsins má finna dagsetningar mótsins fram til árs- ins 2030, svo það er vel passað upp á að dagsetningar séu tilbúnar langt fram í tímann,“ segir Sigríður. n benediktboas@frettabladid.is HAFNARFJÖRÐUR Íbúar við Fléttu- velli í Hafnarfirði vilja að bærinn stöðvi tafarlaust framkvæmdir við ærslabelg. Íbúarnir hafa sent bænum bréf þar sem er tíundað að ærsla- belgurinn, sem á að koma við leik- skólann Hamravelli, sé settur upp án aðkomu íbúa. „Íbúar almennt hér í bænum ættu alls ekki að þurfa að líða slík vinnubrögð,“ segir í bréfinu. Benda íbúar á að engin grenndar- kynning hafi farið fram á þessu verkefni og að mosi sé friðaður samkvæmt lögum. Það sé því best að finna belgnum nýja staðsetn- ingu og vinna án tafar hafin við að laga það tjón sem þegar hefur verið valdið í óþökk íbúa. Sk ipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar vísaði bréfinu til umsagnar skipulags- og byggingar- fulltrúa. n Æsingur í Hafnarfirði vegna ærslabelgs Ærslabelgur er góð skemmtun sé hann á réttum stað. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON kristinnpall@frettabladid.is HÖFN Bæjarráð Hafnar í Horna- firði tók fyrir á fundi bæjarráðs í gær beiðni frá Ægi Þór Sævarssyni, níu ára dreng sem glímir við vöðva- rýrnunarsjúkdóminn Duchenne. Í bréfinu óskaði Ægir eftir fundi með bæjarráði í von um að ræða mögu- leikann á lyftu við vatnsrennibraut- ina í sundlaug bæjarins. Þar lýsir Ægir því að hann vilji geta farið margar ferðir með vinum sínum en hann verði of þreyttur í fótunum. Fyrir vikið þurfi hann að hvílast reglulega. Bæjarráð lofaði að taka málið til skoðunar. n Óskaði eftir lyftu í rennibrautirnar Stigin er oft langur í rennibrautirnar. Það eru þrjár renni- brautir við sundlaug- ina í Höfn á Hornafirði. 2 Fréttir 16. júní 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.