Fréttablaðið - 16.06.2021, Qupperneq 4
Svefnlyfinu Rohypnol er enn
ávísað hér á landi þrátt fyrir
að það hafi misst markaðs-
leyfi sitt og framleiðslu verið
hætt. Það gengur stundum
undir heitinu „nauðgunar-
lyfið“.
linda@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Meðal þeirra 25
undanþágulyfja sem oftast var
ávísað í aprílmánuði var svefnlyfið
Rohypnol (Flunitrazepam Mylan)
eða í 59 skipti, samkvæmt yfirliti
Lyfjastofnunar. Markaðsleyfi lyfsins
hér á landi var fellt niður í byrjun árs
og framleiðslu þess hætt samkvæmt
upplýsingum frá Lyfjastofnun. Enn
er lyfið þó í umferð.
Lyfið hefur lengi verið notað
og stundum gengið undir hinu
alræmda heiti „nauðgunarlyfið“.
Það hefur gengið undir ýmsum
merkjum hjá notendum erlendis
eins og „Forget Me Pill“ eða „Gleym-
mér pillan“, og lesa má á um á vef
fíkniefnalögreglu Bandaríkjanna
(DEA). Fórnarlömbin falla í óminni
ef þeim er byrlað lyfið og geta enga
björg sér veitt eða mótspyrnu.
Þekkt er að erfitt er að sanna byrl-
un með Rohypnol því leifar efnisins
eru f ljótar að fara úr líkamanum.
Enn koma upp tilfelli á Neyðarmót-
töku Landspítalans þar sem frásögn
brotaþola vekur grunsemdir um að
byrlun hafa orðið, miðað við magn
áfengis sem brotaþoli innbyrti eða
þá að hann neytti ekki neins áfengis
en féll samt í óminni. Samkvæmt
Neyðarmóttökunni eru sýni ein-
ungis send lögreglu í tilvikum þar
sem kæra liggur fyrir.
Samkvæmt Lyfjastofnun hefur
Rohypnol verið ávísað frá því það
fékk íslenskt markaðsleyfi árið
1992. Lyfið var þó tekið af markaði
í byrjun árs 2020 og markaðsleyfið
var svo fellt niður 1. febrúar síðast-
liðinn. Undanfarin tvö ár hefur lyfið
verið afgreitt með undanþáguávís-
unum.
Í svari Lyfjastofnunar um hvers
vegna lyfið er enn í umferð segir að
mjög mismunandi sé hvaða svefnlyf
henti einstaklingum hverju sinni.
„Sumir læknar hafa óskað eftir
undanþágu um notkun þess fyrir
sína sjúklinga, enda getur verið
erfitt og langt ferli að trappa fólk af
lyfinu, með hættu á fráhvörfum og
tengdum heilsufarsaf leiðingum,“
segir í svarinu og þar sem Rohypnol
sé óskráð lyf beri læknir sem ávísar
lyfinu ríkari skyldur en annars í því
að fræða sjúklinginn um notkun
þess.
Í svari Lyfjastofnunar segir að
59 ávísanir á lyfið sé ekki meira en
vanalega en sveif lur eru aðeins á
milli mánaða. Ávísanir í apríl voru
nokkuð minni en í mars og janúar
en sambærilegar á við febrúar. Ekki
beri á aukningu á ávísunum.
Stofnunin vinnur eftir því að
aðeins séu samþykktar ávísanir
fyrir einstaklinga sem þegar eru
á lyfjameðferð með lyfinu, eða
mjög sérstakar ástæður eru gefnar
af umsækjanda, það er lækni við-
komandi einstaklings. ■
Rohypnol áfram ávísað á undanþágu
Undanþágulyfinu Rohypnol var ávísað 59 sinnum til sjúklinga í aprílmánuði. FRETTABLAÐIÐ/GETTY
LEIÐRÉTTING
Áfram er grímuskylda á sitjandi
viðburðum þrátt fyrir breyttar
takmarkanir á samkomum sem tóku
gildi í gær. Þegar talað er um sitjandi
viðburði er átt við leikhús, athafnir
í trú- og lífsskoðunarfélögum,
íþróttaviðburði og ráðstefnur.
Ranglega var greint frá því í
Fréttablaðinu í gær að á slíkum
viðburðum væri ekki grímuskylda,
það er ekki rétt. ■
Þekkt er að erfitt er
að sanna byrlun með
Rohypnol því leifar
efnisins eru fljótar að
fara úr líkamanum.
arib@frettabladid.is
NORÐURLAND Six Rivers Project,
sem auðkýfingurinn Jim Ratcliffe
stendur á bak við, hyggst fjárfesta
fyrir fjóra milljarða króna í upp-
byggingu fjögurra veiðihúsa á landi
sínu á Norðausturlandi.
Um er að ræða lúxusbyggingar
sem eiga að standa við Miðfjarðará,
Hofsá og í Vesturdal, þá verður
veiðihús við Selá stækkað. Rat cliffe
hyggst ekki kaupa meira land á
svæðinu í tengslum við uppbygg-
inguna.
Gísli Ásgeirsson, framkvæmda-
stjóri Six Rivers Project, sem hét
áður Veiðiklúbburinn Strengur,
segir að tilgangurinn sé að laða
að veiðimenn til að gera verndar-
starfið sjálf bært. „Við erum að
búa til lúxus aðstöðu til að draga að
fleiri veiðimenn,“ segir hann. Ekki
er búið að klára kostnaðaráætlun
en Gísli segir að þetta muni kosta
minnst fjóra milljarða.
Gísli segir að tryggt verði að
uppbyggingin verði gerð á sem
umhverfisvænastan hátt. „Við erum
ekki að fara að henda niður steinum
í viðkvæma náttúru,“ segir hann.
Búið sé að fara í heilmikla undir-
búningsvinnu, þar á meðal kanna
hvort þar sé að finna fornleifar.
„Þetta er langstærsta verkefni sem
einstaklingur hefur farið í á þessu
svæði.“ ■
Ratcliffe með um fjögurra milljarða
uppbyggingu á norðausturhorninu
Jim Ratcliffe
stendur að
baki uppbygg-
ingunni.
Tryggt verður að upp-
byggingin verði gerð
á sem umhverfisvæn-
astan hátt og búið er
að fara í mikla undir-
búningsvinnu.
urduryrr@frettabladid.is
SJÁVARÚTVEGUR Heildarfiskaf li í
maí 2021 er áætlaður 14%minni en
árið áður eða tæplega 108 þúsund
tonn. Á 12 mánaða tímabili, frá júní
2020 til maí 2021, hefur heildar-
fiskaf li hins vegar aukist um 12%
miðað við sama tímabil á undan.
Aflinn á þessu tímabili fór frá 969
þúsund tonnum í 1.088 þúsund
tonn. Þetta kemur fram í bráða-
birgðatölum frá Hagstofu Íslands
sem voru birtar í gær.
Aðeins meira var veitt af botn-
fiski í maí 2021 en árið áður en 27%
minna var veitt af uppsjávarfiski.
Sú lækkun skýrist aðallega af kol-
munna en afli af þeirri tegund var
26% minni. Þá var aukning veiða á
ýsu 32% í maí á þessu ári og 78% á
ufsa.
Hafrannsóknastofnun kynnti í
gær ráðgjöf fyrir fiskveiðar á næsta
ári þar sem lagður er til 13% sam-
dráttur í þorski. Það er jafnt og 17
til 18 milljarða króna samdráttur í
af laverðmæti. Ráðgjöfin nú skýrist
að hluta af því að stærð stofnsins er
talin hafa verið ofmetin á undan-
förnum árum.
Þá er lögð til 11% aukning ýsu-
afla, 17% minni gullkarfaafli, 13%
aukning í grálúðu og rúm tvö-
földun fyrir íslensku sumargots-
síldina. ■
Fiskafli minni í
maí en fyrir ári
Fiskafli eykst á milli ára en minnkar
í maímánuði. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
kristinnhaukur@frettabladid.is
GARÐABÆR Sara Dögg Svanhildar-
dóttir, oddviti Garðabæjarlistans,
segist fagna því að loks verði tekið á
samgöngum í Urriðaholti. Listinn,
sem er í minnihluta, hafi þrýst á
umbætur um langt skeið.
„Fyrir ári síðan fór enginn strætó
að hverfinu,“ segir Sara en í dag er
pöntunarþjónusta á vögnum utan
annatíma. „Nýir íbúar skilja ekki
þennan þankagang, hvernig þetta
á að virka.“
Eins og Fréttablaðið greindi frá í
gær hafa íbúar hverfisins gagnrýnt
þetta fyrirkomulag sem og skort á
hjólreiða- og göngustígum inn og
út úr hverfinu.
Sara segir að það hefði átt að
hugsa um samgöngumálin í hverf-
inu frá byrjun, ekki síst þar sem það
sé skilgreint sem umhverfisvænt og
sé að byggjast hratt upp. „Þjónustan
er ekki inni í hverfinu og því þarf að
tryggja að samgöngur séu góðar.“
Aðspurð um þær aðgerðir sem
greint var frá í gær, það er bæði hvað
varðar reglulegar strætóferðir, stíga
og betra öryggi á stóru gatnamótun-
um við Kauptún, segir Sara bjartsýn
á að þær dugi til að leysa vanda íbúa
hverfisins. ■
Hefðu átt að hugsa um samgöngurnar frá byrjun
Sara Dögg Svan-
hildardóttir,
oddviti Garða-
bæjarlistans.
Nýir íbúar skilja ekki
þennan þankagang,
hvernig þetta á að
virka.
4 Fréttir 16. júní 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ