Fréttablaðið - 16.06.2021, Blaðsíða 18
MARKAÐURINN
ÚTGÁFUFÉLAG Torg., Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík, sími 550 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 550 5051
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
GÍRAR - FÆRIBÖND - RAFMÓTORAR - LEGUR
588 80 40
www.scanver.is
RAFMÓTORAR
hordur@frettabladid.is
Þjóðarsjóður Kúveit, einn stærsti
fjárfestingasjóður í ríkiseigu í heim-
inum, hefur á allra síðustu vikum
bæst við hluthafahóp Arion banka.
Eignarhlutur sjóðsins í dag, sam-
kvæmt lista yfir alla hluthafa sem
Markaðurinn hefur séð, nemur um
2,25 milljónum hluta að nafnvirði
en miðað við gengi bréfa bankans
er markaðsvirði hans rúmlega 330
milljónir króna. Það jafngildir um
0,15 prósenta hlut í Arion.
Þjóðarsjóði Kúveit (e. Kuwait
Investment Authority) var komið
á fót árið 1953 og er hann sá elsti
sinnar tegundar sem er starfræktur
í heiminum. Eignir sjóðsins nema
samtals á sjötta hundrað milljarða
Bandaríkjadala, sem jafngildir
meira en tuttugufaldri landsfram-
leiðslu Íslands.
Fjölmargir erlendir vísitölusjóðir,
sem fjárfesta einkum í hlutabréfum
félaga á vaxtamörkuðum (e. frontier
markets), hafa komið nýir inn í eig-
endahóp Arion banka eftir að Ísland
var formlega tekið inn í vaxtamark-
aðsvísitölu MSCI undir lok síðasta
mánaðar.
Á meðal þeirra eru sjóðir eins
stærsta eignastýringarfyrirtækis
heimsins, Franklin Templeton, en
þeir eiga orðið samanlagt um 3,4
milljónir hluta að nafnvirði, sem
metinn er á um 500 milljónir króna
á núverandi markaðsgengi. Aðrir
erlendir vísitölusjóðir, eins og Mark-
aðurinn hefur áður upplýst um, sem
hafa einkum verið að kaupa í Arion
banka á undanförnum dögum og
vikum eru sjóðir í stýringu Acadian
Asset Management, Northern Trust,
Legal & General og FundPartner
Solutions.
Áætla má að slíkir erlendir sjóðir
hafi fjárfest í Arion fyrir á þriðja
milljarð króna frá því í lok maí-
mánaðar. Mikið fjármagn fylgir
vísitölum MSCI en nokkur fjöldi af
sjóðum fjárfestir í samræmi við vísi-
töluna eða hefur hana sem viðmið.
Hlutabréfaverð Arion, sem stóð í
148,5 krónum á hlut við lok mark-
aða í gær, hefur hækkað um 56
prósent frá áramótum og nemur
markaðsvirði bankans um 247
milljörðum. ■
Þjóðarsjóður Kúveit fjárfestir í Arion
Benedikt
Gíslason,
bankastjóri
Arion banka.
helgivifill@frettabladid.is
Jakobsson Capital verðmetur Play á
31 krónu á hlut sem þýðir að virði lág-
gjaldaflugfélagsins sé 21 milljarður
króna. Verðmatið er 55 til 72 prósent-
um hærra en útboðsgengið sem er 18
til 20 krónur á hlut. Í verðmatinu er
gert ráð fyrir hægari tekjuvexti en
stjórnendur Play gera í sínum áætl-
unum. Bent er á að mörg f lugfélög
hafi orðið að auka við skuldsetningu
sína til að lifa af COVID-19 heims-
faraldurinn. Til að standa straum af
lántökum gætu þau orðið að hækka
verð. Play hefji hins vegar starfsemi
með hreint borð.
Play stefnir á að selja 32 prósenta
hlut í félaginu og af la 33-36 millj-
óna Bandaríkjadala, jafnvirði 4 til
4,4 milljarða króna, dagana 24. og
25. júní í aðdraganda skráningar á
First North-hliðarmarkað Kaup-
hallarinnar.
Ef miðað er við áætlanir stjórn-
enda Play, sem eru nokkuð brattar
að sögn höfundar verðmatsins en
þeir reikna með hraðari tekjuvexti
en hjá WOW air, væri verðmatsgengið
52,3 krónur á hlut. Í verðmatinu, sem
Markaðurinn hefur undir höndum,
segir að samanburður við vöxt WOW
air á upphafsárunum sé ekki fyllilega
sanngjarn enda sé landið orðið mun
vinsælli áfangastaður fyrir ferða-
menn en þegar WOW air hóf starf-
semi. Því verði vöxtur Play hraðari
en WOW air.
Í fjárfestakynningu Play kemur
fram að gert sé ráð fyrir að rekstrar-
hagnaðarhlutfall (EBIT-hlutfall)
félagsins verði 10,3 prósent til 13,9
prósent á árunum 2023-2025. Jakobs-
son Capital þykir það metnaðarfullt.
„Til samanburðar hefur Icelandair
aðeins einu sinni náð um og yfir 10
prósent EBIT frá árinu 2012 og WOW
einnig,“ segir í verðmatinu.
„Til þess að ná þessu EBIT-hlutfalli
þarf allt að ganga upp hjá félaginu,
ferðaþjónustan að taka hratt við sér,
samkeppnin ekki úr hófi, olíuverð
stöðugt sem og íslenska krónan. Þá
eru einnig ýmsir óvæntir kostnaðar-
þættir og flækjustig sem koma í ljós
þegar félagið vex hratt í að vera með
flota sem telur um helming af stærð
Icelandair í dag,“ segir Jakobsson
Capital.
Í verðmatinu eru taldir upp nokkr-
ir þættir sem muni að líkindum halda
aftur af rekstrarhagnaðarhlutfalli og
tekjuvexti hjá Play: samkeppni muni
þrýsta verði niður, vaxandi launa-
þrýstingur, styrking krónu, hækkun
leiguverðs f lugvéla og hærra verð á
þotueldsneyti.
Greinandi Jakobsson Capital segir
að þrátt fyrir gagnrýni frá verkalýðs-
forystunni um að launakjör Play séu
forkastanleg hafi verið ásókn í störf
hjá lággjaldaf lugfélaginu. Ekkert
bendi til þess að félagið sé að snuða
starfsmenn, eins og segir í verðmat-
inu. Hvernig samið hafi verið við
starfsmenn veiti Play samkeppnis-
forskot miðað við innlenda keppi-
nauta. Að sama skapi hefur nokkur
fjöldi fólks þegar hlotið þjálfun á þær
f lugvélar sem Play hyggst nota sem
spari þjálfunarkostnað.
„Félagið er með starfsmenn á
íslenskum vinnumarkaði en sá
vinnumarkaður getur f ljótt farið í
þenslu eins og dæmin sýna,“ segir í
verðmati Jakobsson Capital. ■
Verðmetur Play á 55%
hærra verði en í útboði
Birgir Jónsson,
forstjóri Play.
Stærstu kaupendurnir að 4,5
milljarða króna hlut TM í fjár-
festingafélaginu voru Magnús
Ármann og Þorsteinn M.
Jónsson. Eigandi verktaka-
fyrirtækisins ÞG Verks kemur
nýr inn í hluthafahóp Stoða
eftir að hafa keypt bréf fyrir
um 600 milljónir króna.
hordur@frettabladid.is
Félag í eigu fjárfestanna Magnúsar
Ármanns og Þorsteins M. Jónssonar
var stærsti einstaki kaupandinn
að um 12 prósenta eignarhlut TM í
fjárfestingafélaginu Stoðum, en allur
hlutur tryggingafélagsins, dóttur-
félags Kviku banka, var seldur fyrir
4,5 milljarða króna í lok síðasta mán-
aðar.
Samkvæmt nýjum hluthafalista
Stoða, sem Markaðurinn hefur undir
höndum, keypti nýlega stofnað eign-
arhaldsfélag í eigu þeirra Magnúsar
og Þorsteins, M&M Capital, meira en
fimmtung bréfanna af TM og er í dag
fjórði stærsti hluthafi Stoða með 2,79
prósenta hlut. Kaupverðið nam um
einum milljarði króna.
Á meðal annarra félaga sem hafa
bæst við hluthafahóp Stoða, sem er
eitt umsvifamesta fjárfestingafélag
landsins og á meðal stærstu hluthafa
í Arion, Kviku, Símanum og Play, er
Arcus Invest en það er í eigu Þor-
valdar H. Gissurarsonar, forstjóra
og eigenda ÞG Verks. Keypti Arcus
Invest fyrir rúmlega 600 milljónir
króna í Stoðum og fer í dag með 1,77
prósenta hlut sem gerir félagið að átt-
unda stærsta hluthafanum.
Þá jók félagið Mótás, sem er í eigu
Bergþórs Jónssonar og Fritz Hend-
riks Berndsen, verulega við eignar-
hlut sinn í Stoðum þegar TM seldi
allan hlut sinn og keypti fyrir jafn-
virði tæplega 700 milljónir króna.
Mótás, sem kom fyrst inn í hlut-
hafahóp Stoða í árslok 2020 þegar
Landsbankinn seldi allan tólf pró-
senta hlut sinn í fjárfestingafélaginu,
er nú þriðji stærsti hluthafinn með
um 5,9 prósenta hlut.
Félög í eigu þeirra Magnúsar og
Þorsteins eru fyrir á meðal hóps
fjárfesta sem standa að baki eignar-
haldsfélaginu S121, stærsta einstaka
eigenda Stoða með 56 prósenta hlut,
en aðrir eru meðal annars Einar Örn
Ólafsson, stjórnarformaður Play,
og Örvar Kjærnested, fyrrverandi
stjórnarmaður í TM. Þá fer Magnús,
sem var á sínum tíma hluthafi og
stjórnarmaður í FL Group, einnig
með rúmlega eins prósenta hlut í
Stoðum í gegnum félagið GGH. Þor-
steinn var á árum áður aðaleigandi
Vífilfells á Íslandi auk þess sem hann
hefur setið í stjórnum Glitnis, FL
Group og Refresco.
Auk félaganna M&M Capital,
Arcus Invest og Mótáss, sem keyptu
samanlagt meira en helming þeirra
bréfa sem TM seldi fyrir þremur
vikum síðan, þá keyptu Stoðir sam-
tímis einnig nokkuð af sínum eigin
bréfum. Eignarhlutur Stoða í sjálfum
sér nemur nú um 9,7 prósentum en
í ársbyrjun nam hann um 6,1 pró-
senti. Sú aukning sem hefur orðið
síðan þá kemur hins vegar ekki
aðeins til vegna bréfa sem fjárfest-
ingafélagið keypti af TM, samkvæmt
heimildum Markaðarins, heldur
einnig af öðrum – og minni hluthöf-
um – það sem af er ári, meðal annars
Lífeyrissjóði Vestmannaeyja sem
hefur selt megnið af sínum bréfum
en sjóðurinn átti 1 prósents hlut í
árslok 2020.
Á meðal sumra af eldri hluthöfum
Stoða sem komu að kaupum á hlut
TM með því að auka lítillega við hlut
sinn má nefna félagið Vindhamar,
sem er í eigu Kára Þórs Hallgríms-
sonar, stjórnanda á skuldabréfa-
sviði fjárfestingabankans JP Morgan
í London, en það fer nú með tæplega
2,6 prósenta hlut. Þá bættu félögin
Dexter Fjárfestingar og Fari, sem
eru í eigu bræðranna Sigurðar Gísla
og Jóns Pálmasonar, jafnan kenndir
við IKEA, við hlut sinn og auk þess
eignarhaldsfélagið Helgafell, sem
er í jafnri eigu Ara Fenger, Bjargar
Fenger og Kristínar Vermunds-
dóttur. Sá sem stýrir fjárfestingum
Helgafells er Jón Sigurðsson, forstjóri
og stjórnarmaður Stoða, en hann er
eiginmaður Bjargar.
Næst stærsti hluthafi Stoða, á
eftir S121, er sjóðastýringarfélagið
Stefnir með um 11 prósenta hlut.
Aðrir helstu eigendur Stoða eru
meðal annars Íslandsbanki, Strahan
III Limited, sem er í eigu breska fjár-
festisins Malcolms Walker og var í
hópi þeirra sem komu að kaupum á
hlut Landsbankans í Stoðum í árslok
2020, og félagið Nataaqnaq Fisheries.
Hagnaður Stoða í fyrra næstum
tvöfaldaðist á milli ára og var um
7,56 milljarðar. Í lok fyrsta ársfjórð-
ungs námu eignir félagsins, sem
er skuldlaust, um 39 milljörðum
króna. Eignarhlutir Stoða í skráðum
félögum – Kviku, Arion og Símanum
– eru í dag metnar á um 35 milljarða
króna en hlutabréfaverð þessara
félaga hefur hækkað á bilinu 31 til
56 prósent frá áramótum. ■
Magnús og Þorsteinn keyptu
af TM í Stoðum fyrir milljarð
Jón Sigurðsson, forstjóri og stjórnarmaður í Stoðum. MYND/AÐSEND
35
Markaðsvirði eignar-
hluta Stoða í Arion,
Kviku og Símanum er í
dag um 35 milljarðar.
MARKAÐURINN2 16. júní 2021 MIÐVIKUDAGUR