Fréttablaðið - 16.06.2021, Page 21

Fréttablaðið - 16.06.2021, Page 21
Voru hungruð og ágeng „Það er hættulegt halda að maður sé heimsmeistari á sínu sviði eftir að hafa notið velgengni,“ segir Hermann. „Það þekkjum við úr heimi íþrótta og viðskipta. Ég hef rekstur Fálkans oft bak við eyrað sem víti til varn­ aðar. Langafi minn stofnaði fyrirtækið sem varð um­ svifamikið á Íslandi. Afi minn tók við keflinu en kynslóð föður míns glutraði niður rekstrinum. Það þarf alltaf að sinna fyrirtækjarekstri. Sama hversu vel gengur í dag þá er alltaf nýr leikur á morgun og allt snýst um að vinna þann leik – það er ekkert gefið, jafnvel þótt vel gangi um skeið. Að sjálfsögðu er gaman að það gangi vel en mitt hlutverk er að gæta þess að við sláum ekki slöku við. Við erum að keppa við stór alþjóðleg fyrirtæki. Við komumst á þann stað sem við erum á vegna þess að við vorum hungruð og ágeng. Það hugarfar skiptir öllu. Ég lít á mig sem gamaldags vélstjóra með smurdós að smyrja hjólin nema hvað ég er að ýta við fólki.“ lagernum og um 500 manns á skrif- stofum.“ Hvernig stendur á því að höfuð- stöðvarnar eru í Svíþjóð þegar þú hefur búið í Danmörku í áratugi? „Fyrir einskæra tilviljun var Boozt staðsett þar þegar ég kom að því. Hluthafarnir voru danskir og við skoðuðum það að flytja rekst- urinn til Danmerkur. Við komumst hins vegar að þeirri niðurstöðu að Malmö væri góður staður til að reka Boozt. Á þeim tíma stóð Svíþjóð framar í tæknimálum en Danmörk og við fengum mikið af hæfileika- ríku fólki sem lært hafði í Lundi til liðs við okkur. Þannig er mál með vexti að Svíar taka útlendingum opnum örmum og leyfa þeim að afla sér menntunar. Útlendingar eignast oft sænskan maka og vilja því vera til fram- búðar í landinu. Nema hvað Svíar vilja í raun ekki vinna með útlend- ingum nema þeir tali góða sænsku. Við sáum tækifæri í að ráða öflugt starfsfólk úr þeim hópi og því er vinnutungumálið hjá okkur enska. Okkur hefur auðnast að fá framúrskarandi starfsfólk frá 36 löndum til liðs við okkur. Hugfar starfsmanna er: „Það er allt hægt.“ Oft vita sérfræðingar í tilteknum geira hvað hefur ekki gengið í for- tíðinni og segja því strax að það sé ekki hægt. Í menningunni okkar er lagt upp með að segja einfaldlega: „Af hverju ekki?! Við getum það.“ Það tekur mig um 50-60 mínútur að keyra í vinnuna frá heimili mínu í Danmörku. Ef skrifstofan væri í miðborg Kaupmannahafnar hefði ferðalagið í vinnuna tekið jafn langan tíma þannig að þessi akstur skipti mig ekki máli. Það eru um 60-80 Danir hjá Boozt sem gera slíkt hið sama á hverjum degi.“ Fyrirtækið hefur verið að vaxa að meðaltali um þriðjung á ári á síð- ustu fjórum árum. Mun vöxturinn halda áfram? „Vöxturinn mun halda áfram. Veltan var 4,4 milljarðar sænskra í fyrra og við horfum til að hún verði tíu milljarðar eftir þrjú til fjögur ár. Verslun er í æ ríkari mæli að færast yfir á netið. Á Norðurlöndum er 30 prósent af veltunni á netinu en 70 prósent í hefðbundnum verslunum. COVID-19 hefur flýtt þessari þróun þar sem fólk var fyrst þvingað til að versla á netinu en nú er það komið upp í vana.“ Hvernig kom það til að þú býrð í Danmörku? „Móðir mín sendi mig í heima- „Við rekum stærsta róbota­ lager á Norður­ löndum en þeir eru 500 talsins. Lagerinn er 70 þúsund fer­ metrar eða álíka og sjö fótbolta­ vellir,“ segir Hermann. „Ef þeirra nyti ekki við yrði lagerinn að vera 400 til 500 þúsund fer­ metrar.“ MYND/AÐSEND vistarskóla í Danmörku þegar ég var 14 ára. Ég bjó á Akureyri með fjölskyldunni en mömmu þótti ég ódæll. Frænka mömmu var gift skólastjóra heimavistarskólans. Hann hvatti hana til að senda mig til sín í eitt ár. Þar átti ég að læra aga og snúa heim eftir eitt skólaár. Hringt var í mig í maí eftir fyrsta skólaveturinn og spurt hvort ég vildi ekki koma heim. Danmörk er besti staður í heimi á sumrin og því lang- aði mig að vera eitt ár í viðbót. Sama símtal fékk ég ár eftir ár í nokkur ár. Ég sagðist alltaf ætla að vera eitt ár í viðbót því mér leið svo vel í Dan- mörku. Þegar menntaskólinn var að baki sótti ég um nám í lögfræði við Háskóla Íslands og komst inn en ákvað fremur að nema viðskipta- fræði við Copenhagen Business School (CBS) því, eins og ég sagði, hér líður mér vel. Ég ætlaði um tíma alltaf að flytja heim en svo giftist ég danskri konu og eignaðist börn. Ég hef því búið í Danmörku frá árinu 1980 eða 41 ár. Öll ættin mín býr á Íslandi. Ég er sá eini sem býr hér,“ segir Hermann. Eftir að hafa lokið meistaraprófi frá CBS hóf hann störf hjá litlu birt- ingahúsi. „Ég var í fyrstu sérhæfður í að kaupa sjónvarpsauglýsingar en eftir fáein ár var ég beðinn um að taka við sem forstjóri. Fyrirtækið óx hratt og varð stærsta birtinga- hús Danmerkur. Árið 2001 seldum við fyrirtækið til Omnicom Media Group, stærstu auglýsingasam- steypu í heimi. Þeir báðu mig um að byggja upp starfsemina á Norðurlöndunum og úr varð að við keyptum fyrirtæki í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi. Þegar ég var fertugur hafði ég þénað sæmilega á að selja fyrirtækið og ákvað að hætta. Ég hafði verið í bransanum í 14 ár og stóð á þeim tímamótum að vera annað hvort alla ævi í sama bransa eða færi að gera eitthvað allt annað. Í kjölfarið ákvað ég að kaupa aug- lýsingastofu ásamt nokkrum félög- um og stýrði henni í tvö ár en fannst það hundleiðinlegt.“ Af hverju var það leiðinlegt? „Ég er mikið fyrir tölur og stað- reyndir en auglýsingastofur byggja mikið á tilfinningu. Á þeim tíma var mér boðið að verða forstjóri uppáhaldsknatt- spyrnuliðsins míns, Brøndby í Kaupmannahöfn. Á Norðurlönd- unum er Brøndby eitt stærsta vöru- merkið í íþróttum og er skráð í kauphöll. Mamma var hjá mér þegar mér var boðið starfið. Hún sagði við mig: „Þetta er það sem þig hefur dreymt um alla ævi, að verða sigur- vegari í fótbolta.“ Þannig að ég ákvað að slá til. Við unnum einmitt titilinn í dönsku deildinni á dögunum. Blessunarlega, verð ég að segja, var mér sagt upp störfum eftir 16 mánuði í starfi. Við stjórnarformað- urinn höfðum ólíkar hugmyndir um hvert stefna skyldi. Eftir það hefur mér þrisvar verið boðið að koma aftur og nú sit ég í stjórn Brøndby og Boozt er aðalauglýsandi liðsins. Við tók erfiður tími. Það var í öllum blöðunum að ég hefði verið rekinn. Margir spurðu hver mín næstu skref yrðu. Ég ákvað að fara til Nepal í göngu upp á Mount Ever- est til að gefa mér rými til að hugsa minn gang. Þegar ég sneri til baka vissi ég að ég vildi stýra litlu fyrir- tæki, helst í tækni, sem ég gæti átt ágætan hlut í. Ef fyrirtækið yrði verðmætt myndi ég njóta ávaxt- anna. Skömmu síðar leitaði stjórnandi vísisjóðs til mín og spurði hvort ég vildi taka við Boozt. Ég sé ekki eftir því.“ n 80 70 60 50 40 30 20 10 0 ✿ Tekjur Boozt í milljörðum króna 2016 2017 2018 2019 2020 2021* Tekjurnar voru umreiknaðar úr sænskum krónum yfir í íslenskar miðað við gengið í gær. *Spá Boozt Heimild: Ársskýrslur Boozt. kontakt@kontakt.is I 414 1200 I www.kontakt.is FYRIRTÆKJARÁÐGJÖF Ein elsta starfandi bókaútgáfa landsins er til sölu. Bókaútgáfan Setberg hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá 1950. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í útgáfu barnabóka síðustu ár og hefur velta verið á bilinu 30-50 m.kr. Árlega eru gefnir út um 20 titlar, að mestu þýðingar á erlendum titlum og er dreifing góð í bókabúðir og helstu verslanir. Síðasta rekstrarár útgáfunnar var mjög gott og eru ágætis horfur framundan með nýjum möguleikum í rekstri. MARKAÐURINN 5MIÐVIKUDAGUR 16. júní 2021

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.