Fréttablaðið - 16.06.2021, Blaðsíða 38
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.
is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Krakkarnir í Velvet
spiluðu aldrei neitt lag
tvisvar eins, svo við
höfum það líka til
hliðsjónar og gefum
okkur skáldaleyfi til að
útsetja lifandi flutning
okkar í eintómum
fíling.
stod2.is
Félagarnir í The After Hour
munu í kvöld flytja lög hljóm
sveitarinnar Velvet Under
ground. Þeir hafa sökkt sér í
allar upptökur sem þeir hafa
komist yfir til að fullkomna
taktana fyrir tónleikana.
Í kvöld munu félagarnir í The After
Hour f lytja tónlist hinnar goð
sagnakenndu hljómsveitar The
Velvet Underground á Kex hostel. Í
félagsskapnum The After Hour eru
þeir Ryan Van Kriedt, Hallberg Daði
Hallbergsson úr Brian Jonestown
Massacre, Kristinn Gunnar Blön
dal einnig þekktur sem KGB, Teitur
Magnússon og Símon Rúnarsson.
„Við höfum gaman að því að hitt
ast og spila þessi lög svo við ákváð
um að deila gleðinni með fleirum á
Kexinu í kvöld,“ segir Hallberg.
Önnur stærðargráða
Hafið þið áður verið að vinna að tón-
list saman?
„Já, ekki allir saman en við Ryan
höfum auðvitað unnið saman í
Jonestown Massacre,“ svarar Hall
berg.
„Og við KGB höfum leikið saman
í Justman, sólóverkefni Kristins,“
bætir Teitur við.
Þeir hafa lítið verið í ábreiðunum
hingað til og meira verið í eigin
frumsömdu tónlist.
„Við Ryan héldum einu sinni
þannig tónleika í Lag unitas,
heimabæ Ryans í Kaliforníu, en
þetta verður í fyrsta sinn sem við
gerum eitthvað af þessari stærðar
gráðu,“ útskýrir Hallberg.
„Ég hef ekki haldið neina svona
heiðurstónleika áður og vissulega
er ákveðin togstreita hvað varðar
slíka viðburði innan bransans en
við gátum bara ekki haldið í okkur
og kófið kallaði á þetta,“ segir Teitur.
Einlægnin í íróníunni
Hvað kom til að þið ákváðuð að
halda þessa tónleika í sameiningu?
„Hugmyndin var mín. Við vorum
að hittast og spila saman Lou Reed
lög í kófinu og ég stakk upp á að við
myndum heiðra karlinn á áttræð
isafmælinu í mars 2022. Síðan byrj
uðum við á Velvet katalóknum og
komumst að því að það var af nógu
Dulúðin
og hráleikinn
heilla
Hallberg og Teitur, en sá síðarnefndi heldur á Vox Phantom, samskonar bassa og John Cale átti. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI.
Hljómsveitin árið 1970 en það urðu vissulega mannabreytingar í gegnum
tíðina. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Steingerður
Sonja Þórisdóttir
steingerdur
@frettabladid.is
að taka þar svo við bókuðum tón
leika á Kexinu með mánaðar fyrir
vara og hófum stífar æfingar,“ segir
Teitur.
Félagarnir eru snöggir til svars
þegar þeir eru inntir eftir því hvað
það er sem er svo heillandi við
hljómsveitina.
„Dulúðin, hráleikinn og einlægnin
í íróníunni,“ svarar Teitur.
„Sándið, stíllinn, neyslan, ógæfan,
lúkkið, mystíkin. Þarna fæddist
kúlið,“ segir Hallberg.
Hallberg hefur verið mikill aðdá
andi hljómsveitarinnar í sextán ár.
„Svo fékk Ryan hana með móður
mjólkinni,“ segir Hallberg.
Teitur sökkti sér fyrst af alvöru
í verk sveitarinnar í gegnum verk
efnið.
„Ég veit að KGB er búinn að hlusta
á sveitina lengi. Hún hefur verið á
radarnum hjá mér en ég viðurkenni
að ég hef fyrst verið að sökkva tönn
unum í heildarverk sveitarinnar í
gegnum þetta verkefni, The After
Hour.“
Leggja allt í sölurnar
Þeir hafa undirbúið sig fyrir tónleik
ana með því að horfa á upptökur af
sveitinni að spila.
„Við erum örugglega búnir að
hlusta á allt „live“ efni sem til er með
Velvet Underground og erum við oft
að blanda saman stúdíóútgáfum og
„live“útgáfum, tvinna saman bræð
ing að okkar skapi. Krakkarnir í Vel
vet spiluðu aldrei neitt lag tvisvar
eins, svo við höfum það líka til hlið
sjónar og gefum okkur skáldaleyfi
til að útsetja lifandi flutning okkar
í eintómum fíling,“ segir Hallberg.
„Þess má til gamans geta að ég
gróf upp gamlan bassa, Vox Phant
om, þegar við vorum byrjaðir að
æfa. Ég nefndi þá við strákana að ég
væri með svona Vox skrípildi í við
gerð og þeir sendu mig rakleitt að
ná í kvikindið. Ég kom um hæl með
skepnuna og þeir sýndu mér mynd
af John Cale með eins bassa. Ég er
bara gjörsamlega dolfallinn. Þetta
er búið að vera mikill skóli fyrir mig
enda er ég aðallega gítarleikari en
ég hef gaman af áskorunum,“ bætir
Teitur við.
Farið þið alla leið með lúkkið og
stemninguna?
„Já, danshópurinn Kviðsystur
mun stíga gógódans, myndefni
varpað á vegg og selskapurinn legg
ur allt í sölurnar,“ segir Hallberg.
Það er frítt inn á tónleikana sem
munu hefjast klukkan 20.00 á Kex
hostel í kvöld, og ættu aðdáendur
sveitarinnar ekki láta þá fram hjá
sér fara. n
26 Lífið 16. júní 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ