Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.11.1966, Síða 5
24. ÞING B.S.R.B
Sunnudaginn 2. október 1966 var 24.
þing B.S.R.B. sett í Súlnasal Hótel Sögu.
Formaður bandalagsins, Kristján Thor-
lacius, setti þingið kl. 13.45. Bauð hann
fulltrúana velkomna til þings og minntist
síðan látinna forustumanna, er andazt
hafa frá því, er síðasta bandalagsþing' var
haldið, en þeir voru þessir:
Sveinbjörn Oddsson, Akranesi,
Þórhallur Pálsson, borgarfógeti,
Kristján Jakobsson, póstmaður,
Kristinn Armannsson, rektor,
Guðmundur Jónsson, símaverkstjóri,
Stefán Jónsson, rithöfundur, kennari,
Egill Hjörvar, eftirlitsmaður og
Torfi Vilhjálmsson, Akureyri.
Risu fundarmenn úr sætum til virðing-
ar hinum látnu.
Ávörp gesta.
Formaður B.S.R.B. bauð gesti þingsins
velkomna. Kveðjur og árnaðaróskir fluttu
þessir: Jón Snorri Þorleifsson, frá Alþýðu-
sambandi Islands, Henry Hálfdánarson,
frá Farmanna- og fiskimannasambandi ís-
lands, Sigurður Örn Einarsson, frá Sam-
bandi íslenzkra bankamanna og Kristján
Karlsson frá Stéttarsambandi bænda.
Formaður B.S.R.B., Kristján Thorlacius
þakkaði gestunum árnaðaróskir og góðar
kveðjur.
Afgreiðsla kjörbréfa.
Formaður kjörbréfanefndar, Einar Ól-
afsson, gerði grein fyrir kjörbréfum. 28
bandalagsfélög áttu rétt á að senda full-
trúa, en 27 sendu kjörbréf.
Stefán Árnason forseti þingsins í ræðustól.
Las formaður kjörbréfanefndar fulltrúa-
skrána og lagði síðan til, að kjörbréfin
yrðu samþykkt.
Var tillaga hans samþykkt í einu hljóði.
Á þinginu áttu sæti 123 fulltrúar.
Kjörnir forsetar og ritarar.
Forseti var kosinn Stefán Árnason,
Starfsmannafélagi Vestmannaeyja.
Fyrsti varaforseti Teitur Þorleifsson,
Sambandi íslenzkra barnakennara.
Annar varaforseti Eiríkur Pálsson,
Starfsmannafélagi ríkisstofnana.
Aðalritarar voru kosnir Halldór Ólafs-
son, Félagi opinberra satrfsmanna, Isa-
ÁSGARÐUR 5