Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.11.1966, Qupperneq 12
Samþykktar tillögur og ólyktanir á 24. þingi
B. S. R. B. 2.-5. okt. 1966.
Frá starfskjaranefnd.
I. Uppsögn samninga.
24. þing B.S.R.B. lýsir sérstakri óánægju sinni
vegna meðferðar þeirrar, sem kjaramál opin-
berra starfsmanna hafa fengið á undanfömum
árum. Sniðgengið hefir verið það lagaákvæði um
Kjaradóm, að við úrlausnir hans á kjarasamn-
ingum og endurskoðun þeirra skuli höfð hlið-
sjón af kjömm launþega, er vinna sambærileg
störf hjá öðmm en ríkinu. Kjör þau, sem opin-
berir starfsmenn foúa við, eru nú allsendis óvið-
unandi, og kemur það m. a. fram í skorti hæfra
starfsmanna í ýmsum greinum. Úrbætur í þessu
efni eru ekki einkamál opinberra starfsmanna,
heldur hagsmunamál þjóðarinnar allrar.
Þingið telur, að segja beri upp núgildandi
kjarasamningum opinberra starfsmanna, og beinir
því til bandalagsfélaga og stjómar að hefja þeg-
ar undirbúning að kröfugerð í væntanlegum
samningum.
Þingið vill benda á eftirtalin atriði, sem leggja
beri áherzlu á:
1. f kröfugerð verði tekið tillit til raunvem-
legra launa á frjálsum vinnumarkaði, þar
með taldar greiðslur umfram ákvæði kaup-
samninga og kaup í ákvæðisvinnu. Má t. d.
Allsherj amef nd:
Ingimar Jónasson, Fél. starfsm. stjómarráðsins.
Friðrik Stefánsson, Starfsm.fél. Siglufjarðar.
Karl Guðjónsson, Samb. ísl. barnakennara.
Sigurjón Björnsson, Póstmannafélag íslands.
Ævar fsberg, Skattstjórafélag íslands.
Kjömefnd:
Jón Kárason, Félag íslenzkra símamanna.
Haraldur Steinþórsson, Landssb. framh.skólak.
Ólafur Bjömsson, Fél. starfsm. Háskóla íslands.
Svavar Helgason, Samband ísl. barnakennara.
Þórhallur Halldórsson, Starfsmíél. Rvíkurb.
benda á, að í ágúst 1965 reyndist svonefnt
launaskrið hjá verzlunar- og skrifstofufólki
í einkaþjónustu í Reykjavík 5 til 14% í lægri
laimaflokkum samkvæmt athugun Hagstof-
unnar.
2. Leggja ber sérstaka áherzlu á, að föst laun
í lægstu launaflokkum nægi fyrir því, sem
hægt er að telja lífvænleg kjör. Má t. d.
minna á, að samkvæmt útreikningi Hagstofu
íslands voru mánaðarútgjöld vísitölufjöl-
skyldu í Reykjavík kr. 10.580,00 í júlíbyrjun
s. 1. eða líkt og byrjunarlaun í 13. Ifl. nú
í september, og er þá miðað við núgild-
andi vísitöluútreikning. En í 12 lægstu launa-
flokkunum munu vera um 30% ríkisstarfs-
manna.
3. Eiftirvinna, nætur- og helgidagavinna verði
greidd með 100% álagi. Vökuvinnuálag er
víða mun hærra en 33%, og ber að krefjast
hækkunar á því.
4. Leiðréttingar verði gerðar á skipun þeirra
starfa í launaflokka, sem vanmetin eru miðað
við önnur störf. Verði af báðum samnings-
aðilum leitast við að taka upp kerfisbundið
starfsmat. Starfsheiti verði £ sem nánustu
samræmi við störfin, sem innt eru af hendi.
Starfsmönnum verði alls staðar, þar sem því
verður við komið, gefinn kostur á viðbótar-
fræðslu og námi, er veiti rétt til launahækk-
ana. Aldurshækkanir verði örari en verið
hefur, svo að full laun náist á 10 árum. f
störfum, þar sem framamöguleikar eru tak-
markaðir, verði auk aldurshækkana veitt
viðurkenning fyrir langa þjónustu með per-
sónuuppbótum.
5. Þingið ítrekar fyrri kröfur bandalagsins um
styttingu vinnuvikunnar, sérstaklega hjá
þeim, sem nú hafa lengstan vinnutíma, enn-
fremur hjá eldri starfsmönnum, einkum í
erfiðum störfum, t. d. vökuvinnu. Skal til
dæmis bent á, að vinnuvika hjá skrifstofu-
fólki er nú lengri en hún var fyrir 1950.
Vinna verði felld niður á laugardögum yfir
12 ÁSGARÐUR