Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.11.1966, Síða 13
Skipulagsmálanefnd ásamt formanni og starfsmanni B.S.R.B.
sumarmánuði, svo sem nú er orðið, en án
þess að vinnutími lengist aðra daga, og er
þetta atriði þegar komið til framkvæmda í
samningum bæjarstarfsmanna í Vestmanna-
eyjum. Þá er þess enn krafizt, að vinnutími
allra starfsmanna verði greinilega afmarkað-
ur og önnur starfskjör nákvæmlega tilgreind
og samræmd.
6. Þingið ítrekar fyrri samþykktir um, að unnið
verði að leiðréttingu á launakjörum kvenna.
Sérstaklega verði lögð á það áherzla, að
konum sem vinna til lengdar hjá opinberum
stofnunum, verði tryggðir framamöguleikar
til jafns við karlmenn.
7. Þingið ályktar, að stytta beri starfsaldur til
eftirlauna, ef starfið er þess eðlis, að teljast
verði óæskilegt, að menn gegni því til 65
eða 70 ára aldurs, t. d. af öryggis- eða heilsu-
farsástæðum.
8. Þingið ítrekar mótmæli frá 23. þingi B.S.R.B.
gegn því, að ákvæði um menntunarskilyrði
til ákveðinna launaflokka séu látin verka
aftur fyrir sig, eins og dæmi eru til í fram-
kvæmd kjarasamnings opinberra starfsmanna.
9. Þingið beinir því til bandalagsstjórnar og
Kjararáðs að vera sérstaklega á verði um,
að í engu verði skert réttindi og starfskjör,
sem áunnist hafa.
II. Starfsmannaráð.
Þingið felur bandalagsstjóm að beita sér fyrir
því við ríkisstjómina, að hún hlutist til um, að
við stærstu ríkisstofnanir verði komið á starfs-
mannaráðum, og eigi sæti í þeim fulltrúar starfs-
manna og stjórnenda stofnunarinnar. Hlutverk
slíkra starfsmannaráða væri m. a. að fjalla um
og gera tillögur um starfs- og ráðningarkjör
starfsmanna, starfsfræðslu og hvers konar um-
bætur á rekstri stofnana.
III. Samstaða launþegasamtaka.
Þingið telur illa farið, hve lítil samstaða er
með launþegum í landinu um hagsmunamál
þeirra, hvort sem litið er á einstök félög eða
ÁSGARÐUR 13