Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.11.1966, Síða 15
Allsherjarnefnd fjallar um orlofsheimilamál.
lagsstjórninni að verja af tekjum bandalagsins
allt að 400 þúsund krónum á næstu tveimur
árum. Jafnframt felur þingið stjórninni að leita
eftir stuðningi ríkisins við mál þetta með fram-
lagi til þess í fjárlögum.
Þá felur þingið bandalagsstjórn og Kjararáði
svo og stjórnum bæjarstarfsmannafélaga að leit-
ast við að fá inn í næstu samninga ríkis- og
bæjarstarfsmanna ákvæði um framlag til orlofs-
heimilasjóða bandalagsfélaganna hliðstætt slík-
um ákvæðum í kjarasamningum ýmissa verka-
lýðsfélaga.
Frá útbreiðslu- og frœðslumálanefnd.
I.
24. þing B.S.R.B. telur, að mjög væri gagnlegt,
að bandalagið hefði í þjónustu sinni fræðslu-
fulltrúa, sem annaðist upplýsingar og fræðslu
fyrir bandalagsfélögin um hagsmunamál þeirra,
s. s. kjara- og skipulagsmál. Teldist æskilegt og
raunar nauðsynlegt, að fulltrúinn kæmi á al-
menna félagsfundi í hverju bandalagsfélagi eigi
sjaldnar en einu sinni á ári og fræddi félags-
menn um allt hið nýjasta á vettvangi stéttar-
málefna og svaraði fyrirspurnum þar að lútandi.
Yrði þetta sjálfsagt til að glæða félagslífið, ekki
sízt í hinum smærri félögum, og vekja almenna
félagshyggju.
Einnig væri æskilegt, að fræðslufulltrúinn
annaðist fréttaflutning og kynningarstarfsemi í
blöðum, útvarpi og sjónvarpi, svo að tryggt væri,
að málsstaður opinberra starfsmanna yrði ekki
affluttur. Ennfremur virðist einsýnt, að þess-
um starfsmanni yrði falið að sjá um undirbún-
ing og framkvæmd námskeiða (sbr. fjárhags-
áætlun) á svipuðum grundvelli og gert er ráð
fyrir í áliti stjórnskipaðrar nefndar frá 11. jan.
1963.
Því mælir þingið eindregið með ráðningu slíks
starfsmanns, sé þess nokkur kostur.
II.
24. þing B.S.R.B. áréttar samþykkt frá síðasta
bandalagsþingi, að því er varðar útgáfu á tíma-
riti samtakanna, Asgarði, og þá sérstaklega ráðn-
ingu ritstjóra, er væri eingöngu starfsmaður
bandalagsins.
Til athugunar væri, hvort ritstjórnarstarfið
samrýmdist starfi fræðslufulltrúa, sem önnur til-
laga útbreiðslu- og fræðslunefndar fjallar um.
Frá fjárhagsnefnd.
I.
Þingið ákveður, að skattgreiðslur til banda-
lagsins fyrir árin 1967 og 1968 skuli vera óbreytt-
ar, eða 0,3% af föstum launum félagsmanna.
n.
Þingið samþykkir, að bandalagsfélög, sem ann-
ast sjálf kjarasamninga samkvæmt 46. gr. laga
B.S.R.B., fái endurgreidda frá bandalaginu %
hluta af launum samninganefndarmanna, enda
séu þeim greidd laun eftir sömu reglum og
kjararáðsmönnum og reikningsupphæðin sé að
öðru leyti eðlileg að dómi stjórnar B.S.R.B.
Þurfi bandalagsfélög við samningsgerð á sér-
fræðiaðstoð að halda, sem B.S.R.B. getur ekki
látið í té, skal sú aðstoð greidd úr sjóði banda-
lagsins, enda hafi stjórn B.S.R.B. fallizt á. að
þeirrar aðstoðar sé leitað.
ÁSGARÐUR 15