Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.11.1966, Side 25
Síðasti stjórnarfundur fráfarandi stjórnar. Talið frá vinstri: Jakob Jónsson, Anna Loftsdóttir, Ágúst Geirsson,
Guðjón B. Baldvinsson, Haraldur Steinþórsson, Kristján Thorlacius, formaður, Magnús Eggertsson, Teitur Þor-
leifsson, Einar Ólafsson, Valdimar Ólafsson, Sigurður Ingason og Ingibergur Sæmundsson. Á myndina vantar
Júlíus Björnsson, Bjarna Sigurðsson, Þorstein Óskarsson og Sigurð Sigurðsson.
SKYRSLÁ
STJÓRNAR BANDALAGS STARFSMANNA RÍKIS OG BÆJA Á 24. ÞINGI BANDALAGSINS
2. OKTÓBER 1966.
Hér á eftir verður gerð grein fyrir helztu við-
fangsefnum samtakanna frá því, er síðasta banda-
lagsþing var haldið í september 1964.
Uppsögn samninga:
Fyrsta samningstímabil samkvæmt kjarasamn-
ingalögunum var frá 1. júlí 1963 til ársloka 1965.
Uppsagnarfrestur samninga er 7 mánuðir og
þurfti því að segja þeim upp fyrir maílok 1965.
Samkv. 22. gr. laganna skal bandalagsstjóm
taka ákvörðun af hálfu B. S. R. B. um uppsögn
kjarasamninga, en um ákvörðun hennar skal
fara fram allsherjaratkvæðagreiðsla starfandi
ríkisstarfsmanna, er í hlut eiga, til samþykktar
eða synjxmar.
A stjórnarfundi 8. janúar 1965 samþykkti
stjóm B. S. R. B. með öllum atkvæðum eftir-
farandi tillögu ásamt greinargerð:
„Með tilvísun til 8. og 22. gr. laga nr. 55/1962
um kjarasamninga opinberra starfsmanna sam-
þykkir stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja, að segja upp núgildandi kjarasamningi
og dómi Kjaradóms frá 3. júlí 1963.
- Greinargerð:
Ástæður fyrir framangreindri ákvörðun banda-
lagsstjómar eru meðal annarra eftirfarandi:
1. Verðlag hefur hækkað mikið frá gildis-
töku núverandi launastiga. Hefir vísitala
framfærslukostnaðar hækkað um 23,5%
frá þeim tíma.
2. Laun opinberra starfsmanna eru nú lægri
en raunverulegar launagreiðslur til sam-
bærilegra starfshópa á frjálsum launamark-
aði.
3. Dómur Kjaradóms frá 3. júlí 1963 gekk ekki
nægilega til móts við réttmætar kröfur
B. S. R. B.
4. Leiðréttinga er þörf á skipun þeirra starfa
í launaflokka sem vanmetin em.
5. I núgildandi samningum fékkst ekki viður-
kennd sérstaða þjeirra starfsmanna, sem
höfðu langa starfsreynslu. en gengdu störf-
um, sem þar er skipað í launaflokka eftir
prófum.
6. Vinna þarf áfram að leiðréttingu á launa-
kjömm kvenna.
7. Endurskoðunar er þörf á ákvörðun Kjara-
dóms um vinnutíma, yfirvinnu o.fl. Stytta
þarf vinnutíma og afmarka hann greinilega
og tilgreina nákvæmlega og samræma önnur
starfskjör."
Allsherjaratkvæðagreiðsla:
Aður hafði stjórnin kosið yfirkjörstjóm til
þess að sjá um framkvæmd allsherjaratkvæða-
greiðslu þeirrar, sem skylt er lögum samkvæmt
að láta fram fara um ákvörðun bandalagsstjórnar
ÁSGARÐUR 25