Ásgarður : blað starfsmanna ríkis og bæja - 01.11.1966, Síða 42
dóras uppkveðnum. 30. nóvember 1965, leysti
menntamálaráðherra frá loforði, sem hann hafði
gefið um námsskeið fyrir framhaldsskólakenn-
ara, er síðan veitti rétt til hækkunar í launa-
flokkum.
Stjórn B.S.R.B. samþykkti að verða við beiðni
um flutning málsins fyrir Félagsdómi, enda verð-
ur málarekstur og kostnaður algerlega á vegum
L.S.F.K.
Mál þetta hefur verið þingfest hjá Félagsdómi,
en dómur er enn ókominn.
6. Félagsdómsmál vegna Lögreglufélags Suður-
nesja út af 6% áhættuþóknun:
Lögreglufélag Suðurnesja gerði kröfu til ríkis-
stjómarinnar samkv. 6. gr. kjarasamningalag-
anna um 6% áhættuþóknun til handa lögreglu-
mönnum, en þá þóknun höfðu þeir fyrir upp-
kvaðningu dóms Kjaradóms 3. júlí 1963.
Ríkisstjórnin synjaði kröfunni. Var málinu þá
vísað til Kjaradóms, sem vísaði því frá. Fór þá
Lögreglufélagið þess á leit við B.S.R.B. í janúar
1965, að það höfðaði mál fyrir Félagsdómi og gerði
kröfu um að lögreglumönnunum yrði greidd
umrædd áhættuþóknun.
Dómur Félagsdóms var á þá leið, að ríkis-
sjóður var sýknaður af kröfunni.
Uppsögn starfsmanna Siglufjarðarkaupstaðar.
I septembermánuði 1964 sagði bæjarstjóm
Siglufjarðar upp meginþorra fastráðinna starfs-
manna bæjarins.
Starfsmannafélag Siglufjarðarkaupstaðar ósk-
aði með bréfi liðsinnis B.S.R.B. í þessu máli.
Bandalagsstjórnin samþykkti ályktun, er send
var bæjarstjórninni, þar sem eindregnum til-
mælum var beint til hennar að endurráða starfs-
mennina þá þegar og hefja samninga við Starfs-
mannafélag Siglufjarðarkaupstaðar um kaup og
kjör í samræmi við gildandi lög og reglugerð
um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Var
jafnframt vakin athygli á því, að í flestum öðr-
um kaupstöðum landsins hefðu aðilar náð sam-
komulagi um að ákvæði laga um réttindi og
skyldur ríkisstarfsmanna skuli einnig gilda um
starfsmenn bæjanna, og var skorað á bæjar-
stjórnina að fallast á slík ákvæði í væntanleg-
um kjarasamningi.
Starfsmennirnir voru síðar allir endurráðnir
til starfa.
Þing opinberra starfsmanna í Ðanmörku:
í septembermánuði 1965 barst stjóm B.S.R.B.
ítrekað boð frá samtökum opinberra starfsmanna
í Danmörku — Fællesrádet for danske tjeneste-
mands- og funktionærorganisationer — um að
senda fulltrúa á þing samtakanna, sem haldið
var í Kaupmannahöfn 27. október 1965.
Stjórn B.S.R.B. samþykkti að þiggja þetta
vinsamlega boð, og sóttí. Kristján Thorlacius
þingið f. h. bandalagsins.
Fundur norrænna bæjarstarfsmanna:
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja hefur síðan
á árinu 1950 verið aðili að samtökum norrænna
bæ j arstarf smanna.
Dagana 11.—14. júlí s. 1. var haldinn fulltrúa-
fundur þessara samtaka hér í Reykjavík. Sátu
hann 18 erlendir fulltrúar og frá B.S.R.B. voru
þessir fulltrúar: Júlíus Bjömsson, Þórhallur
Halldórsson, Gísli Teitsson, Eggert Ásgeirsson
og Ingibergur Sæmundsson. Er þetta í annað
skipti, sem slíkt þing er haldið hér á landi.
B.S.R.B. gerizt aðili að NOSS —
sambandi ríkisstarfsmaxma á Norðurlöndum.
Síðasta bandalagsþing fól bandalagsstjórn að
vinna að því að efla norrænt samstarf opinberra
starfsmanna. B.S.R.B. hefur um langt skeið verið
í samtökum norrænna bæjarstarfsmanna eins og
fyrr er getið, en hins vegar ekki í NOSS — sam-
bandi norrænna ríkisstarfsmanna.
í des. 1965 barst bréf frá NOSS, þar sem
B.S.R.B. er boðið að gerast aðili að samtökun-
um og senda fulltrúa á undirbúningsfund, sem
átti að vinna að endurskipulagningu samtaka
norrænna ríkisstarfsmannasambanda, sem væru
óháð stjómmálaflokkum. Stjóm B.S.R.B. ákvað
að senda áheymarfulltrúa á þennan undirbún-
ingsfund, sem haldinn var í Stokkhóbni 12. og
13. marz 1966. Mættu þeir Haraldur Steinþórs-
son og Guðjón B. Baldvinsson á fundinum.
Stjóm B.S.R.B. samþykkti síðan á fundi 29.
apríl að gerast aðili í NOSS — sambandi ríkis-
starfsmanna á Norðurlöndum. Auk B.S.R.B. eru
eftirfarandi samtök meðlimir:
Tjanstemannens Centralorganisations stats-
tjanstemannasektion (TCO — S), Svíþjóð.
Statstjanstemánnens Riksförbund (SR), Sví-
þjóð.
Virkamieslútto-Tj anstemannaförbundet (VL-
(TF), Finnlandi.
Statstjenestemannsforbundet (STAFO), Noregi
42 ÁSGARÐUR